miðvikudagur, 13. desember 2006

Síðasta prófinu lokið

Ef einhverntíma er tími til að gleðjast, þá er það örugglega þegar maður lýkur sínu síðasta prófi. Hvort þetta hafi verið síðasta prófið í mínu lífi kemur í ljós síðar en ég er allavega búinn með þau sem ég tek hér í Noregi. Í morgun tók ég sumsé munnlegt próf í leskúrsunum mínum og stóð fyrir framan prófessorinn og svaraði spurningum og útskýrði ýmislegt sem tengist mínu sérsviði. Bara nokkuð afslappað og gekk bara bærilega. Það er samt svo skrýtið þegar á það ég lít að vera búinn með allt sem heitir fyrirlestrar, próf og heimadæmi.
Það verður samkoma hjá okkur nemendum á Den gode nabo í kvöld til að fagna þessum áfanga eða syrgja eftir því hvað mönnum finnst:)

Einungis 8 dagar í að ég fari út. Orðasambandið fara út merkti jafnan í fornu mál ‘fara til Íslands (frá Noregi)’ en sú merking mun dáin drottni sínum.

Á dagskrá þangað til: Skrýrsluvinna í LaTeX.

Sjáums.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Svona að gamni mínu má ég til með að óska þér til hamingju með áfangann!

Var á bloggsíðuflakki um daginn í einni af mínum próflestrarpásum ;) og datt í hug að leita uppi gamla VX böðla...og fann.

Bestu kveðjur,
Ragnheiður Busi :D

Nafnlaus sagði...

Aaaaaahhh þarna er komin útskýringin á msn-nafninu um að LaTeX sé málið;) Mér stóð eiginlega ekki alveg á sama þegar ég sá þetta hahahaha:) Sé þig vonandi í jólafríinu og til hamingju með próflokin.

Lovísa