laugardagur, 24. desember 2005

Gleðileg jól

Ég sendi öllum vinum og vandamönnum til sjávar og sveita bestu kveðjur um hamingju og sálarfrið um jólin og áramótin. Takk fyrir góðar stundir á liðinni tíð og megi þær verða fleiri og enn betri á næsta ári.
Hafið það gott og gangið hægt um dyr gleðinnar

Sigurður Ágúst:)

(engilsh)
I wish you all Merry Christmas and a Happy New Year. Thanks for great moments in Norway during the last months and I hope the next year will be even better:)
And as we say in Iceland: "Walk slowly through the doors of happyness".

Sigurdur Agust.

mánudagur, 19. desember 2005

Eksaminasjonen afslutted - jule ferien begynner

Jólafríið er byrjað:) Þrándheimur er þakinn hvítri fönn og það er ekkert smá jólalegt í bænum. Nú er bara að krossleggja fingur um að ég komist heim á miðvikudaginn, myndi ekki afbera það að verða veðurteftur hér í Norge yfir jólin.Þá er bara að njóta þess að slæpast næstu vikurnar og lifa í langþráðri afslöppun, vona að það gangi vel. Forgangsmál í Íslandi er að fara í heita potta og gufuböð og njóta okkar mögnuðu náttúruauðlinda sem ég hef saknað mikið hér í Norge.

Jæja best að fara og kaupa sér smá öl til að halda upp á próflokin, sjáumst í klakanum:)

fimmtudagur, 8. desember 2005

Back to the jungle

Ég get nú ekki viðurkennt annað en að ég er kominn a.m.k. á þrepið lengst til hægri á þessari skýringamynd um þróun mannkyns. Spurning hvort líf Neanderdals mannsins hafi ekki bara verið miklu þægilegra og afslappaðra?Nú eru bara 13 dagar þar til maður verður kominn með eldgömlu Ísafold aftur undir fæturna.

Svo voru snilldar fréttir fyrir mig í dag. SAS Braathens ætlar að byrja að keppa við Flugleiði í Keflavík-Oslo fluginu í mars. Þeir ætla að bjóða miða á sjö þúsund kall:) Nú getur því enginn sagt að hann geti ekki heimsótt mig vegna þess að það sé svo dýrt. Ég verð því væntanlega eins og grár köttur á Íslandi á næsta ári...

No comment

laugardagur, 3. desember 2005

Norge har fått en ny prins

Ingrid Alexandra fikk en lillebror
Hér í Noregi ríkir nú mikil gleði og hamingja þar sem Haakon krónprins og Mette-Marit prinsessa eignuðust lítinn prins í morgun. Það er um fátt annað talað í sjónvarpinu og nánast bein útsending frá tröppum ríkisspítalans í Osló. Þetta er greinilega mikill hvalreki fyrir gulu pressuna (VG og Se & Hør), ótúlegt hvað fólk virðist hafa gaman að því að lesa slúður um kóngafólk.

Hva skal barnet hete?
Samkvæmt pressunni er klappað og klárt að gutten muni verða skírður einu af eftirfarandi klassísku norsku kónganöfnum:
Olav, Harald og Haakon. Örlitlar líkur eru þó á að hann muni heita kónganafni frá fyrri öldum og eru þá nöfnin Magnus og Sverre helst nefnd til sögunnar.

Ég held að við Íslendingar þurfum að fara að kaupa okkur kóng, svona eins og norðmenn gerðu í kringum árið 1900. Er ekki einn danskur prins á lausu sem við gætum reynt að kaupa?

fimmtudagur, 1. desember 2005

Fyrsta prófið afstaðið:)

Ég lauk mínu fyrsta lokaprófi af fjórum um hádegisbilið í gær. Það gekk bara fínt og ekkert sem kom mér á óvart. Það er nú reyndar dálítil breyting að taka prófin hérna miðað við í HÍ því hér má ekki hafa nein gögn með sér í prófin og maður þarf því ekki að mæta með allt bókasafnið sitt með sér eins og maður var farinn að gera á flestum lokaprófum í verkfræðideildinni. En prófin verða allt annars eðlis, meiri páfagaukalærdómur og því mun mikilvægara að haga prófundirbúningnum betur heldur en maður gerir þegar maður veit að maður getur flett upp á öllu sem maður þarf á að halda eins og ég var orðinn vanur. Spurning hvor aðferðin er betri, en allavega lendir maður ekki í þessu klassíska tímahraki þegar prófin eru án allra hjálpargagna, annaðhvort veistu svarið eða ekki svo einfallt er það nú.

Það var nú líka dálítið skondið hvernig þeir láta mann skrifa svörin niður. Mér var afhentur búnki af pappaörkum sem hver um sig var í þríriti. Hvítt blað fremst sem maður ritaði svarið á, svo kom blátt blað undir því og svo gult blað þar undir. Allt sem ég skrifaði var því í þríriti og ég tók eitt eintakið með mér heim en hin tvö fara svo til prófessorsins og skólayfirvalda. Greinilega fyllsta öryggis gætt til að gæta hagsmuna allra aðila.

Nú er ég að læra undir lokaprófið í Carbon Materials Technology. Morten vinur okkar Sörlie lofaði að vera sanngjarn og því hef ég ekki miklar áhyggjur af þessu fagi. Ég er sem sagt að lesa um koksframleiðslu og olíuhreinsun og aðra hluti sem tengjast olíu- og kolabransanum. Ekki datt mér nú í hug að ég ætti eftir að verða sérfróður um þrepaeimingu á jarðolíu en það er nú víst raunin:)

Svo er stefnan sett á jólaglögg hjá Íslendingafélaginu á laugardaginn í bjórkjallaranum okkar í Ísakoti. Maður verður nú að taka því rólaega fyrst maður er nú í miðri próftíð:/ Á sunnudaginn er svo messa hjá íslenska söfnuðinum í Noregi og verður hún haldin í sjálfri Nidardomen, hinni ævafornu dómkirkju hér í Þrándheimi. Á sunnudagskvöldið er svo planið að kíkja í smá indverskt matarboð hjá slóvenska arkítektinum. Jana var að koma heim úr námsferð í Urban planning til Indlands og Nepal og tók með sér einhver sér indversk krydd sem hún ætlar að nota til að matreiða eitthvað framandi. Hún bauð því nokkrum vinum heim til að smakka á þessu. Verður gaman að sjá:)

Fleira er ekki í deiglunni að sinni og verð ég nú að halda áfram að fræðast um undur og töfra knattkola.