sunnudagur, 24. desember 2006

Gleðileg jól

Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Takk fyrir jólakort og kveðjur. Ég verð duglegri að senda kveðjur í pappírsformi næstu jól þegar ég hef meiri tíma fyrir slíkt eftir flutninginn til Íslands. Hafið það sem allra best og vonandi fer enginn í jólaköttinn þetta árið.

Bestu jólakveðjur úr Kópavoginum, Siggi.

þriðjudagur, 19. desember 2006

Lutefisk elskere

Ég skellti mér á Ørens kro niður við Solsiden (gamli slippurinn í Þrándheimi) ásamt nokkrum félögum úr deildinni og við fengum okkur hinn fræga þjóðlega norska "Lutefisk" sem er fastur liður í aðdraganda jóla, svona svipað fyrirbæri og kæst skata á Íslandi. Við fiskæturnar fengum þessa fínu smekki eins og sést hér að neðan. Hvað fiskinn varðar þá var hann bara fínn. Þetta er þorskur sem er þurrkaður og svo settur í einhverja vatnsblöndu, NaOH, eða eitthvað slíkt. Í þessu vatni þá bólgnar hann út og verður mun fyrirferðarmeiri en fyrir þurrkunina og svona hlaupkenndur. Þetta er svo borðað með beikoni, kartöflum og grænum baunum (þó ekki Ora grænum baunum), brúnosti, sýrópi, sinnepssósu og svo er herlegheitunum skolað niður með staupi af norsku ákavíti og øli frá brødrene Dahl's. En stemningin er víst það sem gerir þetta svona skemmtilegt.
Verkfræðingarnir flottir með smekkina. Heiko sýnist nú vera nokkuð syfjaður eftir alla skýrsluvinnuna síðustu vikurnar.

Ceramic fólkið til vinstri, Katie og hennar þýski herr. Charlotte og Johannes Heikoson til hægri.

Svona lítur svo Lutefisk út.

fimmtudagur, 14. desember 2006

Já það er sko munur að nota LaTeX ;-)

Já svona er það þegar maður aðlagast um of nördasamfélaginu að það fer að valda misskilningi. En eins og Lovísa benti réttilega á þá mátti misskilja mig á msn um daginn þegar ég staðhæfði að "LaTeX væri málið". Þarna átti ég að sjálfsögðu við ritilinn LaTeX en ekki eitthvað annað sem tengist lítið málinu. Að vísu verð ég nú að viðurkenna það að ég þarf að klæðast latex hönskum þegar ég nota rafeindasmásjánna því þar má ekki snerta neitt með berum höndum (og hér á ég að sjálfsögðu við að ekki megi snerta lofttæmisklefann án hanska, svona til að fyrirbyggja en meiri misskilning).
En ég mæli sko 100% með LaTeX fyrir alla þá sem þurfa að skrifa skýrslur eða ritgerðir í stærri kantinum. Þessi ritill er mikið notaður innan verkfræðisamfélagsins og er mjög einfaldur og ótrúlega þægilegur. Þú hefur fulla stjórn yfir því hvað birtist hvar og ritillinn gerir ekkert sjálfvirkt eins og er svo algengt með Word og Excel og veldur oft vandræðum. Bæði er hægt að skrifa út pdf skjalsnið eða ps skjalsnið sem eru bæði ákaflega góð því þau sína á skjánum nákvæmlega það sem kemur út úr prentaranum (sem Word gerir oft ekki). Það er hægt að ná í forritið TeXnicCenter ókeypis víða á netinu og svo þarf þýðandann MikTeX til að þýða kóðann. Ég get sent þeim sem hafa áhuga grunnkóða í skýrlu svona til að breiða út fagnaðarerindið. Hér að neðan sést notendaviðmótið.

miðvikudagur, 13. desember 2006

Síðasta prófinu lokið

Ef einhverntíma er tími til að gleðjast, þá er það örugglega þegar maður lýkur sínu síðasta prófi. Hvort þetta hafi verið síðasta prófið í mínu lífi kemur í ljós síðar en ég er allavega búinn með þau sem ég tek hér í Noregi. Í morgun tók ég sumsé munnlegt próf í leskúrsunum mínum og stóð fyrir framan prófessorinn og svaraði spurningum og útskýrði ýmislegt sem tengist mínu sérsviði. Bara nokkuð afslappað og gekk bara bærilega. Það er samt svo skrýtið þegar á það ég lít að vera búinn með allt sem heitir fyrirlestrar, próf og heimadæmi.
Það verður samkoma hjá okkur nemendum á Den gode nabo í kvöld til að fagna þessum áfanga eða syrgja eftir því hvað mönnum finnst:)

Einungis 8 dagar í að ég fari út. Orðasambandið fara út merkti jafnan í fornu mál ‘fara til Íslands (frá Noregi)’ en sú merking mun dáin drottni sínum.

