Við international M. Sc. nemarnir héldum einn af okkar reglulegu hópfundum í morgun með Trygva Foosnæs skorarformanni og Tove Schanke kennslu-/áfangastjóra. Við létum smella þessari fínu mynd af okkur eins og sjá má hér: 
F.v. Trygve, Tove (nojarar), Heiko (Deutchland), Wang (Kína), Tilahun (Eþijópía), Yaw, Lucas, Femi (Ghana), Ronald (Uganda) og svo íslendingurinn sjálfur:)




5 ummæli:
Já þetta er mjög fjölþjóðlegt og fyrirlestrar enda studnum í einhverjum sérstökum reynslusögum frá framandi löndum. Skrautlegir þessir afríkugæjar, aðeins hressari heldur en nojararnir og mjög glaðlindir:)
Ekkert smá hvítur og ljóshærður! Maður hefði ekki haldið að þú skærir þig svona mikið úr í Noregi.
Siggi minn....nú spyr ég eins og fífl: hvað ertu eiginlega að læra? :)
Hehe, já Birta það er vona að þú spyrjir. Það mætti allavega halda að ég væri í einhverjum alþjóðasamskiptum ef marka má skólafélaga mína.
Í meistaranáminu er ég sem sagt að sérhæfa mig í verkfræði léttmálma (þ.e. ál, magnesíum og títaníum).
Þetta heitir á útlensku: Light Metals Production.
Þetta er semsagt innan þess sviðs verkfræðinnar sem kallast Materials Science and Engineering (efnisfræði) og flokkast svona mitt á milli efnaverkfræði og vélaverkfræði.
Vona að þú sért einhvers vísari:)
Já Sigrún, þú segir hvítur og ljóshærður. Það er kannski rétt lýsing miðað við skólafélagana en ég sker mig nú ekki mikið úr þegar nojararnir eru annars vegar, enda eru flesir þeirra mjög hvítir og ljóshærðir.
En ég hef margsinnis verið spurður að því hér hvort að allir á Íslandi séu hvítir og ljóshærðir. Greinilegt að sumt fólk heldur að við séum einhver hreinræktaður kynstofn þarna uppfrá:)
Skrifa ummæli