Við Hannes ákváðum með litlum fyrirvara að skella okkur til Köben um síðustu helgi og hitta þar gamla og góða vini. Við dvöldumst hjá hinu frábæra ektepari Óla Hauki og Láru Kristínu í frábæru yfirlæti og kann ég þeim bestu þakkir fyrir frábæra móttöku. Þar sem ég stoppaði aðeins í rúma tvo sórlarhringa í hinni fornu höfuðborg okkar, þá gafst nú ekki tími til að hitta alla þá sem ég þekki á þessum slóðum og skoða alla túristastaðina, en það varð nú samt bara ótrlúlega mikið úr þessu og ferðin í Christianiu er sérstaklega eftirminnileg og ótrúlegt að slíkur staður skuli fyrirfinnast í borg eins og Köben. Eftir næstum 5 tíma seinkun á fluginu mínu heim til Trondheim í gær þá komst ég loksins á leiðarenda og er nú að jafna mig eftir 10 tíma vinnudag með því að drekka ódýrt danskt öl;)
þriðjudagur, 21. mars 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)





4 ummæli:
Hæ Siggi þetta hefur nú verið skemmtileg ferð til Köben. Þegar ég fór til Kaupmannhafnar f 2 árum var hafmeyjan í viðgerð svo ég sá bara grjótið sem hún stendur á, þannig að ég vippaði mér bara upp á það og stillti mér upp í hafmeyju stellinguna, það var sko flott mynd sem var tekin af mér þarna.
Sæll kappi - vildi bara þakka kærlega fyrir síðast. Hlakka til næsta öllara sem væntanlega verður tekinn heima á Íslandi innan fárra daga.
Kveðja H.
Þetta hefur verið stórskemmtileg ferð hjá ykkur félögunum :) Ég heimta að fá að sötra öl með ykkur á Íslandi innan fárra daga (sbr kommentið hans Hannesar hér að ofan...)
Gott að það var gaman :) Leiðinlegt samt að hafa ekkert getað hitt ykkur.
P.s. Ég hef aldrei komið til Kristjaníu né séð litlu hafmeyjuna.
Skrifa ummæli