sunnudagur, 3. desember 2006
Haustdagur á árbakka Niðar
fimmtudagur, 16. nóvember 2006
Fyrsta hreinálið framleitt
1. Ferðalög: Ég er búinn að fljúga 19 flugferðir frá síðasta bloggi og m.a. búinn að fara til Ísafjarðar, Akureyrar, Egilsstaða, Boston, Montréal, Minneapolis, Chicago, Osló og Trodhjem.
2. Góðar stundir á Íslandi síðasta sumar með fjölskyldu og vinum og má þar nefna 5 ára Jubileum í MA og brúðkaup á Þingeyri ásamt Verzlunarmannahelgi á Akureyri.
3. Tveir nýjir einstaklingar fæddust inn í vinahópinn. Heiko skólafélagi minn hér í NTNU og Charlotte kona hans eignuðust lítinn strák í júní og heitir hann Johannes. Svo fæddist lítill prins hinum nýgiftu Ilmi og Jóni Atla núna í október og heitir hann Jóhann Ási. Eins og vænta má þá er mikil hamingja á þessum bæjum:)
4. Vinna fyrir Alcoa-Fjarðaál var lærdómsrík og kynntist ég mörgu nýju fólki. Ég dvaldist um tíma í Québec í Kanada og kynnti mér starfsemi hinnar glæsulegu Aluminerie de Deschambault verksmiðju, núverandi flaggskips Alcoa samsteypunnar. Einnig dvaldi ég í Chicago við prófanir á stýrikerfum kerskálanna á Reyðarfirði. Svo má ekki gleyma því að ég bjó í þrjár vikur austur á fjörðum og var fulltrúi míns teymis í Alcoa við eftirlit á bakskautasmíði fyrir kerskálana.
5. Aftur til Þrándheims:) Ný íbúð á besta stað í borginni og ekkert fólk til að "bögga" mig þar sem ég bý nú alveg einn. IKEA er náttúrulega alger "life saviour" þegar kemur að að innrétta nýja íbúð. Einnig hef ég kynnst mörgu fólki við vinnu mína í vetur og fleiri Norðmönnum en í fyrra þar sem ég er nú í rannsóknargrúppu með þremur öðrum norskum nemendum.
6. Svo er það rannsóknastofan. Ég hef alveg fundið vísindamanninn í sjálfum mér og hef eitt löngum stundum á "labinu" mínu sem kallast ELECTROLYSEHALLEN upp á norsku. Á þessari mögnuðu tilraunastofu keyrum við lítil rafgreiningarker og framleiðum málma með mismunandi aðferðum. Ég hef einbeitt mér að nýjum framleiðsluferli fyrir ál sem fundinn var upp í Cambrigde í Englandi fyrir nokkrum árum en var hugsaður til framleiðslu á títaníum. Hugmyndin byggist á því að afoxa áloxíð með beinum hætti á bakskauti með Ca+ jónum í CaCl2 raflausn. Álið situr eftir á bakskautinu en súrefnisatómin hvarfast við Ca+ jónina og flytjast burt og oxast svo aftur á forskautinu.
Ég hef reynt mismunandi uppsetningar á tilrauninni og í síðustu viku tókst mér að ná markmiði mínu fyrir þessa önn, þ.e. að framleiða hreinál með þessari nýju aðferð. Þessar fallegu myndir hér að neðan eru teknar í rafeindasmásjá (SE electron) og sýna áldropa sem ég framleiddi. Þannig að við Prófessor Geir Martin gætum kallað þessa aðferð Haarberg-Einarsson deoxidation process for aluminium oxide.

