þriðjudagur, 11. október 2005

Sól og 20°C

Ég hef ekki mikinn tíma til að blogga í augnablikinu vegna anna í skólanum og ýmissa annara verka. En ég vil bara benda á að hér er allt of heitt og hitinn þessa stundina er 20°C :/ Afríkubúarnir kætast en þegar ég sé snjóinn og kuldan heima þá verð ég nú bara að segja að ég öfunda ykkur nú dálítið af kuldanum í augnablikinu, en það breytist örugglega þegar það fer að kólna hérna í vetur. Take care:)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ehhh.. Er ekki viss um að þú myndir vilja skipta. Hér er ógeðslega kalt og nokkrar gráður af þínum 20 væru eflaust vel þegnar hingað yfir hafið;)

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ mér fannst þetta krúttleg mynd ég sá þig og Hannes alveg fyrir mér í þessum stólum, sitjandi á ströndinni með bjór í hönd þetta er eitthvað svo ekta þið... hehe En allavega þá máttu vita það að það var snjór á götum úti þegar ég fór í morgun og -4 gráður. Kv. Inga Lára

Siggi Gústi sagði...

Ég verð nú reyndar að viðurkenna að myndin er ekki frá Noregi eins og glöggir lesendur hafa væntanlega gert sér grein fyrir. En í alvöru talað, ég þarf að fara í sturtu eftir hverja heimferð úr skólanum á hjólinu:/ Þeir mega sko aðeins skrúfa niður í thermostattinu þeir sem stjórna veðrinu hérna í Skandinavíu þessa dagana.

Nafnlaus sagði...

Jú jú maður svosem fattaði það að myndin væri ekki úr norge, allavega hefði ég ekki getað tekið svona mynd þegar ég var þar hehe en hún minnti mig bara óendanlega mikið á ykkur félagana hehe