miðvikudagur, 31. ágúst 2005
Langir fyrirlestrar og langar gönguferðir
Við Heiko fórum í gönguferð upp í skógarhlíðarnar í blíðviðrinu seinnipartinn til að róa okkur niður eftir fyrirlestralotu dagsins. Það eru komin þessi fínu bláber sem bragðast alveg eins og þau íslensku og við vorum nokkra stund að gæða okkur á þeim. Við hittum nú ekki fyrir neina birni eða elgi í þetta skiptið og var mikil kyrrð og ró yfir öllum skóginum og gott að slaka aðeins á:) Upphafið af þessari ferð okkar var löngun til að rétta við þær fáu heilasellur sem lifðu af fyrirlestrana í dag. Við vorum frá 8:15 í morgun í samfelldum fyrirlestrum til 15:00 og þar af 4 klst. í Kolefnistækni, vei vei. Og eftir 4 klst. af samfelldri kennslu ætlaði prófessor Dr. Morten Sörlie varla að geta hætt að tala um efnið, svo áhugasamur var hann um þetta, jesús. Þess má geta að við Morten verðum samstarfsmenn hjá Alcoa, en Morten starfar að hluta til sem verkfræðingur hjá ELKEM (sem er 50% í eigu Alcoa) í Kristiansundi.
Ég ætla nú ekki alveg að drepa alla úr leiðindum með þessu tæknitali mínu en ég verð nú bara að skjóta hérna inn titli á einu viðfangsefni sem við vorum að fjalla um í kúrsinum Mechanical Properties of Metals - ísl: Burðarþolsfræði málma, titillinn var s.s. Elastic-Plastic heterogeneous plastic homogeneous respons.... hvað er eiginlega hægt að búa til fræðilega titla á mjög einföld fræði???
Nú er ég loksins að fá í hendurnar nemendakortið mitt og get því farið að skrá mig í klúbba hér við skólann. Hytte-klúbburinn er sérstaklega áhugaverður og gefur tækifæri til að kynnast norskri menningu og norsku fólki. Hytter eða kojer eru semsagt svona fjallakofar sem eru út um allt hér í fjöllunum í Noregi og notaðir sem afslöppunarstaðir og samkomustaðir. Hytte-klúbburinn á u.þ.b. 40 svona kofa/bústaði og skipuleggur ferðir í þá um hverja helgi og getur maður þá tekið hjólið með eða bara labbað frá rútunni í ca. klukkutíma upp í þessa kofa. Þarna er sauna til staðar og allt mjög frumstætt, t.d. þarf að höggva til eldivið til að hita upp húsin.
Ég segi betur frá Hytte þegar ég fæ að kynnast þessu af eigin raun en þetta er allt mjög ævintýralegt.
Ætla nú að fara að halla mér en ætla nú að hlusta á eitthvað íslenskt gamalt og gott áður en ég dett alveg útaf, t.d. sálmaplötu Ellenar Kristjáns. sem er alveg rosalega skemmtilegt og gott safn af klassískri kirkjutónlist í nýstárlegum búningi. Mæli með henni á ipod(inn):)
mánudagur, 29. ágúst 2005
Laundry, piece of cake
Svo er nú matargerðin ekki mjög flókin, merkilegt hvað fæst mikið af tilbúnum mat í búðunum. Ég steikti mér t.d. rauðsprettu í raspi einn daginn og hún var bara hreinasta afbragð, næstum jafn góð og ýsa í raspi að hætti mömmu. Svo er pastað mjög vinsælt og ódýrt námsmannafóður. Maturinn hér er mjög líkur þeim íslenska. Hér er hægt að fá þorskalýsi, jógúrt og osta sem eru alveg eins og á Íslandi. Svo eru þeir mikið með síld á boðstólnum og einnig staðvært dýrakjöt eins og elg og hreindýr. Svo er kaffið mjög visælt hér í Noregi og hef ég sjaldan séð álíka kaffiþambara eins og þessa Nojara sem ég þekki hér. Andreas, sambýlingur minn, kom einmitt með þessa svakalegu kaffimaskínu (lagar espresso, venjulegt kaffi og svo videre) hérna í íbúðina til að vera alveg viss um að fá sinn fasta dagskammt. Ítalarnir hérna skilja ekkert í þessari kaffimenningu og kalla kaffið sem við drekkum "kaffidjús", enda er það frekar þunnt m.v. ítalska espressokaffið sem ég hef smakkað hér, skot beint í heilann og manni svimar við að drekka það.
