Hér ber að líta mynd frá ferð erlendu M.Sc. nemanna í koparnámu- bæinn Röros sem er staðsettur í um 500 m hæð í fjöllunum hér suður af Trondheim. Eins og sjá má þá var ég eini hvíti maðurinn í ferðinni fyrir utan leiðsögukonuna og bílstjórann:/ En það er bara hið besta mál. Náman sem við skoðuðum er um 300 ára gömul og er að flatarmáli ca. 21 fótboltavöllur, þ.a. það var eins gott að villast ekki þarna inni í þessu völundarhúsi. Á einum staðnum var stór salur með sviði og sætum og þar tóku 3 strákar frá Ghana lagið með tilheyrandi hrópum og köllum og miklum rythma, minnti bara á African Sanctus tónleikana hjá Háskólakórnum síðasta vetur:)(sjá fleiri myndir frá Röros á myndasíðunni)
Glænýja sjónvarpið mitt er bilað og ég veit ekkert hvað er að gerast með það. Held að það sé eitthvað fúllt út í mig yfir því að ég nenni aldrei að horfa á það og sé í staðin alltaf að horfa á aðalkeppinaut þess, tölvuna;) Ég hafði samband við Best-Buy og þeir ætla að koma í vikunni og sækja það og láta mig fá nýtt tæki í staðin, no problemo.
Svo var ég að taka að mér að skrifa pistil í tímarit SÍNE (samband íslenskra námsmanna erlendis) um dvöl mína hérna í Noregi. Ritstjórinn er sama kona og ég fór í viðtal til þegar ég var að sækja um námsstyrkinn. Hún hafði svo samband við mig og bað mig um þetta og ég held að Trygve (my Course Coordinator) deildarformaðurinn okkar muni líka skrifa eitthvað í blaðið í tengslum við þennan pistil og segja sitt álit á þessu samstarfi skólans við íslenskan iðnað...
Svo er ég að fara í enn eitt matarboðið á föstudaginn til Alberts. Þar sem hann er Singaphur kínverji þá ætlar hann að elda eitthvað genuine kínverskt og svo verður eitthvað gott að drekka með. Alltaf gaman að smakka svona alvöru framandi mat og góð tilbreyting frá frostnu og fljótlegu tilbúnu réttunum sem ég borða alltof mikið af:/



6 ummæli:
Hæ hæ rambaði hér inn á "rúnntinum" góða. Á örugglega eftir að koma oftar inn:) Gaman að heyra fréttir af þér, gangi þér vel og takk fyrir eyjarnar;)
Kv. Inga Lára
Blessadur
Hjalmar hjer. Er ad spøgulera ad kikja a thig. Akv. hugmynd i gangi. Tengist hljomsveitinni Kaizers Orchestra? Kannastu vid tha? Voda vinsælir i Noregi. Ertu med eitthvert imeil svo jeg get sent ther post?
Kv
Hjalmar Stefan
Já Inga Lára, ég verð þá að reyna að vera duglegur að blogga áfram. Ég gleymi mér bara stundum og blogga lítið þegar eitthvað skemmtilegt er að gerast:/
Hjálmar ég sendi þér póst. Ég held að þeir selji Guinnes hérna í Trondheim þ.a. við ættum að vera í góðum málum:)
hæhæ, ég var að lesa síðuna hennar Ilmar og rakst á þína :) vissi ekki að þú værir farinn til Noregs....vissi reyndar ekki að þú værir með bloggsíðu :) en allavega, ég vildi bara kasta á þig kveðju :) gangi þér vel og sjáumst á rejúníoninu í júní :) kveðja, Birta
hehe hæhæ Siggi þetta er mummi ég hef fylgst með blogginu þínu solítið en þegar þú skrifaðir síðast þá átti mamma 41 árs afmæli hehe vildi bara segja þetta en er ekki allt gott að frétta þanna í Noregi en gott að vita að það sé allt að blesast hjá þér nema þetta stríðna sjónvarp hehe en vertu bara duglegur að blogga siggi þannig að við vitum hvað þú sért að gera þanna í Noregi en bara bæbæ mummi
Já gaman að heyra frá þér Birta:) Nei, ég er nú bara nýbyrjaður að blogga og því er þetta stundum frekar stopult hjá mér, en ég er ann að læra. Ég er búinn að taka 16. jún á næsta ári frá:)
Ilmur, hvaða vitleysa er þetta, klukka:/ Ég þarf nú að skoða þetta aðeins til að ég geri þetta rétt, kynna mér leikreglurnar. Spurning hvort ég sé sá síðasti sem er klukkaður?
Flottur Mummi, þú klikkar ekki mikið frekar en venjulega. Þú verður bara að skila síðbúinni afmæliskveðju til mömmu þinnar frá mér, ég er alveg hræðilegur í að muna þessar lykildagsetningar;) Bið að heilsa ykkur Króksurum:)
Skrifa ummæli