Hér sjást tveir minni dropar sem hafa verið að sameinast einum stærri þegar hitastigið fór niðurfyrir bræðslumark áls (660 °C)
miðvikudagur, 24. maí 2006
Sá á kvölina sem flyst á mölina
Ég þarf að velja mér 22.5 punkta "alvöru" rannsóknarverkefni fyrir næstu önn sem verður unnið í náinni samvinnu við prófessor og hugsanlega rannsóknastofnunina SINTEF eða einhverja aðra aðila. Það sem kemur helst til greina hjá mér eru eftirfarandi titlar:
1. Hot Pressing of TiB2 Inert Cathodes for Aluminium Electrolysis. Professor Tor Grande (gríðarlega virtur prófessor sem hefur samið margar bækur um varmafræði og fasalínurit í ólífrænni efnafræði)
2. Electrodeoxidation of Solid Al2O3 in Molten CaCl2 Based Electrolytes to produce Aluminium. Professor Geir Martin Haarberg (einn af gömlu lávörðunum og einn sá fremsti í rafgreiningu)
3. High Pressure Torsion and Cryogenic Properties of Nanostructured Aluminium. Professor Hans Jörgen Roven (sérfræðingur í mechanical properties)
Svo standa til boða 11 önnur verkefni sem gætu komið til greina. Þar má meðal annars finna sjálfan riddarann, Sir Harald A. Øye, sem er heiðursprófessor við skólann og án efa einn merkilegasti vísindamaður á sviði álframleiðslu á síðari tímum.
Ég kasta örugglega bara upp á þetta:)
föstudagur, 19. maí 2006
Ekkert Júróvísjon-teiti á laugardag:/
Það lítur því út fyrir bókalestur á laugardagskveldið en ég mun nú styðja mitt "annað land" Noreg og svo hið frábæra framtak Finna. Skemmtið ykkur vel og sjáumst eftir tvær:)
sunnudagur, 23. apríl 2006
Siggi's Laboratory
Að forrita stýringu fyrir þrýstispennunaÞað er nú svosem ekki mikið að frétta héðan úr Noregi. Vorið er komið og veðrið hefur verið fínt undanfarna daga. Í gær var mikill partídagur hjá útskriftarnemum framhaldsskólanna um allt landið (einskonar dimissio) og ég held að hinar frægu rútuferðir þeirra muni hefjast núna í vikunni og munu taka nokkrar vikur og eru í mikilli óþökk norskra foreldra og stjórnvalda:/
Ég reikna með að það verði einhver smá bið í að ég fái nýju íbúðina mína og spurning hvort ég fái hana nokkuð fyrr en í ágúst. En það skiptir nú ekki öllu máli því ég mun eyða næstu vikum við að klára tilraunir og skýrslur áður en kemur að prófunum mínum tveimur í lok maí.
Læt heyra í mér flótlega aftur:)
miðvikudagur, 5. apríl 2006
Ég er á leiðinni...
Ciao þar til síðar.
mánudagur, 3. apríl 2006
Kvart-öldinni náð
Tíminn líður, trúðu mér. Ég uppgötvaði það að aldarfjórðungur er í dag liðinn frá fæðingu minni í þennan heim:) Það er nefnilega eins og glöggir menn hafa tekið eftir 03.04.06. sem ku jú vera minn ástkæri og ylhýri afmælisdagur. Ekki það að ég hafi gert mikið úr honum frá því fyrir fermingu:/Ég mun halda innflutnings- og afmælissamkundu hér í Noregi þegar ég fæ nýju íbúðina mína, sem verður vonandi fljótlega. Dagurinn verður því bara að líða án flugelda og glamúrs en ég mun hafa smá kökuboð fyrir skólafélagana niðri á kampus.
Njótið þessa góða dags:)
föstudagur, 24. mars 2006
Hvaða skrímsli er þetta?
þriðjudagur, 21. mars 2006
Brá mér í stórborgarferð um helgina
laugardagur, 4. mars 2006
...ef ég ætti úti kindur, þá myndi ég taka þær allar inn...
Noregur er ennþá í sárum eftir miklar hrakfarir norskra skíðamanna á ólympíuleikunum í Torinó á Ítalíu. Fór þar saman mikill klaufaskapur og óheppni og var uppskeran með því rýrara sem þeir hafa þurft að upplifa, ca. 20 verðlaun og þar af aðeins tvenn gullverðlaun. Því er svo bætt við að Norðmenn hafi átt flest fjórðu sætin. Hehe segi ég nú bara, gildir ekki ennþá orðtakið: "winner takes it all"?
