Juninho stillir miðið fyrir eina af sínum eitruðu spyrnum
Rosenborg bullurnar. Styðja sitt lið í gegnum súrt og sætt
Houllier sjálfur. Halli ég tók þessa fyrir þig, ég veit að þú ert svo mikill aðdáandi;)
...the rise and fall of Ziggy Stardust and the spiders from all around the world:)
Juninho stillir miðið fyrir eina af sínum eitruðu spyrnum
Rosenborg bullurnar. Styðja sitt lið í gegnum súrt og sætt
Houllier sjálfur. Halli ég tók þessa fyrir þig, ég veit að þú ert svo mikill aðdáandi;)
Jæja Ilmur, þá er það komið. Mér sýnist nú flestir virkir bloggarar sem ég þekki vera búnir að taka þátt í þessum leik þannig að ég segi bara stop hér. Enda viljum við nú ekki fara að búa til óendanlega lykkju? Vona að þið þekkið mig miklu betur nú en áður:)
Ég sá í dag frétt á www.mbl.is um mótmæli "umhverfisverndarsinna" á fyrirhuguðum stækkunum álverana í Straumsvík og á Grundartanga. Ég var nú ekki mikið að kippa mér upp við þessa frétt en ákvað að lesa hana nánar og sjá hvað þarna færi fram.Ég hef sjálfur starfað hjá Alcan í Straumsvík og er að sérhæfa mig í verkfræði léttmálma þessa stundina og þessvegna verð ég bara leiðrétta jafn augljósar staðreyndavillur og komu fram hér að ofan.
Á Íslandi fer aðeins fram rafgreining á bauxíti og við það verður til fljótandi ál. Rafgreining er í eðli sínu mjög mengandi ferill og gefur frá sér brennisteins- og flúorgas sem er mjög óæskilegt umhverfinu. Í Íslenskum álverum náum við að hreina um 99,9% af flúornum úr gasinu sem fer út um strompana. Ekki eru neinar reglur um brennisteinsmengun og því er hann ekki hreinsaður. Hins vegar er brennisteinsgas þess eðlis gætt að það dreifist mjög hratt með vindum og því er lítil staðbundin mengun að völdum þess. Ekki er hægt að hreinsa brennisteinsgasið nema með vothreinsistöðvum sem setja brenninsteinninn þá út í sjóinn og það hlýtur að vera mjög óæskilegt fyrir okkur Íslendinga að setja mengunarefni í sjóinn.
Álbræðsla er eitthvað sportorð sem sumir nota í viðtölum og blaðagreinum til að undirstrika eitthvað neikvætt. Að mér vitandi er engin álbræðsla starfandi á Íslandi og ekki stendur til að byggja neina. Álbræðsla er verksmiðja sem tekur álklumpa, t.d. gamlar bjórdósir og umbúðir, og bræðir það upp og steypir nýjar vörur. Þessi aðgerð gefur ekki frá sér nein spilliefni og er því mjög umhverfisvæn og því mætti segja að Álbræðsla sé starfsemi sem allir umhverfissinnar ættu að fagna.
Skattpeningunum okkar finnst mér dálítið fyndið í þessu samhengi. Þetta ágæta fólk hefur örugglega ekki hugmynd um hversu miklum skattpeningum eitt stykki álver skilar inn í þjóðarbúið. Sú upphæð hleypur á mörgum milljörðum á ári:)
Eitt mengaðasta svæði Evrópu. Hvaða rannsóknir sýna það? Ætli það sé þá ekki bílaumferðinni í Reykjavík að kenna frekar en iðnaðinum? Samskonar svæði og þetta er víða að finna hérna í Noregi og það er ekki að sjá að það sé nein mengun hérna. Í bænum Mosjoen sem er norður af Þrándheimi er meira að segja Söderbergálver inn í miðjum bænum (við getum nú þakkað fyrir að hafa ekki slík álver á Íslandi).
