þriðjudagur, 29. nóvember 2005

Gúrkutíð í fréttaflutningi næstu vikurnar

Eins og tryggir lesendur hafa tekið eftir þá hef ég nú ekki verið að blogga mikið undanfarna daga og vikur. Próftíðin er formlega byrjuð og þessvegna í mörg horn að líta og mismikill tími og tilefni til að segja af sér fréttir. Ég reyni nú samt að senda frá mér stutt skilaboð en ég lofa að verða mjög duglegur þegar próftíðin verður afstaðin 19.des:)
Fyrsta prófið er semsagt miðvikudaginn 30. nóv og það er því allt á fullu þessa dagana við að reyna að halda sér vakandi yfir misskemmtilegum fræðibókum og fyrirlestrarnótum:/

Maður sér nú í fréttum frá Íslandi að það er greinilega nóg af snjónum, allavega norðanlands. Það hefði nú einhverntíman þótt saga til næsta bæjar að Tindastóll við Sauðárkrók væri helsta skíðaparadís Evrópu en það er víst raunin um þessar mundir, áfram Tindastóll.

Ég skrifa vonandi jákvæðar fréttir af mér á miðvikudaginn.
Mr. S.

þriðjudagur, 22. nóvember 2005

Spúla eða smúla?

Það er stundum gaman að velta fyrir sér málnotkun fólks og mismunandi skoðanir á því hvað er rétt og hvað er rangt. Við getum ekki komist hjá því að verða fyrir áhrifum af uppruna okkar og samfélagi og fólki í kringum okkur. Einnig tökum við oftast afstöðu eftir því sem henntar okkar stöðu hverju sinni, við erum jú bara rándýr með aðeins stærri heila en keppinautar okkar í dýraríkinu.
Hvort á maður að nota "spúla" eða "smúla"? Þetta er mikið tilfinningamál fyrir suma. Hverfjall eða Hverfell? Fer eftir því hvaðan úr Mývatnssveitinni þú ert. Orðtök eins og: "Heimskur er jafnan höfuðstór" vs. "Lítið vit í litlum kolli". Þú velur það sem henntar höfuðstærð þinni. Spurning hvort að meðalmennskan sé best í öllum málum?

Svo er alltaf þessi eilífa barátta milli kynjanna:


eða


Og svo má lýsa þróun í stjórnmálum mannkyns með þessari mynd:

Nostalgía á Gufunni í morgun

Ég var að hlusta á mjög skemmtilegt viðtal í Laufskálanum á Rás 1 í morgun við fyrrverandi meistara vorn, Magister Tryggva Gíslason, þar sem hann var að tala um fræðastörf sín í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands. Eins og við mátti búast þegar Tryggvi er annars vegar þá tefldi hann að sjálfsögðu fram einu af sínum bestu trompum frá 30 ára ferli í MA, þ.e. upptökum Didda fiðlu af söng Kórs Menntaskólans frá árunum 1999-2001.
Maður gat nú ekki annað en fyllst stoli yfir að hafa tekið þátt í þessu skemmtilega verkefni og geta heyrt eina og eina nótu í sjálfum sér. Ég læt nú fylgja með myndir frá tveimur skemmtilegum tónleikum sem ég tók þátt í með Menntaskólakórnum:
Tónleikar í Norræna húsinu í Þórshöfn í Færeyjum vorið 1999


Tónleikar í Edinborg í Skotlandi vorið 2001
(Þess má geta að á þessum tónleikum datt allur bassinn út í einum kafla í einhverju lagi sem ég man nú ekki hvað heitir, en við héldum póker-feisinu og ég held að enginn hafi tekið eftir því)

Ég held ég þurfi að ganga í einhvern af þessum fjölmörgu kórum hérna í Háskólanum til að standa undir nafni sem alvöru kórnörd;)