Og til að núa salti í sárin þá var velgengni Svía með ólíkindum, en skv. norskum fjölmiðlum er það víst því að þakka að Svíar voru með svo marga norska þjálfara. Greinilegt var þegar maður horfði á sænsku sjónvarpsstöðvarnar að sigurganga Svía var ennþá sætari í ljósi ófara Norðmanna. Skemmtilega mikill rígur á milli þessara frændþjóða.
Fólki hér finnst mjög skrítið að við Íslendingar skulum ekki eiga fleira (maður ætti kannski að segja eitthvað) afreksfólk í skíðaíþróttum og ég er nú eiginlega alveg sammála. Af hverju erum við bara ánægð ef okkar fólk kemst niður brekkurnar án þess að detta? Einhver hefð sem Kiddi Bubba setti hérna um árið?
Ég held að stærstu fréttirnar frá Íslandi í vikunni hafi nú verið sigur MA á MR í Gettu betur í fyrsta sinn í sögunni. Ég held ég verði nú að nota fleyg orð Hjálmars vinar míns frá því um árið og segja að við séum nú á "Toppi Gettu betursins" (þú leiðréttir mig ef þetta er ekki rétt haft eftir Hjálmar:)).
Ragga systir, hvað er þetta með MR og Gettur betur eftir að þú byrjaðir þarna? Ég á nú eftir að geta núið þér þessu um nasir í fjölskylduboðum framtíðarinna;)
NB! Nýjar myndir verða hér með settar undir tengilinn: "Nýjar myndir", mjög frumlegt ekki satt? Þar má m.a. finna myndir frá þorrblóti Íslendingafélagsins í Þrándheimi.
laugardagur, 18. febrúar 2006
Þorrablót - festival (in english)
It was tough to survive in Iceland for all these years and we had to get used to unfair natural disasters, like volcanic eruptions inside towns:
Where the sign of God was the only thing the lava didn´t destroy.
And earthquakes and floods are part of our normal day life:)
Therefor we needed some schnaps that suited the life in this challenging environment. We invented the schnaps Brennivín. It's taste is so awful that it is called: "Black death" by foreigners:
And as the vikings in the old days, we stick to our old traditional food in the Þorrablót-festival. We eat dried fish, rotten shark, smoked lamb, rams testicles, sheeps heads and all kinds of rotten and sour food:/
So here you can see how this looks like:
Icelandic:
Ég þurfti að setja inn nokkrar myndir fyrir þorrablótið í kvöld. Erlendir vinir mínir eru nokkuð forvitnir að sjá hvernig maturinn lítur út eftir þessar hrikalegu sögur sem ég var búinn að segja þeim:)
sunnudagur, 12. febrúar 2006
Á skíðum skemmt' ég mér, trallallala
föstudagur, 10. febrúar 2006
Er Silvía Nótt málið?
Ég er nú ekki mikill aðdáandi EuroVision Song Contest og hef verið þeirrar skoðunar að RÚV ætti frekar að verja fjármunum til að halda árlega söngkeppni á Íslandi. En undankeppnin í ár hefur svo sannarlega slegið í gegn og ég verð að viðurkenna að ég horfði á síðasta þátt í beinni útsendingu á netinu og skemmti mér vel. Ísland er alveg fáránlega lítið. Í þessum þætti var Kiddi Sigmars mágur ömmu að spila á trompet í lagi Harðar Ólafssonar, Raggi Ólafs sem söng með mér í Töfraflautunni í fyrra (sem Papagenó) var bakraddasöngvari í lagi Örlygs Smára og Erna Hrönn Ólafs. MA vinnkona og ofursöngkona var bakraddasöngkona í lagi Sveins Rúnars og Birgittu Haukdal.Það verður nú ekki um það deilt að hápunktur kvöldsins var framkoma leikkonunnar Ágústu Evu í hlutverkinu Silvía Nótt. Hvað er málið með þessa manneskju. Ég get ekki annað en dáðst af leikhæfileikum þessarar stelpu að geta leikið svona ömurlega pirrandi persónu. Ég hef haft lúmskt gaman af þessum karakter frá byrjun, m.a. eftir frægt viðtal við Geirmund Valtýrs. á Króknum í fyrra. Fyrst við erum á annað borð að taka þátt í þessum EuroVision pakka, þá finnst mér alveg eins gott að senda Silvíu í lokakeppnina. Ég myndi allavega horfa á það show:)
Svo er lagið bara býsna gott og bara merkilega vel flutt. Ég var einmitt að grúska á tónlistarsíðu í gær vegna þorrablótskórsins okkar í Íslendingafélaginu í Þrándheimi og þá rakst ég á lagið "Til hamingju Ísland" eftir Þorvald Bjarna með gripum og öllu. Verður örugglega vinsælt í partíum á næstunni.
