fimmtudagur, 29. september 2005

RBK tapaði örugglega fyrir Lyon

Við Deeppal skelltum okkur á UEFA CHAMPIONS LEAGUE í kvöld. Rosenborg Ballklub atti kappi við margfallt franskt meistaralið Olympique Lyon. Andrúmsloftið var rafmagnað og stemningin frábær og leikurinn alger thriller:) Rosenborg átti nokkrar góðar sóknir en Lyon stjórnaði leiknum frá A-Ö og var brasilíski galdramaðurinn Juninho hreint út sagt brilliant. Varnarmaðurinn Cris skoraði sigurmark Lyon nokkrum sekúndum fyrir hlé:/ Te og pylsa í hálfleik virtist ekki færa okkur meiri lukku en svo að Rosenborgarar voru heppnir að sleppa með 0-1 tap. En þetta var frábær upplifun og myndirnar hér segja meira en mörg orð:

Rétt fyrir leik. Trefillinn á sínum stað

Deeppal var að fara á sinn fyrsta "alvöru" fótboltaleik:)

Juninho stillir miðið fyrir eina af sínum eitruðu spyrnum


Rosenborg bullurnar. Styðja sitt lið í gegnum súrt og sætt


Houllier sjálfur. Halli ég tók þessa fyrir þig, ég veit að þú ert svo mikill aðdáandi;)

sunnudagur, 25. september 2005

Hverskonar leiðtogi?

Ég tók þetta leiðtogapróf sem ég rakst á á bloggsíðu Gauja. Þeir reiknuðu mig út sem JFK, ekki slæmt það en ég vona nú að örlög mín og ævi verði aðeins lengri og gæfuríkari. Ég sá að Gauji var reiknaður út sem Hitler, maður þarf því greinilegar að passa sig honum í framtíðinni:)

Klukk

Jæja skyldan kallar. Ég var víst klukkaður og það þýðir bara það að ég verð að segja 5 lítt þekktar staðreyndir um sjálfan mig. Ég velti nú dálítið fyrir mér "lítt þekktar" staðreyndir? Það fer nú bara eftir því hver á í hlut. En jæja mér er ekki til z-unnar boðið lengur:
  1. Þegar ég fæddist þá átti ég 2 ömmur, 2 afa, 4 langömmur, 2 langafa og 1 langalangafa
  2. Ég hata sveppi (en þeir eru þó ágætir á pizzum)
  3. Ég er með tölvuleikja-áráttu. Á enn í dag erfitt með að slíta mig frá tölvuleikjum ef ég byrja að spila þá. Besta ráðið er því að hafa þá ekki til staðar.
  4. Ég byrjaði starfsferil minn 3 ára (+/- 1 ár?) gamall í saltfiskverkun ömmu og afa á Ólafsfirði:) Sagan segir að ég hafi verið mjög kröfuharður starfsmaður og hafi viljað fá útborgað í beinhörðum peningum á klukkutíma fresti á meðan ég var í vinnunni (snemma beygjist krókurinn). Ekki fylgdi þó sögunni að mín helsta iðja í vinnunni var að bera sand úr sandkassanum inn á vinnslugólfið:/
  5. Ég elska ýsu í raspi (að hætti mömmu). Ég þarf bara að fara að læra að malla hana sjálfur:/

Jæja Ilmur, þá er það komið. Mér sýnist nú flestir virkir bloggarar sem ég þekki vera búnir að taka þátt í þessum leik þannig að ég segi bara stop hér. Enda viljum við nú ekki fara að búa til óendanlega lykkju? Vona að þið þekkið mig miklu betur nú en áður:)

föstudagur, 23. september 2005

Álbræðsla??? Hvað er nú það?