þriðjudagur, 15. nóvember 2005

Noregur er þarna rétt hjá Múmíndalnum

Í skemmtilegu samtali við Svanhildi systur mína (5 ára) í gær þá reitti hún af sér gullmolana eins og henni er einni lagið. Þegar ég spurði hana hvort að hún vissi hvar Siggi bróðir væri eiginlega þá var hún sko alveg með það á hreinu og hún bætti svo við þeirri skondnu landafræði-tilgátu að: Noregur væri þarna rétt hjá Múmíndalnum.
Magnaðir þessir grísir á þessum aldri, sjá heiminn svona í aðeins víðara og hugmyndaríkara samhengi en við hin:)
Þetta er nú samt ekki svo fjarri lagi því Finnland (þ.e. heimaland Tove Jansson) er náttúrulega rétt hjá Noregi og svo er landslagið hérna í Noregi nú ekkert ólíkt því sem fyrir augu ber í Múmíndalnum, djúpir og grösugir dalir með litskrúðugum timburhúsum og fullt af furðufuglum;)
Ég gæti því hugsanlega, m.v. tilgátu Svanhildar systur, verið á slóðum míns uppáhalds skáldsögukarakters Bísam rottunnar eða Hr. Bísams eins og hann kýs að láta kalla sig. Þessi magnaði heimspekingur er náttlega bara alger snilld og hann á sér svo margar samsvaranir allt í kringum okkur í svartsýnisfólki og heimsendaspámönnum.
Aldrei að vita nema maður rekist á einhvern af þessum karakterum einhvern daginn hérna í Noregi:) Yfir og út.

Í heimsókn til Norsk Hydro

Á miðviku- daginn kemur fer ég ásamt skóla- félögum mínum og prófessorum í dagsferð til Sunndal. Þar er staðsett eitt af álverum norsku ríkis- iðnaðar- samsteypunnar Norsk Hydro og munum við eyða deginum við iðnaðarnjósnir í verksmiðjunni;)
Þetta er alveg high confidential ferð og eru allar myndavélar bannaðar inn á verksmiðjusvæðinu, enda kannski ekki nema von þar sem þetta er eitt framsæknasta fyrirtæki í heiminum á sínu sviði. Þar sem ég er sá eini í hópi samnemenda minna sem hef svo mikið sem komið inn í álver þá er þetta kannski ekki svo mikil tímamótaferð en það er skiljanlega mikil eftirvænting hjá öðrum í hópnum.

Það verður gaman að sjá þessa starfsemi og fá að líta augum í fyrsta skipti þessar frægu vothreinsistöðvar sem notaðar eru til að hreinsa útblástursgasið og minnka til muna brennisteinsmengun. Þetta er því sérstaklega áhugavert fyrir mig þar sem ég var að vinna síðasta sumar við rannsóknir og endurbætur á þurrhreynsistöðvum í Straumsvík og ég ætti því að geta skotið einhverjum krassandi spurningum að tæknimönnum Hydro:)

Annars get ég ekki sagt að líf mitt sé viðburðaríkt þessa dagana, enda ræður skólinn ríkjum. Ég er búnn að vera að vinna í fyrirlestri sem ég mun halda í næstu viku um grafít- og kolefnisrafskaut í rafmagnsmálmiðnaði (Electrometallurgical Industry, vantar eitthvað gott íslenskt orð fyrir þessa grein). Ég mun m.a. fjalla um mjög áhugaverðar nýjungar við framleiðslu á Silica (veit ekki hvaða orð við notum yfir Silica í íslensku, þetta er semsagt það sem unnið er við afoxun á kísilmálmi). Iðnaðarrisinn Elkem hér í Noregi hefur semsagt verið að þróa nýja aðferð við rafgreiningu á Silica til notkunar í sólarorkusellum sem gerir sellurnar margfallt ódýrari en þær hafa verið hingað til. Þar sem markaður fyrir sólarorkusellur er í expónensíal vexti (þ.e. á mjög hraðri uppleið) um þessar mundir þá held ég að þetta gæti verið tækifæri fyrir Ísland til að byggja upp nýjan og mjög spennandi iðnað og ég held að það væri nú mjög æskilegt að við myndum reyna að horfa til fleiri iðngreina til að nýta raforku okkar heldur en bara álframleiðslu.
Jæja ég nenni ekki að pretíka meira að sinni.
Ég er nú að reyna að hlífa vinum og ættingjum við þessu tæknitali mínu en maður verður nú svona öðru hvoru að láta gamminn geysa um það sem manni finnst áhugavert.