Á dagskrá þangað til: Skrýrsluvinna í LaTeX.

Sjáums.

mánudagur, 11. desember 2006

Alltaf gaman þegar Mourinho er pirraður...

Næst bestu liðin á Englandi, Skitturnar og Ch€₤$k¥, töpuðu bæði tveimur stigum um helgina þegar þau gerðu jafntefli 1-1. Mourinho ásakar Arsenal um að vinna með Manchester United og segir liðin reyna að koma í veg fyrir að Chelsea geti unnið deildina. Hvað er Mourinho eiginlega að pæla, eins og Arsenal fari ekki í alla leiki til að vinna og eins og þeir hafi engan áhuga á að vinna deildina, nei nei, þeir eru sko í samsæri með United gegn Chelsea. Mourinho tekst allaf að finna einhverjar afsakanir þegar hans menn eru ekki að spila vel í stað þess bara að sætta sig við að íþróttir eiga ekki að vera þannig að eitthvað sé öruggt eða gefið.

Hinsvegar gat maður ekki annað en skemmt sér yfir einvígi þeirra Drogba og Lehman og aðdáungarverðum leikrænum tilburðum þeirra til að leika á dómarann. Eins og Drogba er nú frábær leikmaður þá er þetta nú frekar pínlegt að fullfrískur maðurinn geti ekki staðið í lappirnar þegar þessi þýski durtur klappar aðeins á bakið á honum til að hvetja hann áfram:(

Þeir fóstbræður Eggi og Bjöggi hafa svo rekið stjórann Alan Pardew frá West Ham. Spurning hvort Gaui Þórðar taki ekki bara við og geri þetta að alvöru íslensku floppi. Já allavega mun nýtt andlit horfa upp úr þessari verslunarkörfu von bráðar og vonandi að þeir félagar hafi nú ekki verið að kaupa köttinn í sekknum í þessum viðskiptum sínum.

Þetta var nú bara smá skot um enska botann til að minna fólk á að United eru komnir heim, þ.e. á toppinn og verða vonandi þar það sem eftir lifir leiktíðar.

mánudagur, 4. desember 2006

Ein mynd segir meira en mörg orð, segir í máltækinu...

Ég er búinn að setja nokkrar "nýjar" myndir inn undir tengilinn "nýjar myndir", einkar frumlegt ekki satt.? En þegar ég var að renna í gegnum myndasafn síðustu mánaða þá er nú ein mynd sem er í uppáhaldi, en hún er af sjálfri prinsessunni í fjölskyldunni, Svanhildi litlu systur. Ég skaut þessari mynd þegar hún var að fara í skólann í fyrsta sinn núna í ágúst. Litirnir eru sko alveg pottþéttir, bleik/fjólublár klæðnaður greinilega inn og spurning hvort þetta er skólataska með stelpu eða öfugt;=) Ótrúlegt hvað tíminn líður, Svandhildur fæddist einmitt þegar ég var í kórferð með MA kórnum í 3. bekk og það kom frétt um það í Hugins fréttapésanum Stjórnin segir ef mig misminnir ekki. Nú er hún bara byrjuð í Hjallaskóla í Kópavogi. Spurning hvort á þessari mynd séu fyrstu spor á langri skólagöngu og hvort hún fetar jafn mörg spor og við Ragnheiður (stærri litla systir sem er í 6.X í MR, magnað eða hvað?), en ég er á mínu 20 skólaári núna og komið nóg í bili eftir það held ég bara.

sunnudagur, 3. desember 2006

Haustdagur á árbakka Niðar

Hér kemur smá myndasyrpa frá einum af mínum heilsubótar göngutúrum um hverfið mitt, sem liggur í brekkunni neðan háskólans og niður að bökkum elfunnar Niðar. Í Þrándheimi eru nú miklar hauststillur og veturinn ekki enn genginn í garð og er það flestum Norðmönnum til mikils ama enda forhertir skíðamenn upp til hópa. Það sem helst einkennir bæinn þessa dagana er reykjarfnykurinn sem berst frá skorsteinunum og fólk eru greinilega að bæta grenigreinum á eldinn því þetta er mun betri lykt en venjulega þegar kalt er í veðri og kemur manni í örlítið jólaskap:=)

Séð niður að gömlu höfn þar sem pakkhúsin standa á árbakkanum.

Fullt tungl ber við Kristjansten virkið.

Áin Nið silast letilega í hlykkjum í gegnum bæinn.

Dæmigerð mynd úr háskólahverfinu. Sannkallað augnakonfekt þessi gömlu norsku timburhús.

