Ég sá í dag frétt á www.mbl.is um mótmæli "umhverfisverndarsinna" á fyrirhuguðum stækkunum álverana í Straumsvík og á Grundartanga. Ég var nú ekki mikið að kippa mér upp við þessa frétt en ákvað að lesa hana nánar og sjá hvað þarna færi fram.Og lesturinn var svo sannarlega athyglisverður svo að vægt sé til orða tekið. Þar mátti m.a. finna eftirfarandi:
- "...neikvæðum og heilsuspillandi áhrifum sem álbræðsla og tengd vinnsla hefur..."
- "Þessi alþjóðlega ráðstefna er að hluta til fjármögnuð með skattpeningum okkar – en Reykjavíkurborg, Iðnaðarráðuneytið, Iðntæknistofnun og Landsvirkjun eru meðal fjárstuðningsaðila og þátttakenda - þar sem Ísland er enn boðið til sölu sem ódýrt málmbræðsluland og „óæskileg sjónarmið“ ekki velkomin"
- "...Við sættum okkur ekki við að Faxaflóasvæðið verði eitt mengaðasta svæði Norður-Evrópu, en það mun verða staðreyndin ef af þessum áformum verður."
- "Einnig viljum við sýna samstöðu því fólki sem orðið hefur fyrir barðinu á siðlausum og ómannúðlegum vinnubrögðum Alcan um víða veröld; allt frá verkamönnum í Straumsvík sem samband hafa haft við okkur og lýst óviðunandi vinnuumhverfi og brotum á réttindum starfsmanna; ..."
Ég hef sjálfur starfað hjá Alcan í Straumsvík og er að sérhæfa mig í verkfræði léttmálma þessa stundina og þessvegna verð ég bara leiðrétta jafn augljósar staðreyndavillur og komu fram hér að ofan.
Á Íslandi fer aðeins fram rafgreining á bauxíti og við það verður til fljótandi ál. Rafgreining er í eðli sínu mjög mengandi ferill og gefur frá sér brennisteins- og flúorgas sem er mjög óæskilegt umhverfinu. Í Íslenskum álverum náum við að hreina um 99,9% af flúornum úr gasinu sem fer út um strompana. Ekki eru neinar reglur um brennisteinsmengun og því er hann ekki hreinsaður. Hins vegar er brennisteinsgas þess eðlis gætt að það dreifist mjög hratt með vindum og því er lítil staðbundin mengun að völdum þess. Ekki er hægt að hreinsa brennisteinsgasið nema með vothreinsistöðvum sem setja brenninsteinninn þá út í sjóinn og það hlýtur að vera mjög óæskilegt fyrir okkur Íslendinga að setja mengunarefni í sjóinn.
Álbræðsla er eitthvað sportorð sem sumir nota í viðtölum og blaðagreinum til að undirstrika eitthvað neikvætt. Að mér vitandi er engin álbræðsla starfandi á Íslandi og ekki stendur til að byggja neina. Álbræðsla er verksmiðja sem tekur álklumpa, t.d. gamlar bjórdósir og umbúðir, og bræðir það upp og steypir nýjar vörur. Þessi aðgerð gefur ekki frá sér nein spilliefni og er því mjög umhverfisvæn og því mætti segja að Álbræðsla sé starfsemi sem allir umhverfissinnar ættu að fagna.
Skattpeningunum okkar finnst mér dálítið fyndið í þessu samhengi. Þetta ágæta fólk hefur örugglega ekki hugmynd um hversu miklum skattpeningum eitt stykki álver skilar inn í þjóðarbúið. Sú upphæð hleypur á mörgum milljörðum á ári:)
Eitt mengaðasta svæði Evrópu. Hvaða rannsóknir sýna það? Ætli það sé þá ekki bílaumferðinni í Reykjavík að kenna frekar en iðnaðinum? Samskonar svæði og þetta er víða að finna hérna í Noregi og það er ekki að sjá að það sé nein mengun hérna. Í bænum Mosjoen sem er norður af Þrándheimi er meira að segja Söderbergálver inn í miðjum bænum (við getum nú þakkað fyrir að hafa ekki slík álver á Íslandi).
Svo get ég nú ekki annað en tekið upp hanskann fyrir minn fyrrum vinnuveitanda Alcan. Það sem ég þekki til hjá Alcan eru mikill metnaður í öryggis- og vinnuverndarmálum og fyrirmyndar framkoma við starfsfólk. Þetta sést best á því að starfsaldur í Straumsvík er með því hæsta sem gerist á Íslandi. Hversvegna ætti fólk að vinna svona lengi hjá þessu fyrirtæki ef það væri brotið á réttindum þess og vinnuaðstaðan væri óviðunandi?