Ég sá í dag frétt á www.mbl.is um mótmæli "umhverfisverndarsinna" á fyrirhuguðum stækkunum álverana í Straumsvík og á Grundartanga. Ég var nú ekki mikið að kippa mér upp við þessa frétt en ákvað að lesa hana nánar og sjá hvað þarna færi fram.
Og lesturinn var svo sannarlega athyglisverður svo að vægt sé til orða tekið. Þar mátti m.a. finna eftirfarandi:
  • "...neikvæðum og heilsuspillandi áhrifum sem álbræðsla og tengd vinnsla hefur..."
  • "Þessi alþjóðlega ráðstefna er að hluta til fjármögnuð með skattpeningum okkar – en Reykjavíkurborg, Iðnaðarráðuneytið, Iðntæknistofnun og Landsvirkjun eru meðal fjárstuðningsaðila og þátttakenda - þar sem Ísland er enn boðið til sölu sem ódýrt málmbræðsluland og „óæskileg sjónarmið“ ekki velkomin"
  • "...Við sættum okkur ekki við að Faxaflóasvæðið verði eitt mengaðasta svæði Norður-Evrópu, en það mun verða staðreyndin ef af þessum áformum verður."
  • "Einnig viljum við sýna samstöðu því fólki sem orðið hefur fyrir barðinu á siðlausum og ómannúðlegum vinnubrögðum Alcan um víða veröld; allt frá verkamönnum í Straumsvík sem samband hafa haft við okkur og lýst óviðunandi vinnuumhverfi og brotum á réttindum starfsmanna; ..."

Ég hef sjálfur starfað hjá Alcan í Straumsvík og er að sérhæfa mig í verkfræði léttmálma þessa stundina og þessvegna verð ég bara leiðrétta jafn augljósar staðreyndavillur og komu fram hér að ofan.

Á Íslandi fer aðeins fram rafgreining á bauxíti og við það verður til fljótandi ál. Rafgreining er í eðli sínu mjög mengandi ferill og gefur frá sér brennisteins- og flúorgas sem er mjög óæskilegt umhverfinu. Í Íslenskum álverum náum við að hreina um 99,9% af flúornum úr gasinu sem fer út um strompana. Ekki eru neinar reglur um brennisteinsmengun og því er hann ekki hreinsaður. Hins vegar er brennisteinsgas þess eðlis gætt að það dreifist mjög hratt með vindum og því er lítil staðbundin mengun að völdum þess. Ekki er hægt að hreinsa brennisteinsgasið nema með vothreinsistöðvum sem setja brenninsteinninn þá út í sjóinn og það hlýtur að vera mjög óæskilegt fyrir okkur Íslendinga að setja mengunarefni í sjóinn.

Álbræðsla er eitthvað sportorð sem sumir nota í viðtölum og blaðagreinum til að undirstrika eitthvað neikvætt. Að mér vitandi er engin álbræðsla starfandi á Íslandi og ekki stendur til að byggja neina. Álbræðsla er verksmiðja sem tekur álklumpa, t.d. gamlar bjórdósir og umbúðir, og bræðir það upp og steypir nýjar vörur. Þessi aðgerð gefur ekki frá sér nein spilliefni og er því mjög umhverfisvæn og því mætti segja að Álbræðsla sé starfsemi sem allir umhverfissinnar ættu að fagna.

Skattpeningunum okkar finnst mér dálítið fyndið í þessu samhengi. Þetta ágæta fólk hefur örugglega ekki hugmynd um hversu miklum skattpeningum eitt stykki álver skilar inn í þjóðarbúið. Sú upphæð hleypur á mörgum milljörðum á ári:)

Eitt mengaðasta svæði Evrópu. Hvaða rannsóknir sýna það? Ætli það sé þá ekki bílaumferðinni í Reykjavík að kenna frekar en iðnaðinum? Samskonar svæði og þetta er víða að finna hérna í Noregi og það er ekki að sjá að það sé nein mengun hérna. Í bænum Mosjoen sem er norður af Þrándheimi er meira að segja Söderbergálver inn í miðjum bænum (við getum nú þakkað fyrir að hafa ekki slík álver á Íslandi).

Svo get ég nú ekki annað en tekið upp hanskann fyrir minn fyrrum vinnuveitanda Alcan. Það sem ég þekki til hjá Alcan eru mikill metnaður í öryggis- og vinnuverndarmálum og fyrirmyndar framkoma við starfsfólk. Þetta sést best á því að starfsaldur í Straumsvík er með því hæsta sem gerist á Íslandi. Hversvegna ætti fólk að vinna svona lengi hjá þessu fyrirtæki ef það væri brotið á réttindum þess og vinnuaðstaðan væri óviðunandi?