Jæja, nú hætti ég að rasa og ætla að fá mér einn kaffibolla til að taka þátt í menningunni hér:)
Helginni lokið og alvaran tekur aftur við:/
Mér var boðið í mjög fjölþjóðlegt dinnerpartí á föstudaginn hjá matarklúbbnum. Deepball frá Singapur hélt uppi stuðinu að vanda og reitti af sér brandarana og svo kom Janet frá Þýskalandi með þennan frábæra hlaupeftirrétt. Reglurnar í eftirréttinum voru þær að aðeins mátti nota sogrör við átið og var mjög athyglisvert að fylgjast með fólki sjúa fullar skálar af hlaupi upp með röri og heyra hljóðin sem fylgdu með.
Í dag þarf ég að velja mér fyrirlestrarefni sem ég þarf að stúdera fyrir fyrirlestur sem ég á að halda í áfanganum Carbon Technology (Kolefnistækni). Þetta er semsé heill áfangi sem fjallar um kolefni, kolefniskeðjur, grafít, demanta, kox og allar þær afurðir sem hægt er að framleiða úr kolefni (mjög athyglisvert verð ég að segja).
Ég þarf víst að drífa mig í fyrirlestur í Heterogeneous Equilibriums, varmafræði og orkuferlar málma:)
Hér eru nokkrar myndir frá Moholt Studentby (stúdentagörðunum mínum):
Mjög skemmtilegt hverfi

Húsið mitt-Mohot Alle 10

fimmtudagur, 25. ágúst 2005
Oh, so you are not a Norwegian!!!
En áfram gakk. Ég fór semsé í þessa frábæru siglingu á Þrándheimsfjörð á laugardaginn (sjá myndir) og skoðaði m.a. gamlan síldarbæ, svona Sigló Noregs, sem heitir Uthaugen. Ferðin tók 6 tíma og var sérstaklega skemmtilegt að fræða vini frá Afríku og mið-austurlöndum um sjó og siglingar og veðurfar hér á norðurhjaranum. Margir þeirra höfðu "aldrei" áður farið á sjó og hvað þá í svona nöprum vindi eins og var þennan annars ágæta dag.
Ég hlýt að líta út eins og sannur Norðmaður því fólk er alltaf að tala norsku við mig þegar ég er úti á götu eða í búðinni. Ég reyni aðvitað að babbla eitthvað á móti á minni hræðilegu dönsku, sem gegnur þó stundum bara merkilega vel. Fólk virðist samt alltaf jafn hissa þegar það heyrir að ég tala ekki norsku en verður mjög vingjarnlegt og áhugasamt þegar maður segist vera frá Íslandi. Ég held að Norðmönnum þyki þrátt fyrir allt mjög vænt um okkur Íslendinga, svona svipað viðhorf og við höfum gagnvart Færeyjingum;-)
Skólinn byrjaði á mánudaginn með fundi hjá prófessor Trygve Foosnæs, sem er svona einskonar idol áliðnaðarins og mjög þekktur í bransanum. Við náðum náttúrulega mjög vel saman og hann er sérstaklega áhugasamur um þennan díl sem ég er á hérna í skólanum. Hann gerði mig að hópstjóra fyrir alþjóðlegu nemendurna og ég mun því vera mikið í samvinnu við hann í vetur.
Svo hefur vikan liðið og hver nýr prófessorinn af öðrum byrjað að kenna og lýst mér mjög vel á þessa menn. Þeir eru flestir mjög færir á sýnu sviði og sem dæmi um það er að flestar kennslubækurnar sem við notum eru eftir prófessora hér við skólann en eru samt sem áður á ensku og seldar um allan heim.
Og svo er það ROSENBORG:)!!!! Rosalegur leikur gegn Steaua Bucarest á Lerkendal Stadium endaði 3-2 fyrir RBK (sjá myndir). Við Jochen vorum alveg að fíla okkur með Rosenborg stuðningsmönnunum og vorum farnir að syngja á norsku án þess að vita af því. Við erum semsagt komnir í meistaradeild Evrópu og drógumst í riðil með spænska risanum Real Madrid hvorki meira né minna. Ég held að ég reyni að tryggja mér miða á þann leik eins fljótt og auðið er.
Hjólið er komið í hús. Mongoose með öllum nauðsynlegum aukahlutum. Núna verður hægt að sofa 10 mín. lengur á hverjum morgni:)
Skráning mín inn í gagnagrunna skólans er nú á lokastigi og ég er kominn með lykilkort af byggingum og nýtt e-mail veffang: einarsso@ntnu.no eða sigurdur.agust.einarsson@material.ntnu.no . Ég er með vinnuaðstöðu í stofu mastersnemanna og lítur það allt mjög vel út. Við fáum svo nýjar skrifstofur í nóvember þegar viðgerðum á húsinu okkar verður lokið og það verður víst mjög góð aðstaða þar bæði til lestrar og rannsókna.
