mánudagur, 3. apríl 2006

Kvart-öldinni náð

Tíminn líður, trúðu mér. Ég uppgötvaði það að aldarfjórðungur er í dag liðinn frá fæðingu minni í þennan heim:) Það er nefnilega eins og glöggir menn hafa tekið eftir 03.04.06. sem ku jú vera minn ástkæri og ylhýri afmælisdagur. Ekki það að ég hafi gert mikið úr honum frá því fyrir fermingu:/
Ég mun halda innflutnings- og afmælissamkundu hér í Noregi þegar ég fæ nýju íbúðina mína, sem verður vonandi fljótlega. Dagurinn verður því bara að líða án flugelda og glamúrs en ég mun hafa smá kökuboð fyrir skólafélagana niðri á kampus.
Njótið þessa góða dags:)

17 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn og nýju íbúðina, hvert er svo verið að flytja? Við bíðum spennt eftir fréttum og myndum maður.

Með afmæliskveðju,

Jónas og Magnea

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn gamli.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með aldarfjórðunginn gamli okkar. Þú ert að verða búinn að ná okkur ;)

Kveðja,
norðlendingar

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið kæri bróðir!!! heyri örugglega í þér í kvöld :)

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með afmælið:)
Afmæliskveðja, Lovísa

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn:)
Kveðja, Hóa

Siggi Gústi sagði...

Takk öllsömul fyrir kveðjurnar.
Mér þykur nú merkilegt hvað margt fólk man eftir afmælisdögum, ég sem svona rétt man eftir mínum eigin;)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn stóri strákur.
Ég skil ekkert í þessu, að þú skulir vera kallaður GAMLI, allavega finnst mér ég ekki vera gömul þó ég sé orðin 44 ára, þetta er algjört rugl í þessu fólki sem er bulla þetta.
Hlökkum til að sjá þig á fimmtudaginn.
Þín mun bíða ýsa í raspi að hætti múttu. Kveðja, mamma og fjölsk.

Nafnlaus sagði...

Til lukku með daginn. Mér finnst þú ekkert gamall enda best að vera 25!

Kveðja frá dönsku drottningafjölskyldunni,

Steinar, Unnur og Dísa

Nafnlaus sagði...

Hæ Siggi!
Fyndið að ég skuli ramba inn á síðuna þína akkúrat í dag því trúðu mér, ég er sú allra lélegasta í að muna afmælisdaga :o)

Innilega til lukku með daginn, ég vona að þú njótir hans sem best. Hlakka til að hitta þig á Akureyri í júní þegar við fögnum fimm ára stúdentsafmælinu :o)

Bestu kveðjur, Erna Hrönn

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn.
Kveðja Steini fóstri.

Nafnlaus sagði...

hæhæ og til hamingju með afmælið í gær :) vonandi hafðiru það gott og lést dekra við þig ;) við litla fjölskyldan bíðum spennt eftir 16. júní, hlakka til að hitta þig þá :) kv. Birta og bumbubúinn

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ!
Ég veit ekki alveg hvernig ég villtist hingað inn en sniðugt er það samt... Til hamingju með afmælið í gær, vonandi gastu notið dagsins út í ystu æsar:)
Bestu kveðjur, María K (frá Akureyri)

Nafnlaus sagði...

Elsku Siggi!
Til hamingju með 25 ára afmælið þó seint sé.

Afi og amma í Hveragerði

Nafnlaus sagði...

Heill og sæll Siggi minn,

Til hamingju með fjórðunginn.
Megi hinir aldarfjórðungarnir verða gæfu og gjörvilegir eins og sá fyrsti.
Sjáumst næstu daga í páskafríinu. Búið að vera geðveikt að gera.

kær kveðja frá öllum Laugarvatni, Einar

Nafnlaus sagði...

Sæll Siggi,

Til hamingju með daginn í fyrradag :)

Ég átti að skila kveðju frá honum Tuma (a.k.a. Hákoni Leifssyni) - hann var að stjórna 3 kórum um daginn (Skálholtskór og Kirkjukórum Grafarvogskirkju og Keflavíkurkirkju) ásamt hljómsveit en við vorum að frumflytja Brynjólfsmessu eftir Gunnar Þórðarson (helguð minningu Brynjólfs biskups Sveinssonar) - mikið fjör!

Þín er víst sárt saknað í bassanum í Háskólakórnum, enda ekki furða.

Vonandi sjáum við þig um páskana.

Kv. Sigrún Lilja

Siggi Gústi sagði...

Takk öll fyrir kveðjurnar:)