Þegar ég kíkti inn á heimasíðu þessara "umhverfisverndarsinna" sá ég að þetta er einhver félagsskapur sem hefur augljóslega litla þekkingu á þeim málefnum sem mótmælt er. Mér finnst þetta mjög sorglegt að hópur sem þessi kemst upp með að nota hið almenn orð "umhverfisverndarsinnar" um gjörðir sínar. Ég skola mjólkurfernurnar heima og set þær í endurvinnslu. Ég hef aldrei átt bíl. Ég flokka ruslið sem ég sendi frá mér. Mér þykir mjög vænt um umhverfi mitt eins og líklega flestu skynsömu fólki og tel mig því til umhverfissinna. Fólk sem er á móti virkjunum og álverum getur notað miklu betri rök heldur en þessi sem komu fram í þessari grein, rök sem byggjast á réttum staðreyndum og skynsemi. Það er að sjálfsögðu gott að fólk hafi skoðanir á þessum málum, hvort sem þær byggjast á eigin hagsmunum eða tilfinningum.

Þar sem ég hef mun meiri áhyggjur af loftmengun jarðar, heldur en staðbundnum "náttúruspjöllum" á Íslandi, þá held að það sé mun umhverfisvænna að framleiða hinn græna málm(sem álið er eftir að það er búið að rafgreina það úr Bauxíti) með hreinni orku á Íslandi heldur en með olíu- eða kolaorkuverum í USA eða Kína. Auk þess er þetta auðveldasta leiðin fyrir okkur til að nýta náttúrauðlindir okkar á skynsaman hátt og afla þar með fjár til hagsbóta fyrir land og þjóð:)

The end.

fimmtudagur, 22. september 2005

Þekking, tími og peningar???

Nú er ég loksins búinn að ná þessu...

Þekktar kenningar segja eftirfarandi: " Verkfræðingar og raunvísindamenn geta aldrei fengið jafn vel borgað eins og framkvæmdastjórar, sölustjórar, endurskoðendur, lögfræðingar og sérstaklega forystumenn í hugvísindum og stjórnmálum.
Nú hefur verið fundin leið til að styðja þessar kenningar með stærðfræðilegum hætti sem byggir á eftirfarandi tveimur frumforsendum:
  • Forsenda 1: Þekking er afl - (e. Knowledge is Power)
  • Forsenda 2: Tíminn er peningar - (e. Time is Money)

Verkfræðingar vita að: afl = vinna / tíma - (e. Power = Work / Time)

Því fæst: þekking = afl

sem jafngildir: þekking = vinna / tíma

og tími = peningar,

leiðir til: þekking = vinna / peningar

Ef leyst er út úr jöfnunni fyrir peninga, þá fáum við:

peningar = vinna / þekking

Útfrá þessu sést að þegar þekkingin stefnir á núll, þá nálgast peningar óendanlegt, óháð því hversu mikil vinna er unnin:)

og hana nú...

þriðjudagur, 20. september 2005

Í nám(um) í Noregi

Hér ber að líta mynd frá ferð erlendu M.Sc. nemanna í koparnámu- bæinn Röros sem er staðsettur í um 500 m hæð í fjöllunum hér suður af Trondheim. Eins og sjá má þá var ég eini hvíti maðurinn í ferðinni fyrir utan leiðsögukonuna og bílstjórann:/ En það er bara hið besta mál. Náman sem við skoðuðum er um 300 ára gömul og er að flatarmáli ca. 21 fótboltavöllur, þ.a. það var eins gott að villast ekki þarna inni í þessu völundarhúsi. Á einum staðnum var stór salur með sviði og sætum og þar tóku 3 strákar frá Ghana lagið með tilheyrandi hrópum og köllum og miklum rythma, minnti bara á African Sanctus tónleikana hjá Háskólakórnum síðasta vetur:)
(sjá fleiri myndir frá Röros á myndasíðunni)

Glænýja sjónvarpið mitt er bilað og ég veit ekkert hvað er að gerast með það. Held að það sé eitthvað fúllt út í mig yfir því að ég nenni aldrei að horfa á það og sé í staðin alltaf að horfa á aðalkeppinaut þess, tölvuna;) Ég hafði samband við Best-Buy og þeir ætla að koma í vikunni og sækja það og láta mig fá nýtt tæki í staðin, no problemo.

