þriðjudagur, 13. september 2005

Bloggidiblogg - Mikið að gera

Þá er best að halda áfram þar sem frá var horfið við fréttafluttnig frá Noregi. Ég hef verið vægast sagt mjög upptekinn í verkefnavinnu í skólanum undanfarna daga og var að skila af mér lausnum í dag þ.a. nú er smá stund milli stríða. Auk þess verður þessi vika frekar róleg þar sem Hr. Sörlie er ekki með fyrirlestra í Carbon tech.

Hér er það helst að frétta að ný ríkisstjórn er að taka við völdum eftir kosningarnar í gær og Stoltenberg nokkur tekur við af Bundevik. Þetta er svona álíka breyting og að Imba Sól tæki við af Dabba digra á Íslandi, s.s sami pakkinn í mismunandi sauðagærum. Norðmennirnir voru nú ekki að kippa sér mikið upp við þessar kosningar og ég var að segja mörgum þeirra fréttir af niðurstöðunum í dag eftir að hafa hlustað á GUFUNA í morgun á netinu. Fyndið að við Íslendingar vitum oft meira um innanríkismál í örðum löndum heldur en fólkið sem þar býr og hlýtur það að segja eitthvað um fréttafýsni okkar.

Ég er kominn með sjónvarp og næ með því 18 stöðvum, norskum, sænskum og enskum. Ég er að reyna sannfæra sjálfan mig um að sjónvarpið sé besta leiðin til að læra norskuna, samviskan segir að ég noti þetta sem afsökun til að horfa á sjónvarpið:/

Svo fann ég ágæta kínverska síðu þar sem ég get horft á alla helstu fótboltaleiki í Evrópu í beinni útsendingu um netið. Ágætt að þurfa ekki að fara niður í bæ á einhverja pöbba til að fylgjast með boltanum.

Ég fékk loksins langþráðan pakka frá mömmu á föstudaginn var. Í pakkanum var að finna háskólabókasafnið mitt sem ég get ekki lifað án og ég hafði miklar áhyggjur að myndi glatast á leiðinni yfir hafið. Merkilegt hvað öll vitneskja manns og kunnátta byggist upp á því að vita nákvæmlega á hvaða blaðsíðu einhver jafna er í einhverri ákveðinni bók:) Svo var ýmislegt góðgæti sem fylgdi með frá mömmu, slikkerí (mæra upp á Húsvísku), harðfiskur og vatnssuðuvélin sem ég nota til að laga te og instant kaffi.
Ég var ekkert smá glaður að fá þennan pakka og má líkja eftirvæntingunni við að sækja hann á pósthúsið við gömlu góðu jólapakkaspennuna.

Ég ætla nú að fara að malla eitthvað í mallann. Góðar stundir.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Uss það er ekkert til sem heitir "gömul jólapakkatilhlökkun", ég er allavega ennþá algjör jólajeppi;)

Og þetta með að læra norskuna af sjónvarpinu, ég pikkaði upp helling af sænsku með því að horfa á sænska sjónvarpsþætti svo þetta hlýtur að vera viðurkennd kennsluaðferð...;)

Haltu áfram að hafa það gott í Norge, hilsen Lovísa

Nafnlaus sagði...

Blössaður...

hvernig væri nú að þú sendir mér linkinn á þessa kínversku síðu? ég væri alveg til í að horfa á leikina í tölvunni :D

hafðu það gott gamli, og áfram Newcasle (því það versnar varla úr þessu ;) hehe)

Kveðja H.

Siggi Gústi sagði...

Ég veit það nú ekki Lovísa en mér finnst nú ekki jafn mikið koma til jólapakkastemningarinnar þessi árin eins og í gamla daga en jólin eru samt sem áður ennþá frábær tími til að slaka á og hitta fólk.

Hannes ég sendi póst á þig með þessu fótboltafári. Ef fleiri hafa áhuga þá hafið þið endilega samband.