Séð yfir Neðra-Bakklandið og í átt að Bybrua og Frúarkirkjunni.

Niðarosdomen og erkibiskupskastalinn.

Litli kósí stúdentagarðurinn minn.

fimmtudagur, 16. nóvember 2006

Fyrsta hreinálið framleitt

Jájá ég veit að ég er búinn að vera latur að blogga og eftir miklar kvartanir upp á síðkastið þá ákvað nú bara að láta vita af því að ég er enn á lífi. Þannig að smá yfirlit yfir hvað hefur gerst frá síðasta bloggi.

1. Ferðalög: Ég er búinn að fljúga 19 flugferðir frá síðasta bloggi og m.a. búinn að fara til Ísafjarðar, Akureyrar, Egilsstaða, Boston, Montréal, Minneapolis, Chicago, Osló og Trodhjem.

2. Góðar stundir á Íslandi síðasta sumar með fjölskyldu og vinum og má þar nefna 5 ára Jubileum í MA og brúðkaup á Þingeyri ásamt Verzlunarmannahelgi á Akureyri.

3. Tveir nýjir einstaklingar fæddust inn í vinahópinn. Heiko skólafélagi minn hér í NTNU og Charlotte kona hans eignuðust lítinn strák í júní og heitir hann Johannes. Svo fæddist lítill prins hinum nýgiftu Ilmi og Jóni Atla núna í október og heitir hann Jóhann Ási. Eins og vænta má þá er mikil hamingja á þessum bæjum:)

4. Vinna fyrir Alcoa-Fjarðaál var lærdómsrík og kynntist ég mörgu nýju fólki. Ég dvaldist um tíma í Québec í Kanada og kynnti mér starfsemi hinnar glæsulegu Aluminerie de Deschambault verksmiðju, núverandi flaggskips Alcoa samsteypunnar. Einnig dvaldi ég í Chicago við prófanir á stýrikerfum kerskálanna á Reyðarfirði. Svo má ekki gleyma því að ég bjó í þrjár vikur austur á fjörðum og var fulltrúi míns teymis í Alcoa við eftirlit á bakskautasmíði fyrir kerskálana.

5. Aftur til Þrándheims:) Ný íbúð á besta stað í borginni og ekkert fólk til að "bögga" mig þar sem ég bý nú alveg einn. IKEA er náttúrulega alger "life saviour" þegar kemur að að innrétta nýja íbúð. Einnig hef ég kynnst mörgu fólki við vinnu mína í vetur og fleiri Norðmönnum en í fyrra þar sem ég er nú í rannsóknargrúppu með þremur öðrum norskum nemendum.

6. Svo er það rannsóknastofan. Ég hef alveg fundið vísindamanninn í sjálfum mér og hef eitt löngum stundum á "labinu" mínu sem kallast ELECTROLYSEHALLEN upp á norsku. Á þessari mögnuðu tilraunastofu keyrum við lítil rafgreiningarker og framleiðum málma með mismunandi aðferðum. Ég hef einbeitt mér að nýjum framleiðsluferli fyrir ál sem fundinn var upp í Cambrigde í Englandi fyrir nokkrum árum en var hugsaður til framleiðslu á títaníum. Hugmyndin byggist á því að afoxa áloxíð með beinum hætti á bakskauti með Ca+ jónum í CaCl2 raflausn. Álið situr eftir á bakskautinu en súrefnisatómin hvarfast við Ca+ jónina og flytjast burt og oxast svo aftur á forskautinu.
Ég hef reynt mismunandi uppsetningar á tilrauninni og í síðustu viku tókst mér að ná markmiði mínu fyrir þessa önn, þ.e. að framleiða hreinál með þessari nýju aðferð. Þessar fallegu myndir hér að neðan eru teknar í rafeindasmásjá (SE electron) og sýna áldropa sem ég framleiddi. Þannig að við Prófessor Geir Martin gætum kallað þessa aðferð Haarberg-Einarsson deoxidation process for aluminium oxide.


Hér sjást tveir minni dropar sem hafa verið að sameinast einum stærri þegar hitastigið fór niðurfyrir bræðslumark áls (660 °C)

Þessi dropi minnir nú bara á tunglið sjálft

miðvikudagur, 24. maí 2006

Sá á kvölina sem flyst á mölina

Ég þarf að velja mér 22.5 punkta "alvöru" rannsóknarverkefni fyrir næstu önn sem verður unnið í náinni samvinnu við prófessor og hugsanlega rannsóknastofnunina SINTEF eða einhverja aðra aðila. Það sem kemur helst til greina hjá mér eru eftirfarandi titlar:

1. Hot Pressing of TiB2 Inert Cathodes for Aluminium Electrolysis. Professor Tor Grande (gríðarlega virtur prófessor sem hefur samið margar bækur um varmafræði og fasalínurit í ólífrænni efnafræði)

