fimmtudagur, 22. september 2005

Þekking, tími og peningar???

Nú er ég loksins búinn að ná þessu...

Þekktar kenningar segja eftirfarandi: " Verkfræðingar og raunvísindamenn geta aldrei fengið jafn vel borgað eins og framkvæmdastjórar, sölustjórar, endurskoðendur, lögfræðingar og sérstaklega forystumenn í hugvísindum og stjórnmálum.
Nú hefur verið fundin leið til að styðja þessar kenningar með stærðfræðilegum hætti sem byggir á eftirfarandi tveimur frumforsendum:
  • Forsenda 1: Þekking er afl - (e. Knowledge is Power)
  • Forsenda 2: Tíminn er peningar - (e. Time is Money)

Verkfræðingar vita að: afl = vinna / tíma - (e. Power = Work / Time)

Því fæst: þekking = afl

sem jafngildir: þekking = vinna / tíma

og tími = peningar,

leiðir til: þekking = vinna / peningar

Ef leyst er út úr jöfnunni fyrir peninga, þá fáum við:

peningar = vinna / þekking

Útfrá þessu sést að þegar þekkingin stefnir á núll, þá nálgast peningar óendanlegt, óháð því hversu mikil vinna er unnin:)

og hana nú...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þessi útleiðsla er svo fögur að hún kemur mér til að fella tár.

Nafnlaus sagði...

Heyrðu akkúrat það sem ég er búin að vera að hugsa...

Nei annars, ég þurfti að lesa þetta í áföngum til að skilja;) hehehe

Siggi Gústi sagði...

já, þetta er allavega skemmtilegt og hughreystanda fyrir marga af okkar færustu vísindamönnum sem fá nú yfirleitt ekki mikið greitt fyrir framlag sitt til samfélagsins og tækniþróunarinnar:)

Nafnlaus sagði...

næsti hagfræðingur myndi diffra þetta þangað til hagstæð útkoma kæmi fyrir hann.