
Ég er nú ekki mikill aðdáandi EuroVision Song Contest og hef verið þeirrar skoðunar að RÚV ætti frekar að verja fjármunum til að halda árlega söngkeppni á Íslandi. En undankeppnin í ár hefur svo sannarlega slegið í gegn og ég verð að viðurkenna að ég horfði á síðasta þátt í beinni útsendingu á netinu og skemmti mér vel. Ísland er alveg fáránlega lítið. Í þessum þætti var Kiddi Sigmars mágur ömmu að spila á trompet í lagi Harðar Ólafssonar, Raggi Ólafs sem söng með mér í Töfraflautunni í fyrra (sem Papagenó) var bakraddasöngvari í lagi Örlygs Smára og Erna Hrönn Ólafs. MA vinnkona og ofursöngkona var bakraddasöngkona í lagi Sveins Rúnars og Birgittu Haukdal.
Það verður nú ekki um það deilt að hápunktur kvöldsins var framkoma leikkonunnar Ágústu Evu í hlutverkinu
Silvía Nótt. Hvað er málið með þessa manneskju. Ég get ekki annað en dáðst af leikhæfileikum þessarar stelpu að geta leikið svona ömurlega pirrandi persónu. Ég hef haft lúmskt gaman af þessum karakter frá byrjun, m.a. eftir frægt viðtal við Geirmund Valtýrs. á Króknum í fyrra. Fyrst við erum á annað borð að taka þátt í þessum EuroVision pakka, þá finnst mér alveg eins gott að senda Silvíu í lokakeppnina. Ég myndi allavega horfa á það show:)
Svo er lagið bara býsna gott og bara merkilega vel flutt. Ég var einmitt að grúska á tónlistarsíðu í gær vegna þorrablótskórsins okkar í Íslendingafélaginu í Þrándheimi og þá rakst ég á lagið
"Til hamingju Ísland" eftir Þorvald Bjarna með gripum og öllu. Verður örugglega vinsælt í partíum á næstunni.
Þar sem ég verð ekki á Íslandi á laugardaginn þá get ég ekki kosið, en mitt atkvæði færi til Silvíu, bara til að hrista aðeisn upp í þessari EuroVision hefð okkar:)
Snilldar texti:
Til hamingju Ísland
| E | F# | G | A | C | A | G | E |
|
|
|
| Oh cool! |
|
|
|
|
|
|
|
| E | E | F# | G |
| Hey þú | ó | gess | lega töff |
|
| A | C | A |
| ég er að tala við | þig |
|
|
|
| E | F# | G | A | | shin | in’ | in the light |
|
|
|
| C | A | G | F# | | Ég veit þú þráir mig |
|
|
|
|
|
|
|
| B | C# | D | E | | ekkert landsbyggðarfrík |
|
|
|
|
|
| E | F# | G | E | | Ég veit ég vinn fockings | úr | slit | in |
|
|
|
|
| |
| E | A | E/Ab | F#m | | |
| Til hamingju | Ísland - með að ég | fæddist | hér |
|
| |
| D | Bm | D | | | Ég Silvía | Nótt og þið | haldið með | mér |
|
| |
| E | Bm | A | E/Ab | F#m | | |
| Euro | vision- | nation fær sko | flog er ég | kem |
|
| |
| D | Bm | D | | | Ég er fædd til að | vinn’etta | tremma í | hel |
|
|
|
|
o.s.frv.
4 ummæli:
Áfram Silvía Nótt
Silvía Nótt er best að syngja í idolkeppninni og ég er alveg að verða 6 ára. Mamma fer til útlanda þegar ég er búin að vera 6 ára.Ég er alveg að byrja að sofa í mínu eigin herbergi. Við erum búin að breyta að allar bækurnar sem voru í einni hillu eru núna í andlitslitaðri gulu hillunni, allar bækurnar mínar. Ég sakna þín. Ég hlakka til þegar þú kemur heim.
Ég kann að lesa, næstum því kann ég að lesa allar bækurnar mínar ég er ótrúlega klár að lesa. Mamma sagði mér að ég þyrfti að lesa nokkrar svona bækur og reyna það þá gat ég það.
Flott hjá þér Svanhildur. Ég skal hlusta á þig lesa þegar ég kem heim til Íslands næst. Ég held með Silvíu nótt eins og þú:) Sjáumst, skilurru.
Skrifa ummæli