2. Electrodeoxidation of Solid Al2O3 in Molten CaCl2 Based Electrolytes to produce Aluminium. Professor Geir Martin Haarberg (einn af gömlu lávörðunum og einn sá fremsti í rafgreiningu)

3. High Pressure Torsion and Cryogenic Properties of Nanostructured Aluminium. Professor Hans Jörgen Roven (sérfræðingur í mechanical properties)

Svo standa til boða 11 önnur verkefni sem gætu komið til greina. Þar má meðal annars finna sjálfan riddarann, Sir Harald A. Øye, sem er heiðursprófessor við skólann og án efa einn merkilegasti vísindamaður á sviði álframleiðslu á síðari tímum.

Ég kasta örugglega bara upp á þetta:)

föstudagur, 19. maí 2006

Ekkert Júróvísjon-teiti á laugardag:/

Jeg gaf mér tíma í gær frá próflestrinum til að horfa á okkar frík númer eitt, Silvíu Night. Ég verð nú bara að segja það að mér fannst Silvía bara miklu flottari en flest af hinum atriðunum, kannski að undanskildum Finnunum sem eru bara alger snilld. Ég átti kost á því sem "Norðmaður" að greiða dívunni okkar atkvæði og gerði það að sjálfsögðu. Það virðist þó hafa dugað skammt gegnt milljónaþjóðum og því varð niðurstaðan sú að fjölmennustu þjóðirnar komust allar áfram. Það virðist skipta litlu máli í þessari keppni eins og venjulega hvort lög séu góð eða slæm, þetta er bara pólitík:(

Það lítur því út fyrir bókalestur á laugardagskveldið en ég mun nú styðja mitt "annað land" Noreg og svo hið frábæra framtak Finna. Skemmtið ykkur vel og sjáumst eftir tvær:)

sunnudagur, 23. apríl 2006

Siggi's Laboratory

Þar sem ég er búinn að "búa" á tilraunastofinni frá því ég kom aftur út til Noregs, þá er vel við hæfi að sýna nokkrar myndir af vettvangi. Við Heiko Gaertner félagi minn erum að vinna að nokkuð viðamikilli rannsókn á skriði (e. creep) í grafít katóðum undir mismunandi þrýstispennu, 5-25 MPa. Við notumst við háhitaofn og líkjum eftir þeim rafgreiningarferli sem fram fer í rafgreiningarkerjum í iðnaðinum og erum því að vinna við um 1000 °C. Við notum svo tölvustrýrðan spennuprófunarbúnað til að byggja upp þrýsting á katóðuna og mælum skriðið með mjög nákvæmum mælitækjum. Áhugavert ekki satt?

Að forrita stýringu fyrir þrýstispennuna

Heiko að vinna við undirbúning tilraunarinnar

Hér má sjá glóandi raflausnina eftir að ofninn var opnaður

Það er nú svosem ekki mikið að frétta héðan úr Noregi. Vorið er komið og veðrið hefur verið fínt undanfarna daga. Í gær var mikill partídagur hjá útskriftarnemum framhaldsskólanna um allt landið (einskonar dimissio) og ég held að hinar frægu rútuferðir þeirra muni hefjast núna í vikunni og munu taka nokkrar vikur og eru í mikilli óþökk norskra foreldra og stjórnvalda:/
Ég reikna með að það verði einhver smá bið í að ég fái nýju íbúðina mína og spurning hvort ég fái hana nokkuð fyrr en í ágúst. En það skiptir nú ekki öllu máli því ég mun eyða næstu vikum við að klára tilraunir og skýrslur áður en kemur að prófunum mínum tveimur í lok maí.
Læt heyra í mér flótlega aftur:)

miðvikudagur, 5. apríl 2006

Ég er á leiðinni...

Í ósögðum fréttum er það helst að ég verð á Íslandi á morgun. Hannes er búinn að plana dagskrá fyrir fyrstu helgina heima og því er engu að kvíða. Idolparí hjá Lovísu á föstudaginn lofar góðu og ekki seinna vænna að koma sér inn í íslenska idolið, hef ekki einu sinni hugmynd um hvað það eru margir eftir:D

Ciao þar til síðar.

mánudagur, 3. apríl 2006

Kvart-öldinni náð

Tíminn líður, trúðu mér. Ég uppgötvaði það að aldarfjórðungur er í dag liðinn frá fæðingu minni í þennan heim:) Það er nefnilega eins og glöggir menn hafa tekið eftir 03.04.06. sem ku jú vera minn ástkæri og ylhýri afmælisdagur. Ekki það að ég hafi gert mikið úr honum frá því fyrir fermingu:/
Ég mun halda innflutnings- og afmælissamkundu hér í Noregi þegar ég fæ nýju íbúðina mína, sem verður vonandi fljótlega. Dagurinn verður því bara að líða án flugelda og glamúrs en ég mun hafa smá kökuboð fyrir skólafélagana niðri á kampus.
Njótið þessa góða dags:)

föstudagur, 24. mars 2006

Hvaða skrímsli er þetta?

