Ég fékk kassa sendan með póstinum í gær og var kassinn merktur DnB NOR Bank ASA. Ég átti svo sem von á að fá send gögn með leiðbeiningum um notkun á heimabankanum mínum hérna í Norge en þetta var eitthvað meira og merkilegra. Þegar kassinn hafði verið opnaður kom í ljós lítill svartur plasthlutur sem minnti helst á nýtíma bíl"lykil", þ.e. plastkassi sem sendir boð til bílsins um að hann eigi að opna hurðirnar. En nei, við nánari skoðun sást að þetta var einhvernskonar PIN code tölva, dulkóðunarbúnaður sem gefur manni leyninúmerið í heimabankann í hvert skipti sem maður opnar hann. Já Nojararnir eru greinilega ekki eins auðtrúa og bláeygðir og við Íslendingar þegar kemur að að treysta rafrænum flutningum á peningum.
Ég á semsé orðið mína eigin dulkóðunarvél, sem hefur innbyggt sitt eigið dulkóðunarfylki og sér mér fyrir lausnarvigrum til að opna heimabankann:) Þetta vakti að sjálfsögðu mikinn áhuga hjá mér, enda hafði ég lært að dulkóða hjá Níelsi í Menntaskólanum hér forðum daga.
Það er gaman að bera stærð og virkni þessarar dulkóðunarvélar saman við hina frægu þýsku dulkóðunarvél Enigmu sem notuð var í síðari heimsstyrjöldinni. Rafeindatækni nútímans leysir hér af hólmi tannhjólaverk fyrri tíma og gefur mun öflugri lausn sem nánast ómögulegt er að brjóta á bak aftur af hökkurum:) Svo hefði nú verið erfitt að koma Enigmu fyrir í rassvasanum...
Mér brá nú bara þegar ég var að horfa á fréttir Stöðvar 2 í gærkveldi og sá eitthvað kunnulegt andlit, en það var eitthvað sem var ekki á sýnum stað. Logi Bergmann var að lesa fréttir á Stöð 2? Eitthvað passar ekki hérna? Ég hef greinilega verið að missa af einhverju risa Séð & heyrt skúbbi, sápuópera Loga og Svanhildar heldur greinilega áfram? Svo sá ég að Spaugstofan var að gera grín af þessu síðar um kvöldið;) Alltaf aksjón á Íslandi.



4 ummæli:
Njah! Ekkert rosa séð og heyrt skúbb, bara týpísk tilfærsla innan hins smáa íslenska fjölmiðlaheims. Logi Bergmann (sem var búinn að taka að sér að ritstýra einhverjum klukkutíma magasínþætti daglega á Rúv) sagði einfaldlega upp og réði sig til 365 miðla. Þórhallur, sem setið hefur við hlið Svanhildar í Íslandi í dag, er svo farinn yfir á Rúv og kemur til með að taka við starfi Loga Bergmanns sem umsjónarmaður þessa magasínþáttar.
Alltaf fjör á Íslandi ; )
hehe, já þetta eru ótrúleg umskipti. Greinilega mjög lítill markaður á Íslandi og ekkert of margir sem koma til greina þegar verið er að ráða fólk í sjónvarpið:/
hæhæ siggi flottur (bíllykill) öruggisbúnaður hehe en hvernig geturðu hort á stöð 2 í norge?
Það er allt hægt í netheimum Mummi. Ég get horft bæði á RÚV og St. 2 á netinu, þ.e. fréttatímana og valda þætti.
Skrifa ummæli