Þetta er nú bara ágætt í bili. Matarboð og partí á morgun hjá Magneu og Jónas og jazztónlekar og áframhaldandi partí í Samfundet fram eftir nóttu.
Með kvef- og hóstakveðju frá Niðarósi... Sigurd (Sigurður, oh, a very strong name)
föstudagur, 19. ágúst 2005
Dansiball í sirkustjaldi
Í dag var kynning á hinum campusnum hér við NTNU. Sá heitir Dragvoll campus og er staðsettur aðeins fyrir utan miðborgina. Í Dragvoll eru kenndar allar greinar sem ekki eru tengdar raunvísindum og verkfræði. Þær greinar eru nú reyndar ekki mjög margar en þær helstu eru íþróttafræðigreinar, sálfræði, læknisfræði, félagsvísindi, kennslufræði, arkítektúr og listir. Hér að neðan sjást myndir frá Dragvoll:
Dragvoll. Mjög smekkleg hús og allt umhverfi til fyrirmyndar
The Empire of Iceland. Með Magneu og Jónasi.
Það verður bara rólegt kvöld í kvöld enda nauðsynlegt að hvíla lúin bein eftir stranga viku. Á morgun er svo dagsferð á báti út á Trondheims fjord með mat og öllu.
Bara svona til að þið vitið það þá var 22°C hiti hér í dag og ekki ský á himni og vona ég að það verði svona áfram fram á haustið.
Yfir og út.
fimmtudagur, 18. ágúst 2005
Full program - nóg af partýum
Í dag var mikil hátíð í skólanum, skólasetningin var í morgun og var mikið um dýrðir, hljómsveitir, söngvarar, dansarar, ræðuhöld og kynningar á þeim 80 klúbbum sem starfa við skólann. Starfsemi þessara klúbba spannar nánast allt sem hægt er að hugsa sér frá fjallaklúbbum til tónlistarklúbba. Það var barbeque grill í hádeginu fyrir okkur útlendingana og svo var kynning á nemendafélögunum sem starfa við hverja deild. Ég get valið um tvö félög til að vera í Smörkoppen eða Bjerg og ætla ég að sjá til hvort ég vel þangað til ég verð búinn að hitta norsku samnemendur mína. Þessa stundina eru að byrja öl-partý í hverjum kjallara hér í Moholt stúdentagörðunum, en hvert nemendafélag á sinn kjallara þar sem það rekur bar og heldur sínar skemmtanir. Ég held ég skelli mér í kjallarann hjá Bjerg í kveld.
Ég er búinn að hitta par frá Íslandi sem býr hérna rétt hjá mér og ég vissi að væri að koma hingað. Strákurinn var með mér í kúrsum í HÍ þannig að ég þekkti hann aðeins frá fyrri tíð. Ágætt að hafa einhverja Íslendinga til að spjalla við á síðkvöldum í vetur.
Svo er ég búinn að hitta tvo af þremur Norðmönnum sem munu búa með mér í vetur. Þessir strákar virðast vera mjög fínir svona við fyrstu kynni og er ég mjög ánægður með þá.
Ég hef ekki tíma fyrr en um helgina til að uppfæra myndasíðuna mína en ég læt samt fylgja með nokkrar myndir svona til að það sé eitthvað að sjá frá Noregi.

Félagar frá Þýskalandi, Slóveníu, Ítalíu og Frakklandi
Skólasetningin á grasinu fyrir aftan gömlu aðalbygginguna
Einn af mörgum fyrirlestrum þessa vikuna
Kynning með formanni nemendafélagsins Bjerg (flottur búningur sem hann er í)
þriðjudagur, 16. ágúst 2005
Loksins tengdur í Noregi:)
Ég veit bara ekki hvar ég á að byrja enda af mörgu að taka og ótrúlega mikið sem á daga mína hefur drifið síðan ég yfirgaf Keflavík á föstudaginn.
Til að byrja með þá ætla ég nú bara að segja frá hversu frábært umhverfi og frábær aðstaða er í boði hér við NTNU, Norwegian University of Science and Technology. Ég á varla orð til að lýsa Glöshaugen campusinum sem er aðal-háskólaþorpið í NTNU (þar sem ég mun stunda mitt nám). Það er sérstök bygging fyrir hverja grein innan verkfræðinnar og raunvísindanna og þær eru sko ekkert slor. Nýjasta húsið er Náttúrufræðihúsið og það er líkara einhverju nýtískulistasafni heldur en kennsluhúsi. Main building er elsta byggingin og er hún u.þ.b. 100 ára gömul í kastalastíl, minnir mjög á skólahúsin í Cambridge í Englandi. Svo eru litlar götur, hjólreiðastígar og gangstéttir millri allra húsa og allsstaðar tré og grasfletir fyrir fólk til að liggja á og lesa eða gera það sem hentar hverju sinni.
