mánudagur, 19. desember 2005

Eksaminasjonen afslutted - jule ferien begynner

Jólafríið er byrjað:) Þrándheimur er þakinn hvítri fönn og það er ekkert smá jólalegt í bænum. Nú er bara að krossleggja fingur um að ég komist heim á miðvikudaginn, myndi ekki afbera það að verða veðurteftur hér í Norge yfir jólin.Þá er bara að njóta þess að slæpast næstu vikurnar og lifa í langþráðri afslöppun, vona að það gangi vel. Forgangsmál í Íslandi er að fara í heita potta og gufuböð og njóta okkar mögnuðu náttúruauðlinda sem ég hef saknað mikið hér í Norge.

Jæja best að fara og kaupa sér smá öl til að halda upp á próflokin, sjáumst í klakanum:)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með að vera búinn í prófum :)

Nafnlaus sagði...

HAhahahaha...það sem er aaaalveg efst á íslands lista okkar Óskars er einmitt að bruna í pottana og gufuna um leið og við lendum...mikið búin að sakna þess...enda erum við miklir pottavinir:)

Jólakveðjur og hóhóhó

Hildúa í Århus

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með próflokin:) Sjáumst á Íslandi og góða ferð heim.
Lovísa

Siggi Gústi sagði...

Takk fyrir:) Nú er ég bara að telja klukkutímana þar til ég kem heim vona að Ísland sé enn eins frábært og áður..