Já það er sko ýmislegt sem leynist í örheimi smásjánna. Þessi mynd er af Sodium oxyde- eða Alumina ögn í stálsýni sem ég var að rannsaka í gær og lögunin og stærðin eru órúleg, næstum 0,2 mm í radíus. Nokkuð sem gæti validið stórslysum ef slíkt stál yrði notað í mannvirki. Mér finnst nú reyndar þessi mynd minna frekar á einhverja pöddu:)

þriðjudagur, 21. mars 2006

Brá mér í stórborgarferð um helgina

Við Hannes ákváðum með litlum fyrirvara að skella okkur til Köben um síðustu helgi og hitta þar gamla og góða vini. Við dvöldumst hjá hinu frábæra ektepari Óla Hauki og Láru Kristínu í frábæru yfirlæti og kann ég þeim bestu þakkir fyrir frábæra móttöku. Þar sem ég stoppaði aðeins í rúma tvo sórlarhringa í hinni fornu höfuðborg okkar, þá gafst nú ekki tími til að hitta alla þá sem ég þekki á þessum slóðum og skoða alla túristastaðina, en það varð nú samt bara ótrlúlega mikið úr þessu og ferðin í Christianiu er sérstaklega eftirminnileg og ótrúlegt að slíkur staður skuli fyrirfinnast í borg eins og Köben. Eftir næstum 5 tíma seinkun á fluginu mínu heim til Trondheim í gær þá komst ég loksins á leiðarenda og er nú að jafna mig eftir 10 tíma vinnudag með því að drekka ódýrt danskt öl;)

Að spóka mig á Nyhavn

Í fallegu umhverfi við litlu hafmeyjuna. Gaman að sjá þessa spúandi kolareykháfa í baksín;)

laugardagur, 4. mars 2006

...ef ég ætti úti kindur, þá myndi ég taka þær allar inn...

Já það hafa sko verið sannkallaðar frosthörkur hér í Noregi undanfarna daga. Hér er allt á bólakafi í snjó og miklar stillur og sólskin og stjörnubjartar frostanætur, semsé kjöraðstæður til stjörnuskoðunar. Norðurljós eru þó fátíðari hér heldur en heima og má því kenna um að Þrándheimur liggur á breiddargráðu rétta sunnan við syðstu annes Íslands.

Noregur er ennþá í sárum eftir miklar hrakfarir norskra skíðamanna á ólympíuleikunum í Torinó á Ítalíu. Fór þar saman mikill klaufaskapur og óheppni og var uppskeran með því rýrara sem þeir hafa þurft að upplifa, ca. 20 verðlaun og þar af aðeins tvenn gullverðlaun. Því er svo bætt við að Norðmenn hafi átt flest fjórðu sætin. Hehe segi ég nú bara, gildir ekki ennþá orðtakið: "winner takes it all"?
Og til að núa salti í sárin þá var velgengni Svía með ólíkindum, en skv. norskum fjölmiðlum er það víst því að þakka að Svíar voru með svo marga norska þjálfara. Greinilegt var þegar maður horfði á sænsku sjónvarpsstöðvarnar að sigurganga Svía var ennþá sætari í ljósi ófara Norðmanna. Skemmtilega mikill rígur á milli þessara frændþjóða.
Fólki hér finnst mjög skrítið að við Íslendingar skulum ekki eiga fleira (maður ætti kannski að segja eitthvað) afreksfólk í skíðaíþróttum og ég er nú eiginlega alveg sammála. Af hverju erum við bara ánægð ef okkar fólk kemst niður brekkurnar án þess að detta? Einhver hefð sem Kiddi Bubba setti hérna um árið?