Svo var ég að taka að mér að skrifa pistil í tímarit SÍNE (samband íslenskra námsmanna erlendis) um dvöl mína hérna í Noregi. Ritstjórinn er sama kona og ég fór í viðtal til þegar ég var að sækja um námsstyrkinn. Hún hafði svo samband við mig og bað mig um þetta og ég held að Trygve (my Course Coordinator) deildarformaðurinn okkar muni líka skrifa eitthvað í blaðið í tengslum við þennan pistil og segja sitt álit á þessu samstarfi skólans við íslenskan iðnað...

Svo er ég að fara í enn eitt matarboðið á föstudaginn til Alberts. Þar sem hann er Singaphur kínverji þá ætlar hann að elda eitthvað genuine kínverskt og svo verður eitthvað gott að drekka með. Alltaf gaman að smakka svona alvöru framandi mat og góð tilbreyting frá frostnu og fljótlegu tilbúnu réttunum sem ég borða alltof mikið af:/

föstudagur, 16. september 2005

I'm a legal alien

But not an Englishman in New York. Eftir 24 og hálft ár með sömu kennitöluna þá hef ég ákveðið að fá mér aðra, gott að eiga eina svona til vara. Ég fékk sem sé póst frá norsku þjóðskránni í dag um að ég væri formlega löglegur íbúi Noregs og var því úthlutað Födelsnummer 030481 23359. Glæsilegt ekki satt? Svo er ég kominn með norskt GSM númer hvorki meira né minna (0047) 938 13 834. Það er því ekki hægt að segja annað en að ég sé búinn að koma mér vel fyrir.

Gleðifréttirnar í dag eru þær að miðar á Rosenborg - Lyon 28. sept eru komnir í hús:) Við Deeppal keyptum tvo miða á svarta markaðnum bara til að tryggja að við kæmumst á einhvern leik í vetur. Verðið verður ekki gefið upp hér en það er þó mun lægra á þennan leik en á Real Madrid leikinn í nóvember. Við höfum heyrt tölur sem eru vel á þriðja tug þúsunda, of mikið fyrir fátæka námsmenn.

Gangið hægt um gleðinnar dyr um helgina:)

miðvikudagur, 14. september 2005

Enn meira fótboltafár eftir sigur Rosenborg

Já það var um fátt annað talað í dag í Þrændarlögum en 3-1 sigur Rosenborg gegn Olympiacos í Aþenu í gærkveldi. Menn horfðu á leikinn í öllum sjónvarpstækjum borgarinnar í gær og úrslitin eru svo sannarlega óvænt því að því er ég best veit þá er þetta fyrsti útisigur Rosenborg í meistaradeild Evrópu. Þetta hleypir mikilli spennu í riðilinn okkar og því enn meiri ástæða til að redda sér miðum á leikina þrjá hér í vetur sem ætti að vera góður möguleiki.

Við höfum sem betur fer ekki fengið að finna fyrir þessu óveðri sem hefur gengið yfir Bergen undanfarna daga og kostað mannslíf í aurskriðum. Samt sem áður hefur ekki verið þurr dagur hér í Þrándheimi í ca. tvær vikur og veðrið hefur verið frekar leiðinlegt og óvengulega slæmt á þessum tíma að því er Nojararnir segja. En þetta er í lagi á meðan það byrjar ekki að snjóa.

Ég mun fara í dagsferð til námubæjarins Röros á laugardaginn með masters-nemunum hér við NTNU. Áætlunin er að skoða gamlar námur og gömul hús í þessum merka bæ sem er á lista UNESCO yfir ómetanleg menningarverðmæti. Verður gaman að sjá hvað þar er að finna:)

þriðjudagur, 13. september 2005

Bloggidiblogg - Mikið að gera

Þá er best að halda áfram þar sem frá var horfið við fréttafluttnig frá Noregi. Ég hef verið vægast sagt mjög upptekinn í verkefnavinnu í skólanum undanfarna daga og var að skila af mér lausnum í dag þ.a. nú er smá stund milli stríða. Auk þess verður þessi vika frekar róleg þar sem Hr. Sörlie er ekki með fyrirlestra í Carbon tech.