Þegar ég kíkti inn á heimasíðu þessara "umhverfisverndarsinna" sá ég að þetta er einhver félagsskapur sem hefur augljóslega litla þekkingu á þeim málefnum sem mótmælt er. Mér finnst þetta mjög sorglegt að hópur sem þessi kemst upp með að nota hið almenn orð "umhverfisverndarsinnar" um gjörðir sínar. Ég skola mjólkurfernurnar heima og set þær í endurvinnslu. Ég hef aldrei átt bíl. Ég flokka ruslið sem ég sendi frá mér. Mér þykir mjög vænt um umhverfi mitt eins og líklega flestu skynsömu fólki og tel mig því til umhverfissinna. Fólk sem er á móti virkjunum og álverum getur notað miklu betri rök heldur en þessi sem komu fram í þessari grein, rök sem byggjast á réttum staðreyndum og skynsemi. Það er að sjálfsögðu gott að fólk hafi skoðanir á þessum málum, hvort sem þær byggjast á eigin hagsmunum eða tilfinningum.
Þar sem ég hef mun meiri áhyggjur af loftmengun jarðar, heldur en staðbundnum "náttúruspjöllum" á Íslandi, þá held að það sé mun umhverfisvænna að framleiða hinn græna málm(sem álið er eftir að það er búið að rafgreina það úr Bauxíti) með hreinni orku á Íslandi heldur en með olíu- eða kolaorkuverum í USA eða Kína. Auk þess er þetta auðveldasta leiðin fyrir okkur til að nýta náttúrauðlindir okkar á skynsaman hátt og afla þar með fjár til hagsbóta fyrir land og þjóð:)
The end.



5 ummæli:
Heill og sæll léttmálmsmeistari,
Ég er hjartanlega sammála þér, takk fyrir góðar ábendingar og röksemdir. Því miður er oft mjög lítið á bak við mótmæli umhverfisverndarsinna. Þeir virðast ekki skilja að álfyrirtæki á Íslandi eru græn vegna orkunnar og draga því úr loftmengun. Auk þess er álið umhverfisvænn málmur vegna léttleikans og dregur því úr orkunotkun bíla og flugvéla.
Ég sendi þér tölvupóst í dag, þú kíkir á það á milli kafla í kennslubókunum.
Bestu kveðjur, Einar Svans
Ég biðst forláts, þetta "comment" kemur þessari annars áhugaverðu færslu ekkert við...
Ég var að kíkja á myndirnar þínar, og leikurinn sem þú furðar þig á að sé ekki spilaður á Íslandi (kallar hann "að fella kónginn" eða eitthvað slíkt), er einmitt spilaður á Íslandi. Þetta mun vera hið stórskemmtilega spil sem heitir Kubb (á sænsku allavega). Það var meira að segja haldið Íslandsmeistaramót í Kubb í Borgarnesi nú í sumar:) Ég er sem sagt dyggur stuðningsmaður þessarar íþróttar;)
Gagnslausar upplýsingar? Já, það má vel vera;)
Nei svona yfirlýsingar eins og þessi þarna á morgunblaðsvefnum í gær eru nú yfirleitt ekki svara verðar vegna rökleysu og staðreyndaveilla, en stundum fær maður bara alveg nóg. Mér finnst betri rök að segja að fólki finnist sjónmengun af þessum verksmiðjum eða eitthvað sem snertir tilfinningar fólks.
Já Lovísa, þú ert að segja mér fréttir:) Ég hef aldrei orðið var við þennan leik á Ísl. Kannski að maður kaupi svona kubba og byrji að spila þetta þegar maður kemur heim, einn vinsælasti partýleikur í Norge.
Datt í hug að leiðrétta eitt, þó maður kannski vogi sér ekki í rökræður um ál við verðandi málmverkfræðinginn, á Íslandi er starfandi ein ,,álbræðsla" og heitir hún Alur álvinnsla sem að kennarinn okkar Helgi Þór og nú skólabróðir þinn stofnaði. Got you there hehe ( held ég...). Sjá
http://www.alur.is/
Kv.
Einar Eiðs.
Ok, you got me there Einar:) Ég vissi reyndar um Al álvinnslu Helga Þórs en það er nú ekki mjög stór vinnsla en þó athyglisvert framtak og góð nýsköpun. Gleymdi bara að minnast á hana þegar ég var að skrifa þetta:/
Ég vona að þetta sé ekki Alur álvinnsla sem sé svona rosalega mengandi?
Góður Einar.
Skrifa ummæli