Ég held að stærstu fréttirnar frá Íslandi í vikunni hafi nú verið sigur MA á MR í Gettu betur í fyrsta sinn í sögunni. Ég held ég verði nú að nota fleyg orð Hjálmars vinar míns frá því um árið og segja að við séum nú á "Toppi Gettu betursins" (þú leiðréttir mig ef þetta er ekki rétt haft eftir Hjálmar:)).
Ragga systir, hvað er þetta með MR og Gettur betur eftir að þú byrjaðir þarna? Ég á nú eftir að geta núið þér þessu um nasir í fjölskylduboðum framtíðarinna;)

NB! Nýjar myndir verða hér með settar undir tengilinn: "Nýjar myndir", mjög frumlegt ekki satt? Þar má m.a. finna myndir frá þorrblóti Íslendingafélagsins í Þrándheimi.

laugardagur, 18. febrúar 2006

Þorrablót - festival (in english)

We Icelanders are the heir of viking tribe that escaped the dominance of King Harald Fair Hair in Norway and settled down in the island of Iceland around the year 870 A.D..It was tough to survive in Iceland for all these years and we had to get used to unfair natural disasters, like volcanic eruptions inside towns:
Where the sign of God was the only thing the lava didn´t destroy.
And earthquakes and floods are part of our normal day life:)
Therefor we needed some schnaps that suited the life in this challenging environment. We invented the schnaps Brennivín. It's taste is so awful that it is called: "Black death" by foreigners:
And as the vikings in the old days, we stick to our old traditional food in the Þorrablót-festival. We eat dried fish, rotten shark, smoked lamb, rams testicles, sheeps heads and all kinds of rotten and sour food:/
So here you can see how this looks like:

Icelandic:
Ég þurfti að setja inn nokkrar myndir fyrir þorrablótið í kvöld. Erlendir vinir mínir eru nokkuð forvitnir að sjá hvernig maturinn lítur út eftir þessar hrikalegu sögur sem ég var búinn að segja þeim:)

sunnudagur, 12. febrúar 2006

Á skíðum skemmt' ég mér, trallallala

Það eina sem gert er í Noregi þessa dagana er að vera á skíðum eða að horfa á skíði í sjónvarpinu. Ég gat nú ekki annað en smitast af þessari bakteríu þeirra og skellti mér því á skíðanámskeið og fyrsta kennslustundin var í dag. Við fórum upp í Bymarka og gengum þar um fjöllin í um 3 tíma. Alger snilld og veðrið var eins og best verður á kosið. Einn prófessorinn minn sagði mér að það væri alveg hægt að loka háskólanum á meðan vetrarólympíuleikarnir standa yfir. Allir fyrirlestrasalir eru tómir þegar verið er að keppa og þetta er sko miklu meira en keppni fyrir Norðmennina. Þeir voru t.d. að vinna gull og brons í skíðastökki í kvöld og það ríkir sannkölluð þjóðhátíðarstemming vegna þess, sérstaklega eftir vonbrigðin með skíðagöngu karla og kvenna þar sem örugg gullverðlaun í báðum greinum runnu þeim úr greipum vegna matareytrunar og brotins skíðis:/
Ég læt hér fylgja með nokkrar myndir frá skíðatúrnum:Skíðakennarinn Lena kennir okkur gömlu trikkin

Við Heiko vorum bestir í hópnum, enda búnir að vera að æfa okkur að undanförnu:)

Rjómablíða í Bymarka (ísl. Bæjarmörk, útivistarsvæði í Trondheim)

Tilahun, skólafélagi frá Eþjópíu kunni vel við sig á gönguskíðunum, enda Eþjópíumenn frægir hlauparar og kunna vel við sig í þunnu fjallalofti

föstudagur, 10. febrúar 2006

Er Silvía Nótt málið?

Ég er nú ekki mikill aðdáandi EuroVision Song Contest og hef verið þeirrar skoðunar að RÚV ætti frekar að verja fjármunum til að halda árlega söngkeppni á Íslandi. En undankeppnin í ár hefur svo sannarlega slegið í gegn og ég verð að viðurkenna að ég horfði á síðasta þátt í beinni útsendingu á netinu og skemmti mér vel. Ísland er alveg fáránlega lítið. Í þessum þætti var Kiddi Sigmars mágur ömmu að spila á trompet í lagi Harðar Ólafssonar, Raggi Ólafs sem söng með mér í Töfraflautunni í fyrra (sem Papagenó) var bakraddasöngvari í lagi Örlygs Smára og Erna Hrönn Ólafs. MA vinnkona og ofursöngkona var bakraddasöngkona í lagi Sveins Rúnars og Birgittu Haukdal.

Það verður nú ekki um það deilt að hápunktur kvöldsins var framkoma leikkonunnar Ágústu Evu í hlutverkinu Silvía Nótt. Hvað er málið með þessa manneskju. Ég get ekki annað en dáðst af leikhæfileikum þessarar stelpu að geta leikið svona ömurlega pirrandi persónu. Ég hef haft lúmskt gaman af þessum karakter frá byrjun, m.a. eftir frægt viðtal við Geirmund Valtýrs. á Króknum í fyrra. Fyrst við erum á annað borð að taka þátt í þessum EuroVision pakka, þá finnst mér alveg eins gott að senda Silvíu í lokakeppnina. Ég myndi allavega horfa á það show:)

Svo er lagið bara býsna gott og bara merkilega vel flutt. Ég var einmitt að grúska á tónlistarsíðu í gær vegna þorrablótskórsins okkar í Íslendingafélaginu í Þrándheimi og þá rakst ég á lagið "Til hamingju Ísland" eftir Þorvald Bjarna með gripum og öllu. Verður örugglega vinsælt í partíum á næstunni.
Þar sem ég verð ekki á Íslandi á laugardaginn þá get ég ekki kosið, en mitt atkvæði færi til Silvíu, bara til að hrista aðeisn upp í þessari EuroVision hefð okkar:)

Snilldar texti:

Til hamingju Ísland


E F# G A C A G E




Oh cool!




