- Þegar ég fæddist þá átti ég 2 ömmur, 2 afa, 4 langömmur, 2 langafa og 1 langalangafa
- Ég hata sveppi (en þeir eru þó ágætir á pizzum)
- Ég er með tölvuleikja-áráttu. Á enn í dag erfitt með að slíta mig frá tölvuleikjum ef ég byrja að spila þá. Besta ráðið er því að hafa þá ekki til staðar.
- Ég byrjaði starfsferil minn 3 ára (+/- 1 ár?) gamall í saltfiskverkun ömmu og afa á Ólafsfirði:) Sagan segir að ég hafi verið mjög kröfuharður starfsmaður og hafi viljað fá útborgað í beinhörðum peningum á klukkutíma fresti á meðan ég var í vinnunni (snemma beygjist krókurinn). Ekki fylgdi þó sögunni að mín helsta iðja í vinnunni var að bera sand úr sandkassanum inn á vinnslugólfið:/
- Ég elska ýsu í raspi (að hætti mömmu). Ég þarf bara að fara að læra að malla hana sjálfur:/
Jæja Ilmur, þá er það komið. Mér sýnist nú flestir virkir bloggarar sem ég þekki vera búnir að taka þátt í þessum leik þannig að ég segi bara stop hér. Enda viljum við nú ekki fara að búa til óendanlega lykkju? Vona að þið þekkið mig miklu betur nú en áður:)



2 ummæli:
Já Ilmur mín, svona var ég nú heppinn að eiga aragrúa af forfeðrum, sértaklega heppilegt á jólunum og afmælum;)
Siggi ég man ekki betur en þú hafir kroppað sveppina af síðast þegar ég sá þig borða pizzu, Þú manst í sambandi við tölvuleikina sem ég tók af þér fyrir 2 árum og faldi þangað til eftir jólapróf, en það versta var að ég mundi ekki hvar, og þeir fundust svo nokkrum vikum síðar eftir að við vorum búin að snúa öllu við í íbúðinni í leit að þessum frábæru leikjum og þú þakkaðir mér fyrir að hafa falið þá eftir á þó ég hafi þurft að draga þá af þér með töngum. Ég skal svo kenna þér að elda ýsu í raspi þegar þú kemur heim um jólin. kv. mamma.
Skrifa ummæli