þriðjudagur, 22. nóvember 2005

Spúla eða smúla?

Það er stundum gaman að velta fyrir sér málnotkun fólks og mismunandi skoðanir á því hvað er rétt og hvað er rangt. Við getum ekki komist hjá því að verða fyrir áhrifum af uppruna okkar og samfélagi og fólki í kringum okkur. Einnig tökum við oftast afstöðu eftir því sem henntar okkar stöðu hverju sinni, við erum jú bara rándýr með aðeins stærri heila en keppinautar okkar í dýraríkinu.
Hvort á maður að nota "spúla" eða "smúla"? Þetta er mikið tilfinningamál fyrir suma. Hverfjall eða Hverfell? Fer eftir því hvaðan úr Mývatnssveitinni þú ert. Orðtök eins og: "Heimskur er jafnan höfuðstór" vs. "Lítið vit í litlum kolli". Þú velur það sem henntar höfuðstærð þinni. Spurning hvort að meðalmennskan sé best í öllum málum?

Svo er alltaf þessi eilífa barátta milli kynjanna:


eða


Og svo má lýsa þróun í stjórnmálum mannkyns með þessari mynd:

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

HAHAHA - schnilldar myndir og góðar pælingar...

Þó kemur stærðfræðingurinn upp í mér þegar minnst er á máltækið "Heimskur jafnan höfuðstór"... þetta er nefninlega ekki tvíleiðin skv. orðanna hljóðan, þeas þeir sem eru heimskir eru höfuðstórir - en ekki er talað um að þeir sem eru höfuðstórir séu heimskir :D Ég var mjög glaður þegar ég fattaði þetta - því ég er höfuðstór maður. Og það staðfestir það sem þú sagðir siggi um að við veljum okkur það sem okkur hentar best hverju sinni ;)

Hafðu það gott,

Kvejða H.

Siggi Gústi sagði...

hehe, já Hannes þetta er rétt hjá þér svona í stærðfræðilegum skilningi. Höfuðstórir geta semsagt valið á milli þess að vera gáfaðir eða heimskir.
Svo er nú spurning hvað heimska er og spurning hvort tölfræðilegt samband er á milli heilastærðar/höfuðstærðar og gáfa? Samt skemmtilegar pælingar og alltaf gaman að ræða rökfræði á stærðfræðilegum nótum;)

Nafnlaus sagði...

"Rökfræði er ólógísk" hehehe...
Þessi umræða hér fer nú bara að minna mann á gömlu góðu dagana í vX-inu ;)

Kveðja, Hóa