Íbúðin sem ég leigi í vetur er í Moholt studentby sem er staðsettur rétt fyrir ofan Glöshaugen campus. Ég misskildi nú eitthvað upplýsingarnar sem ég fékk sendar til Íslands um íbúðina því þetta er eiginlega meira svona einskonar kommúna, þ.e. fjögur mjög rúmgóð og vel standsett einstaklingsherbergi með sameiginlegt miðjuverelsi, þ.e. eldhúsi og baði. Þetta lítur allt mjög vel út og hér er allt til alls, uppþvottavél og allur eldhúsbúnaður sem á þarf að halda. Ég er ennþá einn í íbúðinni og á því von á að þetta séu þrír Norðmenn sem ég mun "búa með" og er það ágætt uppá að læra að tala málið svona í byrjun.
Ég er búinn að vera síðustu 2 daga í Orientation Week og þar hefur margt skemmtilegt verið í gangi:) Hér er fólk allsstaðar að úr heiminum og ég er búinn að kynnast alveg ótrúlega mörgum á þessum tveimur dögum. Meðal þeirra er fólk frá Þýskalandi, Frakklandi, Spáni, Ítalíu, Nepal, Pakistan, Ghana, Eþjópíu, Úganda, Kazhakstan, Slóveníu, Hollandi, Ástralíu, Suður-Kóreu og svo videre. Fólkið frá þriðjaheimsríkjunum er flest á sérstökum þróunarhjálpar-styrkjum og er alveg sérstaklega kátt og skemmtilegt. Svo eru hér inn á milli "olíufurstar" frá Pakistan, Kazhakstan og Afríkuríkjum sem eru á styrkjum frá stórum olífyrirtækjum og koma hér til að læra Olíuverkfræði hjá Norðmönnunum.
Um bæinn:
Trondheim kemur virkilega á óvart og þetta er greinilega gömul höfuðborg ef tekið er mið af öllum flottu stjórnarbyggingunum í miðborginni. Hér er ótrúlega mikið af gömlum húsum, kirkjum, kastölum, bryggjum, torgum og görðum. Um helgina var bærinn vægast sagt iðandi af mannlífi, götumarkaður með grænmeti og skrani, götuleikhús, hljóðfæraleikarar á hverju horni og mikið af kaffihúsum og búðum í hæsta gæðaflokki. Ég var nú aðallega í leit að bar þar sem enski fótboltinn væri á dagskrá og ég fann einn enskan bar "Kings Cross" í gamalli kastalabyggingu og þar gat ég sest niður með norskum félögum í Manchester United og horft á leikinn sem endaði að sjálfsögðu með sigri 2-0.
Ég er þessa stundina að leita mér að góðu reiðhjóli sem stenst öll veður og þá eru mér allir vegir færir hér í þessum frábæra bæ.
Ég þarf að kveðja að sinni þar sem ég er að fara í Dinner með International M.Sc. Students í boði skólans í Marine Technological Center ( skipatæknimiðstöðinni) og svo er örugglega eitthvað partý á eftir:)
p.s. ég á eftir að taka fullt af myndum sem munu birtast hér á síðunni innan skamms.
þriðjudagur, 12. júlí 2005
Urð og grjót upp í mót
Hér fylgja nokkrar myndir frá upptökum Jökulsár á fjöllum, Sprengisandi og Öskju.


fimmtudagur, 7. júlí 2005
Ýmislegt í pípunum - Going to Norway
En öllum góðum hlutum fylgja einhverjir smá gallar, ef galla skal kalla, kannski er þetta bara gott tækifæri til að fá reynslu beint í æð... ég mun nefnilega flytja mig austur á land að loknu tveggja ára námi í Noregi og mun starfa sem sérfræðingur hjá Fjarðaáli í allavega tvö ár "beleave it or not":) Þannig að ef einhver á leið austur eftir tvö ár þá verður viðkomandi að hafa samband. Ég held samt að ég eigi eftir að halda flugfélaginu gangandi á meðan ég verð þarna, en maður skal aldrei segja aldrei, þetta verður kannski bara alger snilld
Er að fara upp á fjöll um helgina, Sprengisandur, Askja og Herðubreiðarlindir bíða með opinn faðminn og því verður ekkert bloggað fyrr en eftir helgi. seeya
miðvikudagur, 6. júlí 2005
Fyrsta bloggið.....
Gamli er semsagt byrjaður að blogga og er það eiginlega af illri nauðsyn femur en einstakri löngun. Maður má nú ekki rembast eins og rjúpan við staurinn til eilífðar.






