sunnudagur, 12. febrúar 2006
Á skíðum skemmt' ég mér, trallallala
Það eina sem gert er í Noregi þessa dagana er að vera á skíðum eða að horfa á skíði í sjónvarpinu. Ég gat nú ekki annað en smitast af þessari bakteríu þeirra og skellti mér því á skíðanámskeið og fyrsta kennslustundin var í dag. Við fórum upp í Bymarka og gengum þar um fjöllin í um 3 tíma. Alger snilld og veðrið var eins og best verður á kosið. Einn prófessorinn minn sagði mér að það væri alveg hægt að loka háskólanum á meðan vetrarólympíuleikarnir standa yfir. Allir fyrirlestrasalir eru tómir þegar verið er að keppa og þetta er sko miklu meira en keppni fyrir Norðmennina. Þeir voru t.d. að vinna gull og brons í skíðastökki í kvöld og það ríkir sannkölluð þjóðhátíðarstemming vegna þess, sérstaklega eftir vonbrigðin með skíðagöngu karla og kvenna þar sem örugg gullverðlaun í báðum greinum runnu þeim úr greipum vegna matareytrunar og brotins skíðis:/
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)







6 ummæli:
rosalega ertu duglegur að stunda það sem landið hefur uppá að bjóða..alveg twelve points frá mér fyrir það!:)
hilsen fra Aarhus
hildúa
Sælir. Það er nú ansi langt síðan ég kíkti á síðuna þína. Ég ætlaði að tékka á hvort við værum ekki að vinna saman í sumar?
Þakka fyrir nóturnar af "Til hamingju ísland". Ég og Raggi vorum að pæla í að spila það einmitt um helgina.
Kv Danni
Sæll Siggi minn,
Þú ert að verða hálfgerður Norðmaður enda líklega einhver skyldleiki eða hvað. Hef lítið fylgst með Ólympíuleikunum, það eru alltaf listskautar þegar ég opna sjónvarpið. Enginn snjór á suðurlandi þessar vikurnar, mjög léttur vetur á Laugarvatni ennþá.
Var að horfa á Good night, good luck í gær, nýja myndin sem Clooney leikstýrir um McCarthy ofsóknirnar í USA. Frábær mynd um ritfrelsið og ofstæki sem passar vel núna, Alcoa þitt verðandi fyrirtæki kom þarna við sögu í gömlum álauglýsingum frá 1950-60, skemmtileg fortíðarfíkn.
Það var í fréttunum í kvöld að tilkynnt verður 1.mars hvort álver rís fyrir norðan, mér finnst merkilegt að þú hefur búið á öllum stöðunum sem koma til greina, aldrei að vita hvort það getur skipt máli síðar, áfram Siggi Gústi og Sylvía Nótt.
Bestu kveðjur, Einar
Sæll Siggi!
Það var gaman að heyra um að þú ert farinn að stunda skíðamennsku. Ég var nú líka á skíðum í gamla daga. Fór á skíðanámskeið í Reykjavík hjá Ármanni og það var kennt á Tjörninni í Reykjavík. Það var svo mikill snjór þennan vetur og tjörnin lagði og þykkur snjór yfir öllu. Svo þegar við fluttumst til Hveragerðis þá renndum við okkur í brekkunum í Reykjafjallinu og bjuggum til stökkpall. Það var reglulega gaman. - Nú er búið að gróðursetja tré í allar brekkurnar. Þjóðargjöfin 1974 frá Norðmönnum. En hér er fullt af góðu skíðalandi allsstaðar í kring.
Ég er að reyna að koma mér upp bloggsíðu, en ég er ekki eins flínkur og þú. Þú getur fylgst með henni , þá getur þú séð hvað ég er að gera og svoleiðis.
Það á eftir að laga hana svolítið til, en ég fæ Palla bráðum til að bjarga þessu.
Slóðin er: bokband.com
Kær kveðja frá mér og ömmu.
Svanur afi
Gaman að heyra frá ykkur öllum:)
Ég reyni að svara einum í einu.
Hildur: Já maður getur nú ekki orðið svo frægur að búa í Noregi og stunda ekki skíði á meðan. Þetta er nú einu sinni Mekka skíðagöngusportsins. Þú býrð nú ekki svona vel þarna í flatlandi:/
Danni: Gaman að heyra frá þér. Ég náði ekkert að tala við þig þegar þú varst að spila á Ara í Ögri, en þið Raggi voruð flottir. Ég get því miður ekki unnið með þér í rannsóknarteymi ISAL næsta sumar. Ég verð að vinna hjá mínum framtíðar vinnuveitanda:)
Pabbi. Búinn að tala við þig í símanum.
Afi: Flott hjá þér að setja upp bloggsíðu. Hún lítur mjög vel út. Verst að þú getur ekki lengur rennt þér á skíðum í brekkunum í Hveragerði.
.. og síðan en ekki síst Ilmur: Það er sko engin afsökun að vera slæmur í hnénu, ég er nú með rifu í liðþófa en það háir mér nú ekkert á skíðunum. En veistu ég held það séu ansi litlar líkur á að ég muni keppa á ólympíuleikum. Ég fæ sko minnimáttarkennd þegar ég sé hvað Nojararnir eru miklu betri en ég í þessu sporti, en maður á aldrei að segja aldrei..
Skrifa ummæli