sunnudagur, 5. febrúar 2006

Veturinn kominn aftur:)

Eftir blauta og votveðrasama tíð að undanförnu hefur vetur konungur gengið í garð að nýju hér í Þrændarlögum og snjónum hefur kyngt niður um helgina. Til að mynda var -33 °C í Finnmörku í Norður-Noregi síðustu nótt. Ég held að menn hérna hafi verið farnir að dansa "snjódansa", svo mikið var vatnsveðrið hérna í síðustu viku. Að vísu hafði þetta nú ekki mikil áhrif á lífið hérna í Þrándheimi, en í bæjum hérna fyrir norðan hreinlega flutu sum húsin af grunnunum og brýr og vegir skemmdust talsvert.

Nú kætast Nojararnir og horfa hýru auga á allan þennan snjó sem hægt er að nota til skíðaiðkunar. Ég hef einnig verið að bíða eftir snjónum því ég er að fara á námskeið í notkun gönguskíða. Alþjóðaskrifstofan bauð erlendu nemunum uppá þetta námskeið og leigði okkur skíði gegn vægu gjaldi. Í kvöld gat ég svo bara ekki staðið á mér lengur og ákvað að halda í jómfrúarferðina í nýju flottu Telemark skíðunum. Eftir nokkuð basl við að koma þessu öllu saman á réttan hátt þá renndi ég mér af stað og viti menn, ég bara sveif áfram eins og ég hefði fæðst á svona skíðum. Maður á greinilega ekki ættir sínar að rekja til Tröllaskagans og Vestfjarða fyrir ekki neitt:)
Ég hlakka því mikið til að fara með hinum erlendu nemunum upp á fjöll ca. 6 skipti í vetur og ganga um barrskóga Skandinavíu á skíðum.

Það er ekki um annað talað í Noregi þessa dagana en þessar skopmyndir af Múhameð spámanni í Jylandsposten og Magazin. Norski fáninn er brenndur vítt og breitt um Mið-Austurlönd og það er allt að fara úr límingunum þarna suðurfrá. Það er geinilegt af þessu að heimsfriðurinn stendur valtari fótum heldur en maður hefði haldið og lönd eins og Noregur og Danmörk sem hafa látið mest allra landa fé af hendi til þróunaraðstoðar í þessum arabalöndum og verið í fararbroddi friðarumleitana fyrir botni Miðjarðarhafs þurfa nú að súpa seyðið af því að búa við tjáningarfrelsi. Vandamálið er held ég að fólk í þessum suðlægu löndum er ekki vant því að sjá skopmyndaformið notað í fréttaflutningi. Við þurfum að senda SIGMUND til þeirra til að útskýra hlutverk skopmynd. Það er nú allt í lagi að hafa smá húmor fyrir sjálfum sér og samfélagi sínu?

Það verður gaman að sjá Silvíu Nótt taka EuroVision í ár...

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Lagið með Sylvíu Nótt er virkilega að slá í gegn. Það eru allir með það á heilanum! Kæmi mér ekki á óvart ef það næði langt í Eurovision...

Nafnlaus sagði...

Já þeir eru ekkert að skafa ofan af skoðunum sínum múslimarnir. Hefur heyrst vel í þessum slétt 200 þúsund stykkjum sem búa hér í DK. Væri gaman að sjá hvað yrði gert við okkur ef við myndum reiðast svona mikið í Sýrlandi eða Líbanon t.d. ætli maður yrði ekki bara skotinn á staðnum?

Birna Kristín sagði...

Ég hálföfunda þig af því að komast á skíði. Snjórinn nær ekkert að haldast neitt hér svo það sé hægt að opna skíðin eitthvað almennilega... Ég mæli samt með því að skellir þér á svigskíði líka ;)

Birna Kristín sagði...

Opna skíðasvæðin átti þetta að vera :D Þó það væri eflaust sniðugt að sjá einhvern reyna að opna skíði..

Siggi Gústi sagði...

já ég er þokkalega ánægður með þennan snjó. Ég held ég haldi mig þó bara á gönguskíðunum að sinni, held að þau hennti mér mjög vel (þ.e. ætla ekki að reyna að pikka upp fleiri íþróttameiðsli:/)