sunnudagur, 4. september 2005

Gáta

Ég heyrði þessa skemmtilegu gátu í sunnudagsþætti Hemma Gunn og ætla að sjá hvort einhver sé svo gáfaður að vita svarið við þessu. Lausnarorðið er orð sem má tengja við hverja línu vísunnar:

Í orustum hér áður fyrr
oft í skýjum séður
um stássstofunnar stoltu dyr
stundum við mig lækur kveður.

(höf. Elís Kjaran frá Dýrafirði)

Þeir sem hlustuðu á Hemma mega að sjálfsögðu ekki svara.

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hmmm! Ég er nú ekki með svarið, ætlaði bara að segja þér að þú ert ofuröflugur bloggari, mjög gaman að fá alltaf nýjar fréttir þegar maður kíkir í heimsókn, takk fyrir kaffið;)

Nafnlaus sagði...

Sæll Siggi,

Skemmtileg gáta, hef ekki séð hana áður, mér datt í hug orðið ,,bogi", næ reyndar ekki alveg að tengja það við síðustu línuna en hinar þrjár fyrr.

Bestu kveðjur frá Laugarvatni, pabbi

Siggi Gústi sagði...

Þú ert nú nokkoð nálægt þessu með "bogi" en það er þó ekki alveg rétt. Fysta línan er dálítið erfið en seinustu þrjár gefa svarið nokkuð beint af augum:)

Nafnlaus sagði...

Heill og sæll,

Ég gefst ekki upp fyrr en í fulla hnefana:) mér dettur næst í hug orðið ,,röðull" , var reyndar lengi að velta fyrir mér eldi og/eða steini en röðull sameinar merkingu beggja og getur verið fjallakambur líka og kambur t.d. á járnhjálmi.

Bestu kveðjur til Þrándheims.
Einar Svans

Siggi Gústi sagði...

Jæja ég ætla ekki að sitja lengur á svarinu en lausnarorðið er: "BAKKI"

Mér finnst fyrsta línan að vísu ekki alveg augljós en hinar línurnar innihalda allar mjög beinar tengingar við bakka.

Nafnlaus sagði...

Sæll Siggi,

Mér datt í hug t.d. brandur, fleygur, nökkvi, heiður ofl. Bakki kom mér líka í hug en náði ekki að tengja hann við stássstofudyr og orustur.

Rakst á þessar gátur og læt þær fylgja með til gamans:

Kúnum gefst á nýársnótt,
nákvæmt stærðir kvarðar.
Einatt sækir að mér skjótt,
orð og hugsun varðar.

Athöfn þess sem öðrum nær.
Yfirvinnur léttasótt.
Blómið sem á grundu grær.
Gangverk sem að tifar ótt.

Kv. Sigrún Lilja

Siggi Gústi sagði...

Já, þessar gátur frá Sigrúnu eru ekki alveg augljósar en ég kem fram með tilgátu:

Kúnum gefst á nýjársnót: mannamál Lausnin ætti því að vera: MÁL eða TAL/TALA

..Yfirvinnur léttasótt.. Lausn: KLUKKAN eða TÍMINN.
Passar líka við "athöfn þess sem öðrum nær": klukka eins og í eltingaleikjum í gamla daga:)

Nafnlaus sagði...

Þú ert nú bara ansi sleipur í þessum ljóðagátum :)

MÁL er það og KLUKKA - ég var að vísu ekki með lausnina á hreinu hvað klukkuna varðar en það liggur í augum uppi.

Kveðja,

Sigrún

Nafnlaus sagði...

Er þetta ekki elgur? þeas þetta fyrsta...

það er allavegna það fyrsta sem mér kom í hug...

Kveðja Hannes