Hér er það helst að frétta að ný ríkisstjórn er að taka við völdum eftir kosningarnar í gær og Stoltenberg nokkur tekur við af Bundevik. Þetta er svona álíka breyting og að Imba Sól tæki við af Dabba digra á Íslandi, s.s sami pakkinn í mismunandi sauðagærum. Norðmennirnir voru nú ekki að kippa sér mikið upp við þessar kosningar og ég var að segja mörgum þeirra fréttir af niðurstöðunum í dag eftir að hafa hlustað á GUFUNA í morgun á netinu. Fyndið að við Íslendingar vitum oft meira um innanríkismál í örðum löndum heldur en fólkið sem þar býr og hlýtur það að segja eitthvað um fréttafýsni okkar.

Ég er kominn með sjónvarp og næ með því 18 stöðvum, norskum, sænskum og enskum. Ég er að reyna sannfæra sjálfan mig um að sjónvarpið sé besta leiðin til að læra norskuna, samviskan segir að ég noti þetta sem afsökun til að horfa á sjónvarpið:/

Svo fann ég ágæta kínverska síðu þar sem ég get horft á alla helstu fótboltaleiki í Evrópu í beinni útsendingu um netið. Ágætt að þurfa ekki að fara niður í bæ á einhverja pöbba til að fylgjast með boltanum.

Ég fékk loksins langþráðan pakka frá mömmu á föstudaginn var. Í pakkanum var að finna háskólabókasafnið mitt sem ég get ekki lifað án og ég hafði miklar áhyggjur að myndi glatast á leiðinni yfir hafið. Merkilegt hvað öll vitneskja manns og kunnátta byggist upp á því að vita nákvæmlega á hvaða blaðsíðu einhver jafna er í einhverri ákveðinni bók:) Svo var ýmislegt góðgæti sem fylgdi með frá mömmu, slikkerí (mæra upp á Húsvísku), harðfiskur og vatnssuðuvélin sem ég nota til að laga te og instant kaffi.
Ég var ekkert smá glaður að fá þennan pakka og má líkja eftirvæntingunni við að sækja hann á pósthúsið við gömlu góðu jólapakkaspennuna.

Ég ætla nú að fara að malla eitthvað í mallann. Góðar stundir.

miðvikudagur, 7. september 2005

Bubbi kóngur bara hættur

Það eru naumast stórtíðindin sem berast manni frá Íslandi í dag. Landsfaðarinn bara hættur og farinn að vinna við að telja peninga í ríkisfjárhirslunni.
Ég held að það sé nú ekki hægt annað en að hrósa Dabba kallinum fyrir góðan árangur og trygga sjórn og á hann stóran þátt í því stórgóða þjóðfélagi sem við lifum í. Annað sætið á lista Sameinuðu þjóðanna yfir lífskjör (Noregur nr.1).

Ég held að það hafi nú verið kominn tími á Davíð en hann getur vel við unað og vonandi nær hann að stjórna Seðlabankanum nógu vel til að verðbólgan verði áfram lág og að grundvöllurinn fyrir áframhaldandi velsæld, þ.e. STÖÐUGLEIKINN, verði áfram til staðar.

Þetta er samt mjög merkileg saga með þá Davíð og Geir og myndin hér að neðan sínir að þetta er ekki í fyrsta skipti sem þeir senda valdasprotann sín á milli(Davíð tók við af Geir Haarde sem Inspector Scholae í MR árið 1970).