Þar sem ég verð ekki á Íslandi á laugardaginn þá get ég ekki kosið, en mitt atkvæði færi til Silvíu, bara til að hrista aðeisn upp í þessari EuroVision hefð okkar:)
Snilldar texti:
Til hamingju Ísland
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
|
fimmtudagur, 9. febrúar 2006
Merktur maður
Fjögur störf sem ég hef gegnt:
*Hreppstjóri á heimavist MA (fékk máltíð á Greifanum í laun)
*Trjágróðursetning á útisvistarsvæðum Sauðárkróks
*Móttökutöffari í rækjuvinnslunni á Húsavík
*Ýmis störf hjá ISAL í Straumsvík, m.a. á 35 tonna vinnuvélum
Fjórar kvikmyndir sem ég get horft á aftur og aftur:
*The Godfather part I-III
*Braveheart
*2001: A Space Oddisey
*Monty Python and the Holy Grail (ég er þó ekki alveg eins forfallinn eins og Fjölli)
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
*Sauðárkrókur
*Akureyri
*Kópavogur
*Trondheim
Fjórir sjónvarpsþættir sem ég dýrka að horfa á:
*Fastir liðir eins og venjulega
*Línan
*Cheers
*Klaufabárðarnir
Fjórar vefsíður sem ég heimsæki daglega:
*www.ntnu.no
*www.mbl.is
*www.ruv.is
*www.teamtalk.com
Fjórir af mínum uppáhaldsréttum/mat:
*Heimatilbúin sviðasulta með laufabrauði að norðlenskum hætti
*Lamb (margir möguleikar)
*Svínahamborgarhryggur með tilheyrandi meðlæti
*Ýsa í raspi (eins og svo oft hefur komið fram)
Fjórir staðir sem ég vildi frekar vera á núna:
*Ísland
*Suðræn sólarströnd
*Tonga í kyrrahafi
*San Fransisco
Fjórir bloggarar sem ég vil merkja mér..
*Hr. Nesi
*Ilmur
*Lovísa
*Fjölli
sunnudagur, 5. febrúar 2006
Veturinn kominn aftur:)
Nú kætast Nojararnir og horfa hýru auga á allan þennan snjó sem hægt er að nota til skíðaiðkunar. Ég hef einnig verið að bíða eftir snjónum því ég er að fara á námskeið í notkun gönguskíða. Alþjóðaskrifstofan bauð erlendu nemunum uppá þetta námskeið og leigði okkur skíði gegn vægu gjaldi. Í kvöld gat ég svo bara ekki staðið á mér lengur og ákvað að halda í jómfrúarferðina í nýju flottu Telemark skíðunum. Eftir nokkuð basl við að koma þessu öllu saman á réttan hátt þá renndi ég mér af stað og viti menn, ég bara sveif áfram eins og ég hefði fæðst á svona skíðum. Maður á greinilega ekki ættir sínar að rekja til Tröllaskagans og Vestfjarða fyrir ekki neitt:)
Ég hlakka því mikið til að fara með hinum erlendu nemunum upp á fjöll ca. 6 skipti í vetur og ganga um barrskóga Skandinavíu á skíðum.
