föstudagur, 28. október 2005

Jibbí - Miðannarprófið afstaðið

Nú get ég loksins farið að lifa reglubundnu lífi á nýjan leik eftir að hafa klárað þetta hrottalega miðannarpróf í Heterogeneuous Eq. í dag. Það gekk bara fínt og ég vona að ég nái þessum 80% réttum þannig að ég fái þetta metið inn í lokaeinkunn. Við Heiko fórum beint á stúdentapöbbinn eftir prófið og nutum þess að vera frjálsir á ný og fengum okkur einn kaldan svona til að halda upp á þetta:)
Það verður því slakað á yfir einhverri góðri afþregingu í kvöld;-)

fimmtudagur, 27. október 2005

"Bekkurinn" minn

Við international M. Sc. nemarnir héldum einn af okkar reglulegu hópfundum í morgun með Trygva Foosnæs skorarformanni og Tove Schanke kennslu-/áfangastjóra. Við létum smella þessari fínu mynd af okkur eins og sjá má hér:
F.v. Trygve, Tove (nojarar), Heiko (Deutchland), Wang (Kína), Tilahun (Eþijópía), Yaw, Lucas, Femi (Ghana), Ronald (Uganda) og svo íslendingurinn sjálfur:)

þriðjudagur, 25. október 2005

Langar lestrartarnir í Glöshaugen

Nú styttist í miðannarpróf í Heterogeneous Equilibriums og því er mikið að gera í augnablikinu þar sem þetta próf gildir nokkuð inn í lokaeinkunn. Við Heiko höfum verið að stúdera þetta saman undanfarna daga og okkur gengur alveg ótrúlega vel að vinna saman, þýsk-íslenskar lausnir:) Ég greip með mér myndavélina og tók nokkrar myndir við lesturinn í kvöld til að sýna hvernig líf mitt lítur út þessa dagana, áhugavert er það ekki?
Hér má sjá mína private lesaðstöðu í einu af herbergjum international M.Sc. nemanna

Er nú greinilega orðinn eitthvað þreyttur á þessari súpu


Taflan mín. Merkilegt hvað sum vandamál verða auðveldari þegar þau eru skrifuð með krít á töflu

Við félagarnir í álbransanum

Svo verð ég nú bara að skjóta því að að Rosenborg vann efstaliðið í Tippaligaen, Valerenga 2-0 í gær. Við erum náttlega langbestir ennþá og ég held að Rosenborg hafi á þessu tímabili bara verið að leyfa nýju liði að vinna norksa titilinn svona einu sinni til að halda mönnum góðum eftir 13 meistaratitla í röð. Komum bara sterkir til leiks á nýju tímabili:)

Svo er greinilegt að veðurguðirnir hafa heyrt kvartanir mínar um hitann í þar síðustu viku því það hefur heldur betur kólnað og farið að koma smá hálka á göturnar. Maður þarf að fara að setja nagladekkin undir hestinn von bráðar ef þetta heldur svona áfram...

þriðjudagur, 18. október 2005

Aftur í siðmenninguna

Mikilli æfintýraferð upp í Holmsakoja lauk seint á sunnudagskvöld. Tíu þreyttir en jafnframt fræknir ferðalangar snéru aftur til mannabyggða eftir um þriggja daga dvöl í norsku hálöndunum. Ég veit nú ekki hversu nákvæmlega ég á að lýsa þessari upplifun en ég ætla bara rétt að stikkla á stóru um atburði helgarinnar.
Við Albert og Deeppal (báðir frá Singapur) yfirgáfum fyrirlestur hjá Havar Karoliussen kl. 11 á föstudagsmorgni og eins og ég hafði búist við þá tók hann eftir því og stoppaði kennslu og yfirheyrði okkur um hvert við værum eiginlega að fara svona í miðjum fyrirlestri. En okkur tókst að sannfæra Havar um að við þyrftum að kynnast norskri menningu og frumbyggjalífi og hann tók þetta ferðalag okkar því sem gilda afsökun, algjör töffari þessi gaur og sannkallaður ofurnörd og minnir á mann í verkfræðideild HÍ sem kallaður er Tumi (rafmagnsverkfræðigúrú).
En það er nú önnur saga. Áfram með smjerið. Á aðalbrautarstöðinni hér í Þrándheimi hittum við restina af ferðafélögunum, Janette og Christinu frá Deutslandi, Malín frá Svíðþjóð, Jónas og Magneu frá Íslandi, Elínu frá Finnlandi og Arild frá Noregi.
Ferðin upp í kojuna tók 3 tíma í rútu og um 2 tíma á göngu. Við þurftum að höggva eldivið til að hita upp kofann og saununa og það var mjög ævintýralegt að standa úti í tunglsljósi um miðja nótt að höggva eldivið og heyra hljóð í einhverjum villidýrum í nágrenninu, þó að það hafi að öllum líkindum verið hreindýr. Það var nefnilega nóg af hreindýrum í fjöllunum en eitthvað lítið um birni, úlfa og elgi. Við notuðum saununa óspart og stungum okkur svo til sunds í ískaldri tjörn á eftir, ótrúlega hressandi og frískandi.
Á laugardeginum fórum við í um 4 tíma fjallgöngu. Við þurftum að vaða ár og mýrar og við enduðum uppi á fjallstindi í snjó og ótrúlegu útsýni. Bongó blíða var allan laugardaginn og því gátum við notið náttúrunnar í allri sinni dýrð. Deeppal og Albert höfðu aldrei séð snjó fyrr og þetta var mikil upplifun fyrir þá. Einnig var nokkuð skondið þegar við fylltum á vatnsbrúsana okkar í nærliggjandi fjallalæk, þá ráku þeir félagar upp mikil undrunaróp og héldu að við værum nú alveg orðun klikkuð að drekka vatnið svona óhreinsað. En eftir smá útskýringar þá gátu þeir félagar óhræddir drukkið ómengað og kristaltært fjallavatn í fyrsta sinn:) Það var mikið húllum hæ á kvöldin og lífsins notið til fullnustu. Ég tók að mér að sofa við arininn á nóttunni og er þetta í fyrsta sinn sem ég sef með opinn eld mér við hlið. Aðfaranótt sunnudagsins þurfti ég svo að fara úr svefnpokanum seint um nóttina til að kveikja upp á ný, enda var þá orðið mjög kalt í kofanum.
Við komum svo heim sæl og glöð eftir órtúlega endurnærandi helgi án allra nútíma þæginda. Og ég neita því ekki að það var ótúlega þægileg tilfinning að stíga undir heita sturtuna hér í Móholti og þvo af sér þriggja daga svita og drullu um miðnætti á sunnudagskveldi.
Hér fylgja nokkrar myndir:

