miðvikudagur, 7. september 2005

Bubbi kóngur bara hættur

Það eru naumast stórtíðindin sem berast manni frá Íslandi í dag. Landsfaðarinn bara hættur og farinn að vinna við að telja peninga í ríkisfjárhirslunni.
Ég held að það sé nú ekki hægt annað en að hrósa Dabba kallinum fyrir góðan árangur og trygga sjórn og á hann stóran þátt í því stórgóða þjóðfélagi sem við lifum í. Annað sætið á lista Sameinuðu þjóðanna yfir lífskjör (Noregur nr.1).

Ég held að það hafi nú verið kominn tími á Davíð en hann getur vel við unað og vonandi nær hann að stjórna Seðlabankanum nógu vel til að verðbólgan verði áfram lág og að grundvöllurinn fyrir áframhaldandi velsæld, þ.e. STÖÐUGLEIKINN, verði áfram til staðar.

Þetta er samt mjög merkileg saga með þá Davíð og Geir og myndin hér að neðan sínir að þetta er ekki í fyrsta skipti sem þeir senda valdasprotann sín á milli(Davíð tók við af Geir Haarde sem Inspector Scholae í MR árið 1970).

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæhæ siggi gaman að fylgjast með þér svona skemmtileg mynd af dabba hahaha
en er það ekki dabbi kóngur sem er hættur ekki bubbi kónkur en vertu bara duglegur a ðskrifa á síðuna þína

kjær kveðja Mummi,Helga og Alli

Siggi Gústi sagði...

Já hann heitir nú Dabbi en þetta Bubba kóngs nafn festist nú víst við hann eftir eitthvað leikrit í MR í gamla dag, ég sel það ekki dýrara en ég keypti það???

Gaman að heyra í ykkur landsbyggðarfólki og ég bið að heilsa til Boló og Króksins.

Harpa Hrund sagði...

Skemmtileg mynd- ég vissi ekki að Geir hefði verið inspector
Skammarlegt af sjálfstæðismanni og fyrrum emmerringi hehe :p

Siggi Gústi sagði...

Já Harpa, ég sel þessar upplýsingar nú ekki dýrar en ég keypti þær en ég held að þar séu samt réttar ef miðað er við máltakið: "ekki lýgur Mogginn":)
Mér finnst nú ekki hægt að þú hafir ekki vitað þetta miðað við menntun og fyrri störf;)