Svo get ég nú ekki annað en tekið upp hanskann fyrir minn fyrrum vinnuveitanda Alcan. Það sem ég þekki til hjá Alcan eru mikill metnaður í öryggis- og vinnuverndarmálum og fyrirmyndar framkoma við starfsfólk. Þetta sést best á því að starfsaldur í Straumsvík er með því hæsta sem gerist á Íslandi. Hversvegna ætti fólk að vinna svona lengi hjá þessu fyrirtæki ef það væri brotið á réttindum þess og vinnuaðstaðan væri óviðunandi?
Þegar ég kíkti inn á heimasíðu þessara "umhverfisverndarsinna" sá ég að þetta er einhver félagsskapur sem hefur augljóslega litla þekkingu á þeim málefnum sem mótmælt er. Mér finnst þetta mjög sorglegt að hópur sem þessi kemst upp með að nota hið almenn orð "umhverfisverndarsinnar" um gjörðir sínar. Ég skola mjólkurfernurnar heima og set þær í endurvinnslu. Ég hef aldrei átt bíl. Ég flokka ruslið sem ég sendi frá mér. Mér þykir mjög vænt um umhverfi mitt eins og líklega flestu skynsömu fólki og tel mig því til umhverfissinna. Fólk sem er á móti virkjunum og álverum getur notað miklu betri rök heldur en þessi sem komu fram í þessari grein, rök sem byggjast á réttum staðreyndum og skynsemi. Það er að sjálfsögðu gott að fólk hafi skoðanir á þessum málum, hvort sem þær byggjast á eigin hagsmunum eða tilfinningum.
Þar sem ég hef mun meiri áhyggjur af loftmengun jarðar, heldur en staðbundnum "náttúruspjöllum" á Íslandi, þá held að það sé mun umhverfisvænna að framleiða hinn græna málm(sem álið er eftir að það er búið að rafgreina það úr Bauxíti) með hreinni orku á Íslandi heldur en með olíu- eða kolaorkuverum í USA eða Kína. Auk þess er þetta auðveldasta leiðin fyrir okkur til að nýta náttúrauðlindir okkar á skynsaman hátt og afla þar með fjár til hagsbóta fyrir land og þjóð:)
The end.
Verkfræðingar vita að: afl = vinna / tíma - (e. Power = Work / Time)
Því fæst: þekking = afl
sem jafngildir: þekking = vinna / tíma
og tími = peningar,
leiðir til: þekking = vinna / peningar
Ef leyst er út úr jöfnunni fyrir peninga, þá fáum við:
peningar = vinna / þekking
Útfrá þessu sést að þegar þekkingin stefnir á núll, þá nálgast peningar óendanlegt, óháð því hversu mikil vinna er unnin:)
og hana nú...
Hér ber að líta mynd frá ferð erlendu M.Sc. nemanna í koparnámu- bæinn Röros sem er staðsettur í um 500 m hæð í fjöllunum hér suður af Trondheim. Eins og sjá má þá var ég eini hvíti maðurinn í ferðinni fyrir utan leiðsögukonuna og bílstjórann:/ En það er bara hið besta mál. Náman sem við skoðuðum er um 300 ára gömul og er að flatarmáli ca. 21 fótboltavöllur, þ.a. það var eins gott að villast ekki þarna inni í þessu völundarhúsi. Á einum staðnum var stór salur með sviði og sætum og þar tóku 3 strákar frá Ghana lagið með tilheyrandi hrópum og köllum og miklum rythma, minnti bara á African Sanctus tónleikana hjá Háskólakórnum síðasta vetur:)
Já það var um fátt annað talað í dag í Þrændarlögum en 3-1 sigur Rosenborg gegn Olympiacos í Aþenu í gærkveldi. Menn horfðu á leikinn í öllum sjónvarpstækjum borgarinnar í gær og úrslitin eru svo sannarlega óvænt því að því er ég best veit þá er þetta fyrsti útisigur Rosenborg í meistaradeild Evrópu. Þetta hleypir mikilli spennu í riðilinn okkar og því enn meiri ástæða til að redda sér miðum á leikina þrjá hér í vetur sem ætti að vera góður möguleiki.
Það eru naumast stórtíðindin sem berast manni frá Íslandi í dag. Landsfaðarinn bara hættur og farinn að vinna við að telja peninga í ríkisfjárhirslunni.
