Þið þurfið nú ekkert að panika yfir þessari fyrirsögn:)
Undanfarnar vikur og mánuði hefur vantað einhvern fastapunkt í tilveruna hjá mér, einhverja svona heimilistilfinningu sem tekur þig út úr daglegu amstri skólabókanna og fær þig til að slaka á. Við Heiko, sambýlingur minn og skólafélagi, höfum rætt mikið um þetta og þar sem hann er mjög lífsreyndur og ráðagóður þá ráðlagði hann mér að fá mér eitthvern lifandi hlut til að hugsa um. Hundur, páfagaukur og fiskar komu fyrst til umræðu en það er dálítið flókið þar sem ég verð væntanlega mikið á flakki á næsta ári.
Þetta endaði með því að ég keypti mér þessa glæsilegu plöntu og gekk ég henni þegar í föður stað og má segja að við höfum strax tengst góðum böndum:) Þar sem ég er nú ekki mjög vel að mér í plöntuvísindum þá verð ég nú bara að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um hvað plantan heitir en hún samanstendur af brúnum stofni og grænum aflöngum blöðum (kannski ekki mjög ítarlegar upplýsingar). Ég þarf að senda Hákoni vini mínum og blómabónda í Hveragerði sýni til að skera úr um ættir og uppruna þessarar plöntu.
Það er því gott til þess að hugsa að hafa nú einhvern til að annast og halda á lífi. Þessi planta er því svona einskonar "barn" mitt hérna og ég er mjög stoltur af henni enda er hún mjög þæg og góð og þarf aðeins á vatni að halda til að halda sér á lífi.
Svo verður nú spennandi að sjá hvort mér tekst að halda plöntunni á lífi á meðan ég verð hér í Noregi. Ef ekki þá verð ég nú bara að fá mér kakstus;)
föstudagur, 11. nóvember 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



4 ummæli:
Komdu blessaður og sæll. Ekki vissi ég að þú ættir vin hérna í Hot Springs town, eins og þeir sögðu hérna hermennirnir í gamla daga, þegar þeir komu arkandi neðan úr kampinum við Öxnalæk í Ölfusi. En það var gaman að lesa þetta með barnið (plöntuna). Þetta hlýtur að vera pálmatré eða eitthvað svoleiðis. Við amma þín vorum að koma af Bingó hjá Söngsveit Hveragerðis. Það var bara fjári gaman. Hér er yndislegt að vera. Fer í tækin og sund á hverjum degi. Það verður gaman að sjá þig um jólin. Bless og hafðu það gott. Afi, amma biður að heilsa.
Siggi þú er priceless!
p.s. það er ekkert endilega svo auðvelt að halda lífi í kaktus... Mér hefur víst tekist að þurrka einn slíkan upp :)
þú verður nú að vera duglegur að syngja fyrir plöntuna þína, svo hún vaxi vel, og svo er nú líka lámark að nefna "barnið" :)
já það er nefnilega akkúrat það sem ég var að hugsa um með plöntuna, hún hefur alltaf tíma til að hlusta á mig syngja:) Ég er búinn að skýra plöntuna Hr. Bísam eftir frægri og mjög athyglisverðri persónu úr Múmmínálfunum;)
Skrifa ummæli