Það er ekki um annað talað í Noregi þessa dagana en þessar skopmyndir af Múhameð spámanni í Jylandsposten og Magazin. Norski fáninn er brenndur vítt og breitt um Mið-Austurlönd og það er allt að fara úr límingunum þarna suðurfrá. Það er geinilegt af þessu að heimsfriðurinn stendur valtari fótum heldur en maður hefði haldið og lönd eins og Noregur og Danmörk sem hafa látið mest allra landa fé af hendi til þróunaraðstoðar í þessum arabalöndum og verið í fararbroddi friðarumleitana fyrir botni Miðjarðarhafs þurfa nú að súpa seyðið af því að búa við tjáningarfrelsi. Vandamálið er held ég að fólk í þessum suðlægu löndum er ekki vant því að sjá skopmyndaformið notað í fréttaflutningi. Við þurfum að senda SIGMUND til þeirra til að útskýra hlutverk skopmynd. Það er nú allt í lagi að hafa smá húmor fyrir sjálfum sér og samfélagi sínu?
Það verður gaman að sjá Silvíu Nótt taka EuroVision í ár...
mánudagur, 23. janúar 2006
Kominn heim úr kojunni
Hjartardýr eru víst algeng á þessum slóðummánudagur, 16. janúar 2006
Aftur í Noregi:)
Ég tek kúrsa sem heita Hreinsun og endurvinnslu (Refining and recycling) og Eldföst efni (Refractories). Svo verð ég í rannsóknarvinnu á tilraunastofunni þar sem viðfangsefnið er hegðun efna við hátt hitastig (High temperature project work). Að lokum tek ég svo þátt í verkefni sem heitir Expert in teams og verð ég í því alla miðvikudaga frá 9-16. Þetta verður viðfangsefni þar sem þverfaglegir hópar vinna við að leysa ákveðin úrlausnarefni úti í fyrirtækjum. Við verðum þar í samstarfi við norsku fyrirtækin Hydro og Elkem.
Síðusta helgi var tekin með trompi og haldið út bæði föstudags- og laugardagskvöld í heimapartý hjá vinum. Svo fór ég í bíó í gærkvöldi og sá hina klassísku King kong ásamt hinum nýja norska meðleigjanda mínum.
Ykkur til gamans sem hafið áhuga á að sjá myndir héðan frá Þrándheimi þá set ég hér smá link(rauðu stafirnir hér fyrir neðan) með ca. 10 mínútna (túrista) myndbandi um borgina. Þarna sést meðal annars flott loftmynd af Glöshaugen kampusnum hér við NTNU og einnig frægt mark sem Rosenborg skoraði gegn Arsenal í Meistaradeild Evrópu hér á Lerkendal vellinum fyrir tveimur árum
Myndband-Trondheim
laugardagur, 24. desember 2005
Gleðileg jól
Hafið það gott og gangið hægt um dyr gleðinnar
Sigurður Ágúst:)
(engilsh)
I wish you all Merry Christmas and a Happy New Year. Thanks for great moments in Norway during the last months and I hope the next year will be even better:)
And as we say in Iceland: "Walk slowly through the doors of happyness".
Sigurdur Agust.
mánudagur, 19. desember 2005
Eksaminasjonen afslutted - jule ferien begynner
Þá er bara að njóta þess að slæpast næstu vikurnar og lifa í langþráðri afslöppun, vona að það gangi vel. Forgangsmál í Íslandi er að fara í heita potta og gufuböð og njóta okkar mögnuðu náttúruauðlinda sem ég hef saknað mikið hér í Norge.Jæja best að fara og kaupa sér smá öl til að halda upp á próflokin, sjáumst í klakanum:)
fimmtudagur, 8. desember 2005
Back to the jungle
Nú eru bara 13 dagar þar til maður verður kominn með eldgömlu Ísafold aftur undir fæturna.Svo voru snilldar fréttir fyrir mig í dag. SAS Braathens ætlar að byrja að keppa við Flugleiði í Keflavík-Oslo fluginu í mars. Þeir ætla að bjóða miða á sjö þúsund kall:) Nú getur því enginn sagt að hann geti ekki heimsótt mig vegna þess að það sé svo dýrt. Ég verð því væntanlega eins og grár köttur á Íslandi á næsta ári...