E F# G A C A G E











E E F# G

Hey þú ógesslega töff

A C A

ég er að tala við þig

G E

Ég er Silvía Night

E F# G A
shinin’ in the light


C A G F#
Ég veit þú þráir mig




F#

Born in Reykjavík,

F# Ab A B
hæfileika
rík,

B C# D E
ekkert landsbyggðarfrík




E F# G E
Ég veit ég vinn fockings úrslitin
öll hin lögin hafa tapað


E A E/Ab F#m

Til hamingju Ísland - með að ég fæddist hér

D Bm D
Ég Silvía Nótt og þið haldið með mér

E Bm A E/Ab F#m

Eurovision-nation fær sko flog er ég kem

D Bm D
Ég er fædd til að vinn’etta tremma í hel

E D E

(Töff töff töff)


E F# G A C A G E
o.s.frv.

fimmtudagur, 9. febrúar 2006

Merktur maður

Já ég verð víst að svara eftirfarandi spurningalista eftir að Ásdís Kjalvör merkti mig:)

Fjögur störf sem ég hef gegnt:

*Hreppstjóri á heimavist MA (fékk máltíð á Greifanum í laun)
*Trjágróðursetning á útisvistarsvæðum Sauðárkróks
*Móttökutöffari í rækjuvinnslunni á Húsavík
*Ýmis störf hjá ISAL í Straumsvík, m.a. á 35 tonna vinnuvélum

Fjórar kvikmyndir sem ég get horft á aftur og aftur:

*The Godfather part I-III
*Braveheart
*2001: A Space Oddisey
*Monty Python and the Holy Grail (ég er þó ekki alveg eins forfallinn eins og Fjölli)

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

*Sauðárkrókur
*Akureyri
*Kópavogur
*Trondheim

Fjórir sjónvarpsþættir sem ég dýrka að horfa á:

*Fastir liðir eins og venjulega
*Línan
*Cheers
*Klaufabárðarnir

Fjórar vefsíður sem ég heimsæki daglega:

*www.ntnu.no
*www.mbl.is
*www.ruv.is
*www.teamtalk.com

Fjórir af mínum uppáhaldsréttum/mat:

*Heimatilbúin sviðasulta með laufabrauði að norðlenskum hætti
*Lamb (margir möguleikar)
*Svínahamborgarhryggur með tilheyrandi meðlæti
*Ýsa í raspi (eins og svo oft hefur komið fram)

Fjórir staðir sem ég vildi frekar vera á núna:

*Ísland
*Suðræn sólarströnd
*Tonga í kyrrahafi
*San Fransisco

Fjórir bloggarar sem ég vil merkja mér..

*Hr. Nesi
*Ilmur
*Lovísa
*Fjölli

sunnudagur, 5. febrúar 2006

Veturinn kominn aftur:)

Eftir blauta og votveðrasama tíð að undanförnu hefur vetur konungur gengið í garð að nýju hér í Þrændarlögum og snjónum hefur kyngt niður um helgina. Til að mynda var -33 °C í Finnmörku í Norður-Noregi síðustu nótt. Ég held að menn hérna hafi verið farnir að dansa "snjódansa", svo mikið var vatnsveðrið hérna í síðustu viku. Að vísu hafði þetta nú ekki mikil áhrif á lífið hérna í Þrándheimi, en í bæjum hérna fyrir norðan hreinlega flutu sum húsin af grunnunum og brýr og vegir skemmdust talsvert.

Nú kætast Nojararnir og horfa hýru auga á allan þennan snjó sem hægt er að nota til skíðaiðkunar. Ég hef einnig verið að bíða eftir snjónum því ég er að fara á námskeið í notkun gönguskíða. Alþjóðaskrifstofan bauð erlendu nemunum uppá þetta námskeið og leigði okkur skíði gegn vægu gjaldi. Í kvöld gat ég svo bara ekki staðið á mér lengur og ákvað að halda í jómfrúarferðina í nýju flottu Telemark skíðunum. Eftir nokkuð basl við að koma þessu öllu saman á réttan hátt þá renndi ég mér af stað og viti menn, ég bara sveif áfram eins og ég hefði fæðst á svona skíðum. Maður á greinilega ekki ættir sínar að rekja til Tröllaskagans og Vestfjarða fyrir ekki neitt:)
Ég hlakka því mikið til að fara með hinum erlendu nemunum upp á fjöll ca. 6 skipti í vetur og ganga um barrskóga Skandinavíu á skíðum.