Í gær var mikið um að vera hér í Þrándheimi, allavega voru símafyrirtækin að græða vel á mill 16 og 17. Þannig var að kl. 16 var opnað fyrir símasölu á þeim miðum sem seldir verða á almennum markaði á leikina þrjá í Meistaradeild Evrópu í vetur. Ég bauð tveimur félögum mínum í heimsókn til að við gætum pantað miða á leikina og setið saman Þetta væri nú kannski ekki í frásögu færandi nema vegna þess að af einhverjum ástæðum náðum við aldrei sambandi við miðasöluna, álagið á kerfið var of mikið og einhver ömurleg tölvurödd sagði okkur alltaf að reyna aftur síðar.
hytteklúbburinn á og eru út um allar trissur hér í skógunum í kringum Trondheim. Svo vel villdi til að okkur Heiko (sambýlingi mínum frá Þýskalandi) hafði verið boðið í heimabakaðar pönnukökur í stóra "kofanum" sem klúbburinn á og er staðsettur í Bymark útivistarsvæðinu, sem er reyndar aðal gönguskíðasvæðið hér í fjöllunum. Við tókum strætó langleiðina upp í hyttuna og löbbuðum svo í um 10 mín upp að skálanum. Þessi skáli er nú enginn kofi, þetta er risastórt hús með mörgum örnum og gufuböðum og mjög vinsæll partístaður yfir vetrartímann þegar Nojararnir, sem eru algerir skíða-terroristar, koma heim úr gönguskíða dagsferðunum sínum.
Við Heiko í strætó á leið til fjalla
Hytte. Þetta er nú bara glæsilegt hús með öllum þægindum
Með John Chiles frá Misouri (USA) að borða súpu og bíða eftir pönnukökunum
Svo er nú matargerðin ekki mjög flókin, merkilegt hvað fæst mikið af tilbúnum mat í búðunum. Ég steikti mér t.d. rauðsprettu í raspi einn daginn og hún var bara hreinasta afbragð, næstum jafn góð og ýsa í raspi að hætti mömmu. Svo er pastað mjög vinsælt og ódýrt námsmannafóður. Maturinn hér er mjög líkur þeim íslenska. Hér er hægt að fá þorskalýsi, jógúrt og osta sem eru alveg eins og á Íslandi. Svo eru þeir mikið með síld á boðstólnum og einnig staðvært dýrakjöt eins og elg og hreindýr. Svo er kaffið mjög visælt hér í Noregi og hef ég sjaldan séð álíka kaffiþambara eins og þessa Nojara sem ég þekki hér. Andreas, sambýlingur minn, kom einmitt með þessa svakalegu kaffimaskínu (lagar espresso, venjulegt kaffi og svo videre) hérna í íbúðina til að vera alveg viss um að fá sinn fasta dagskammt. Ítalarnir hérna skilja ekkert í þessari kaffimenningu og kalla kaffið sem við drekkum "kaffidjús", enda er það frekar þunnt m.v. ítalska espressokaffið sem ég hef smakkað hér, skot beint í heilann og manni svimar við að drekka það.
Jæja, nú hætti ég að rasa og ætla að fá mér einn kaffibolla til að taka þátt í menningunni hér:)
Mjög skemmtilegt hverfi

Húsið mitt-Mohot Alle 10

Dragvoll. Mjög smekkleg hús og allt umhverfi til fyrirmyndar
The Empire of Iceland. Með Magneu og Jónasi.
Það verður bara rólegt kvöld í kvöld enda nauðsynlegt að hvíla lúin bein eftir stranga viku. Á morgun er svo dagsferð á báti út á Trondheims fjord með mat og öllu.
Bara svona til að þið vitið það þá var 22°C hiti hér í dag og ekki ský á himni og vona ég að það verði svona áfram fram á haustið.
Yfir og út.

Félagar frá Þýskalandi, Slóveníu, Ítalíu og Frakklandi
Skólasetningin á grasinu fyrir aftan gömlu aðalbygginguna
Einn af mörgum fyrirlestrum þessa vikuna
Kynning með formanni nemendafélagsins Bjerg (flottur búningur sem hann er í)