Ég tók þetta leiðtogapróf sem ég rakst á á bloggsíðu Gauja. Þeir reiknuðu mig út sem JFK, ekki slæmt það en ég vona nú að örlög mín og ævi verði aðeins lengri og gæfuríkari. Ég sá að Gauji var reiknaður út sem Hitler, maður þarf því greinilegar að passa sig honum í framtíðinni:)
sunnudagur, 25. september 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)




9 ummæli:
Sæll sonur sæll,
Þetta er skemmtilegt próf, ég stóðst ekki mátið og tók líka kvikmyndaprófið. Útkoman var þessi:
Leiðtogi: Abraham Lincoln (ekki slæmt)
Kvikmynd: Easy Rider (ein af mínum uppáhalds myndum)
Það er fallegt haustveður sunnan fjalla þessa dagana en vetrarlegt fyrir norðan og austan, sól á Laugarvatni síðustu daga.
Bestu kveðjur, ES
Blessaður Sigurður.
Það er sérlega gaman að lesa pistlana þína, greinilegt að það er líf og fjör í Norge.
Ég var að velta því fyrir mér hvort að ég mætti heimsækja þig við tækifæri? Það er að vísu brjálað að gera hjá mér þessa önnina en það er aldrei að vita.
Bið að heilsa, Óli
P.S. Ég þótti líkjast Gandhi mest í þessu prófi.
Sæll
Ég var víst Abraham Lincoln í þessu prófi. Er það ekki nokkuð gott? ;)
Bið innilega að heilsa kallinn minn.
Jæja ég er aftur kominn með nettengingu:)
Spurning hvað er mikið að marka þetta próf en þetta er skemmtilegt.
Óli þú ert að sjálfsögðu alltaf meira en velkominn til Norge eins og allir aðrir. Við finnum góðan tíma, kíkjum kannski upp í einhverja Hyttu? Ég sendi þér mail:)
Já teymafélagi, bið að heilsa sömu leiðis;)
Blessaður og sæll, það er nú ansi langt síðan ég kíkti á þessa síðu. Ég og Raggi erum komnir með vinnu á Ara í ögri og munum spila þar aðrahverja helgi. Þú kemur örugglega og kíkir á okkur þegar þú kemur á landið.
Ég tók þessi próf. Sem leiðtogi var ég Bill Clinton. Ég veit ekki hvort það sé gott eða slæmt en myndin var Indiana Jones og ég er frekar sáttur með það.
Ég læt þig kannski vita ef blásýra kemur upp myndasíðu...annars verðum við í bandi...
kv Daniel
hæ Siggi
Ég fór í leiðtogaprófið og fékk frábæra niðurstöðu, ég er Saddam Hussein, bless Helga frænka
hehe, já það er ekki leiðum að líkjast, Bill Clinton eða Saddam Hussein, frekar ólíkir persónuleikar:/
hehe hæ siggi ég var manaður í þetta próf en bara í 18 spurningar hehe og gettu hvað ég var móðir teresa hehehehe
Já Mummi, þú ert greinilega mjög kærleiksríkur og umhyggjusamur leiðtogi:)
Skrifa ummæli