Vonbrigði ársins - Uppselt á UEFA Champions League

Í gær var mikið um að vera hér í Þrándheimi, allavega voru símafyrirtækin að græða vel á mill 16 og 17. Þannig var að kl. 16 var opnað fyrir símasölu á þeim miðum sem seldir verða á almennum markaði á leikina þrjá í Meistaradeild Evrópu í vetur. Ég bauð tveimur félögum mínum í heimsókn til að við gætum pantað miða á leikina og setið saman Þetta væri nú kannski ekki í frásögu færandi nema vegna þess að af einhverjum ástæðum náðum við aldrei sambandi við miðasöluna, álagið á kerfið var of mikið og einhver ömurleg tölvurödd sagði okkur alltaf að reyna aftur síðar.

Við höfðum nú ekki miklar áhyggjur af þessu og héldum að aðrir hefðu átt við sama vandamál að stríða og að það væri nú nokkuð öruggt að það væru einhverjir miðar eftir á völl sem tekur yfir 21 þúsund áhorfendur í sæti. En nei, morguninn eftir þegar við reyndum aftur var okkur vinsamlegast tilkynnt að allir miðarnir væru búnir og ekkert eftir fyrir okkur :-( :+( :o( :t( :s(

Það verður því ekki mikið um Raúl, Ronaldo, Carlos, Beckham og Zidane hjá mér í vetur, en ég hef þó ekki gefið upp alla vona, við lærum það í verkfræðinni að það er ekkert til sem heitir: "ekki hægt". Ég ætla því að nýta alla mína kunnáttu og galdra til að ná í miða og ég á vona á því að það takist. Ég get allavega alltaf reddað mér miðum á leikina gegn Lyon og Olympiakos en ég finn einhverja töfralausn til að redda REAL MADRID leiknum. Við sjáum til.

sunnudagur, 4. september 2005

Gáta

Ég heyrði þessa skemmtilegu gátu í sunnudagsþætti Hemma Gunn og ætla að sjá hvort einhver sé svo gáfaður að vita svarið við þessu. Lausnarorðið er orð sem má tengja við hverja línu vísunnar:

Í orustum hér áður fyrr
oft í skýjum séður
um stássstofunnar stoltu dyr
stundum við mig lækur kveður.

(höf. Elís Kjaran frá Dýrafirði)

Þeir sem hlustuðu á Hemma mega að sjálfsögðu ekki svara.

Heimabakaðar pönnukökur í fjallakofa

Það var rjómablíða í gær og ekki hægt annað en að fara til fjalla og skoða betur kofana sem hytteklúbburinn á og eru út um allar trissur hér í skógunum í kringum Trondheim. Svo vel villdi til að okkur Heiko (sambýlingi mínum frá Þýskalandi) hafði verið boðið í heimabakaðar pönnukökur í stóra "kofanum" sem klúbburinn á og er staðsettur í Bymark útivistarsvæðinu, sem er reyndar aðal gönguskíðasvæðið hér í fjöllunum. Við tókum strætó langleiðina upp í hyttuna og löbbuðum svo í um 10 mín upp að skálanum. Þessi skáli er nú enginn kofi, þetta er risastórt hús með mörgum örnum og gufuböðum og mjög vinsæll partístaður yfir vetrartímann þegar Nojararnir, sem eru algerir skíða-terroristar, koma heim úr gönguskíða dagsferðunum sínum.

Við fórum í gönguferð um svæðið í kringum hyttuna og nutum veðursins til hins ítrasta. Norðmenn hafa nefnilega sama hátt á og við Íslendingar þegar kemur að góðu veðri og þeir orða þetta atferli sitt á eftirfarandi hátt: "we dont want to spoil the weather" eða "við viljum ekki að veðrið fari til spillis":) Hér eru því allir utandyra um leið og smá sólarglæta sést á himnum.

Eftir göngutúrinn var sest að snæðingi og var boðið upp á norska grænmetissúpu og síðan heimabakaðar pönnukökur með sultu eða sykri, namminamm. Við gistum nú ekki í þetta sinn en við munum heimsækja hytturnar oftar í vetur og jafnvel enn frumstæðari útgáfur af þessu kofum sem kallast kojer og eru kofar án rafmagns eða annarra þæginda.

Við Heiko í strætó á leið til fjalla
Hytte. Þetta er nú bara glæsilegt hús með öllum þægindum
Með John Chiles frá Misouri (USA) að borða súpu og bíða eftir pönnukökunum