Nú er að byrja mikil menningar- og listahátíð hér í Þrándheimi á morgun og verður mikið um dýrðir annað kvöld þegar hátíðin verður sett. Hátíð þessi kallast UKA (vika) og stóð upphaflega yfir í eina viku en er nú á dögum 3 til 4 vikur. Eini íslenski viðburðurinn sem ég sá í dagskránni var "hljómsveitin" Bang Gang. Maður verður nú eiginlega að skella sér og sjá Barða framkvæma einhver undur.Við Heiko tókum forskot á menningarsæluna í kvöld og héldum í Borgarleikhúsið hér í Þrándheimi og sáum leikritið Kristin Lavrandsdottir. Það var ágætur lærdómur í norskunni að fara á þetta leikrit og bara merkilegt hvað maður skildi mikið. Söguþráðurinn var byggður á frægri miðaldaskáldsögu um kvennskörunginn Kristinu og sorglega og dramatíska ævi hennar. Semsé mikil tragedía:( Ágætis tilbreyting frá bókunum og sjónvarpinu að sjá eitthvað lifandi á sviðinu. Ég stefni svo að því að fara í óperuna hérna þegar hún byrjar síðar í haust:)
Við Heiko stóðumst ekki mátið og fengum okkur en øl í hlénuÞrátt fyrir ágætis veður og nokkuð hátt hitastig undanfarnar vikur þá er haustið samt handan við hornið hér eins og annarsstaðar á norðurhvelinu. Ég var með myndavélina á mér á leiðinni úr skólanum seinnipartinn í dag og smellti nokkrum græn-gul-rauðum myndum af trjánum hér á kampusnum


Nokkuð sáttur eftir langan og strangan skóladag og mikil heilabrot:)



1 ummæli:
Sæll, þeir opnuðu síuna í skólanetinu hjá okkur svo nú get ég aftur fylgst með þér beint from heiman. Gaman að sjá þessar haustmyndir og leikhúslífið, þetta er greinilega menningarstaður enda Niðarós gömul heimsborg. Allt gott að frétta, Ragga kemur í heimsókn um helgina, ætlar líka að kíkja í Hveragerði til ömmu og afa. Siggi stormur segir að veturinn komi á mánudaginn hérna á Íslandi, úfff, manni verður bara kalt, ansi snemma á ferðinni þessi árin:(
kær kveðja, ES
Skrifa ummæli