Ég segji vonandi frá einhverju skemmtilegu síðar í vikunni eins og til dæmis jólahlaðborðinu sem ég er vonandi að fara á:)

föstudagur, 11. nóvember 2005

Búinn að eignast "barn";)

Þið þurfið nú ekkert að panika yfir þessari fyrirsögn:)

Undanfarnar vikur og mánuði hefur vantað einhvern fastapunkt í tilveruna hjá mér, einhverja svona heimilistilfinningu sem tekur þig út úr daglegu amstri skólabókanna og fær þig til að slaka á. Við Heiko, sambýlingur minn og skólafélagi, höfum rætt mikið um þetta og þar sem hann er mjög lífsreyndur og ráðagóður þá ráðlagði hann mér að fá mér eitthvern lifandi hlut til að hugsa um. Hundur, páfagaukur og fiskar komu fyrst til umræðu en það er dálítið flókið þar sem ég verð væntanlega mikið á flakki á næsta ári.
Þetta endaði með því að ég keypti mér þessa glæsilegu plöntu og gekk ég henni þegar í föður stað og má segja að við höfum strax tengst góðum böndum:) Þar sem ég er nú ekki mjög vel að mér í plöntuvísindum þá verð ég nú bara að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um hvað plantan heitir en hún samanstendur af brúnum stofni og grænum aflöngum blöðum (kannski ekki mjög ítarlegar upplýsingar). Ég þarf að senda Hákoni vini mínum og blómabónda í Hveragerði sýni til að skera úr um ættir og uppruna þessarar plöntu.

Það er því gott til þess að hugsa að hafa nú einhvern til að annast og halda á lífi. Þessi planta er því svona einskonar "barn" mitt hérna og ég er mjög stoltur af henni enda er hún mjög þæg og góð og þarf aðeins á vatni að halda til að halda sér á lífi.
Svo verður nú spennandi að sjá hvort mér tekst að halda plöntunni á lífi á meðan ég verð hér í Noregi. Ef ekki þá verð ég nú bara að fá mér kakstus;)

mánudagur, 7. nóvember 2005

Turningpoint - Risinn vaknaður

Manchester United - Chelsea: 1 - 0 Brilliant.
Rauðu djöflarnir eru komnir í gang:)
Úrslit sem allir vonuðu að yrðu staðreynd (nema kannski þessir örfáu Ch€₤$kí aðdáendur)

Vaknaður úr vetrardvala

Jæja ætli maður verði ekki að fara að láta vita af sér að nýju. Ekki gott þegar fólk er farið að kvarta yfir bloggleysi hjá manni. En það er allavega gott að það er þá einhver sem er að lesa það sem ég skrifa hér.

Síðasta vika var frekar tíðindalítil, rólegt líf og batteríin hlaðin að nýju til að takast á við síðustu þrjár vikur annarinnar. Það er komið eitthvað smá stress í suma vegna lokaprófanna í desember en ég hlakka nú bara til þeirra enda er próftíðin nú yfirleitt mjög góður tími.

Ég fór á fund hjá Íslendingafélaginu Kjartani um síðustu helgi og hitti þar vel á annan tug Íslendinga sem hér búa. Þetta var nú aðallega fólk sem tengist háskólanum, því það eru víst mun fleiri sem búa hérna, eða eins og einn stjórnarmann í félaginu orðaði það: 200 plús mínus 600 Íslendingar í Trondheim:)
Félagið er með sinn eigin kjallara hér í Móholti og þar er mjög góð aðstaða til partýhalds og er nú á dagskránni að reyna að nýta þessa aðsöðu þegar kostur gefst í vetur.
Einnig verður þorrablót í febrúar og verður það mikið pússluspil að flytja allan þorramatinn hingað til Noregs. Þar sem það er ekki hægt að senda svona varning í pósti þá verðum við að taka með okkur sviðakjamma og hákarl í handfarangri þegar við förum aftur til Noregs eftir jólafrí. Umm, það verður skemmtileg súrlykt í flugvélinni í það skiptið.

Svo er bara búið að plana brúðkaup í vinahópnum í sumar:) Gaman að því. Það er sjálf, uppáhalds vinkonan, Ilmur sem er að fara að ganga í hnapphelduna með Jóni Atla ofur Bolvíkingi og verða herlegheitin haldin á vestfjörðum næsta sumar. Það er gaman að hafa eitthvað til að hlakka til á næsta ári.

Svo er bara að hlakka til 21. desember. Þá verð ég aftur á köldum klaka og það verður alveg frábært að koma aftur heim, enda er eins og allir vita: " Ísland best í heimi".