Það er ekki um annað talað í Noregi þessa dagana en þessar skopmyndir af Múhameð spámanni í Jylandsposten og Magazin. Norski fáninn er brenndur vítt og breitt um Mið-Austurlönd og það er allt að fara úr límingunum þarna suðurfrá. Það er geinilegt af þessu að heimsfriðurinn stendur valtari fótum heldur en maður hefði haldið og lönd eins og Noregur og Danmörk sem hafa látið mest allra landa fé af hendi til þróunaraðstoðar í þessum arabalöndum og verið í fararbroddi friðarumleitana fyrir botni Miðjarðarhafs þurfa nú að súpa seyðið af því að búa við tjáningarfrelsi. Vandamálið er held ég að fólk í þessum suðlægu löndum er ekki vant því að sjá skopmyndaformið notað í fréttaflutningi. Við þurfum að senda SIGMUND til þeirra til að útskýra hlutverk skopmynd. Það er nú allt í lagi að hafa smá húmor fyrir sjálfum sér og samfélagi sínu?

Það verður gaman að sjá Silvíu Nótt taka EuroVision í ár...

mánudagur, 23. janúar 2006

Kominn heim úr kojunni

Ég brá mér af bæ yfir helgina í hópi góðra vina og við eyddum laugardagsnóttinni við arineld í Agdenes koju sem stendur við afskekkta strönd í minni Þrándheimsfjarðar. Veðrið hafði verið frekar leiðinlegt alla síðustu viku en það rættist úr því á laugardeginum og þá héldum við á stað í þennan leiðangur. Við borðuðum grillað nautakjöt með tilheyrandi meðlæti að hætti Jónasar og svo lét ég útlendingana prófa íslenskan harðfisk, sem féll reyndar í misgrýttan jarðveg. Segja má að þetta hafi verið lokapunkturinn á dvöl Magneu og Jónasar hér í Noregi því þau munu halda til Nýja Sjálands í vikunni og dvelja þar í hálft ár og verður þeirra áræðanlega saknað héðan. Eins og sjá má á myndunum þá var svona frekar napurt í Skandinavíu þessa annars ágætu vetrarhelgi...

Hjartardýr eru víst algeng á þessum slóðum

Hér sést Agdenes kojan. Nokkuð kósí kofi en án allra þæginda, eins og Nojararnir vilja hafa það:)

Klettótt landslag með litlum sveitabýlum og sjávarþorpum

Í göngutúr í köldu janúarveðri

Litla vatnið og stóra vatnið séð frá klettinum góða

mánudagur, 16. janúar 2006

Aftur í Noregi:)

Jæja nú gilda engar afsakanir lengur, ég verð að halda áfram að blogg eftir þetta ágæta jóafrí sem leið reyndar alltof hratt:/ Hér er allt komið á fulla ferð á nýjan leik og mér lýst bara nokkuð vel á nýja önn.
Ég tek kúrsa sem heita Hreinsun og endurvinnslu (Refining and recycling) og Eldföst efni (Refractories). Svo verð ég í rannsóknarvinnu á tilraunastofunni þar sem viðfangsefnið er hegðun efna við hátt hitastig (High temperature project work). Að lokum tek ég svo þátt í verkefni sem heitir Expert in teams og verð ég í því alla miðvikudaga frá 9-16. Þetta verður viðfangsefni þar sem þverfaglegir hópar vinna við að leysa ákveðin úrlausnarefni úti í fyrirtækjum. Við verðum þar í samstarfi við norsku fyrirtækin Hydro og Elkem.

Síðusta helgi var tekin með trompi og haldið út bæði föstudags- og laugardagskvöld í heimapartý hjá vinum. Svo fór ég í bíó í gærkvöldi og sá hina klassísku King kong ásamt hinum nýja norska meðleigjanda mínum.

Ykkur til gamans sem hafið áhuga á að sjá myndir héðan frá Þrándheimi þá set ég hér smá link(rauðu stafirnir hér fyrir neðan) með ca. 10 mínútna (túrista) myndbandi um borgina. Þarna sést meðal annars flott loftmynd af Glöshaugen kampusnum hér við NTNU og einnig frægt mark sem Rosenborg skoraði gegn Arsenal í Meistaradeild Evrópu hér á Lerkendal vellinum fyrir tveimur árum
Myndband-Trondheim