Á leið upp í kojuna í hellirigningu á föstudaginn

Við Íslendingarnir að skoða kortið og skipuleggja gönguleiðina

Í sól og logni á fjallstoppi með Svíþjóð í baksýn

Ferðafélagarnir fræknu

Einn af farartálmunum á leiðinni. En við létum ekki svona smá hindranir stoppa okkur

Kofinn okkar. Stór og góður bjálkakofi í fjallarjóðri við litla lækjarsprænu.

föstudagur, 14. október 2005

Life in the wild - Kojetrip during the weekend

Þá stendur fyrsta alvöru koje-ferðin fyrir dyrum um helgina. Lífið í óbyggðum tekur við með öllum sínum kostum og göllum, s.s. að höggva eldivið, sækja vatn í lækinn og geta ekki komist í sturtu, en vera umfram allt glaður og ánægður með að vara í fallegri náttúru og njóta kyrrðar og góðs félagsskapar. Matarklúbburinn er sem sagt á leið í Holmsee-hyttuna þessa helgina, en þessi kofi er staðsettur í um 3 og 1/2 tíma akstursfjarlægð + 1 klst. göngu frá Þrándheimi uppi í fjöllunum við landamæri Svíþjóðar.

Saunan verður notuð óspart og svo verður eitthvað gómsættt á boðstólnum fyrir okkur sælkerana og tilheyrandi drykkir.

Segi vonandi einhverjar ævintýrasögur eftir helgina:)

miðvikudagur, 12. október 2005

A night at the opera - Cavalleria Rusticana

Eftir langa og stranga fyrirlestra og verkefnavinnu undanfarna daga þá ákvað ég að skella mér í óperuna og sjá "alvöru" listviðburð:) Óperu- og sinfóníuhús Þrándheims bauð upp á hið magnaða verk Cavalleria Rusticana efitir Pietro Mascagni. Mig hafði lengi langað til að sjá þetta verk og ég gat ekki sleppt því þegar ég sá það auglýst á dagskránni hér í borgaróperunni. Og ég varð sko ekki fyrir vonbrigðum, magnað tónlistarhús sem þeir bjóða uppá, ca 1500 sæti og frábær hljómburður, hlýtur að vera magnað að standa á sviði við þessar aðsæður.

Sögusvið óperunnar er smábær á Sikiley í kringum árið 1890. Söguþráðurinn er hádramatískur og endar með áskorun þar sem aðalsöguhetjan (Turriddu, tenórinn að sjálfsögðu) er drepinn af vonda kallinum (Alfio, bassanum/baritóninum að sjálfsögðu). Söngvararnir voru frá Ítalíu, Slóvakíu, Noregi og Svíþjóð. Stærsta hlutverkið (Santuzza) var í höndum messósópransöngkonunnar Victouriu Nava frá Slóvakíu. Brilliant frammistaða hjá þessari listakonu.
Myndin sem hér fylgir með er af óperuhúsinu í Palermó á Sikiley (ég átti ekki mynd af óperhúsinu hér í Þrándheimi). Þess má geta að lokakaflinn í þriðju og síðustu kvikmyndinni um The Godfather var einmitt tekinn upp í þessu óperuhúsi í Palermó á Sikiley og í myndinni syngur Anthony Corleone einmitt hlutverk Turriddu í óperunni Cavalleria Rusticana. Þetta var því einskonar Godfather þema hjá mér í kvöld:)

Já það væri ekki amalegt að eiga eitt svona óperuhús á Íslandi og vonandi styttist í að það verði byggt og þá fáum við að njóta allra þeirra töfra sem þetta magnaða listform hefur upp á að bjóða við betri aðstæður en eru til staðar í dag í Gamla bíói.

þriðjudagur, 11. október 2005

Sól og 20°C

Ég hef ekki mikinn tíma til að blogga í augnablikinu vegna anna í skólanum og ýmissa annara verka. En ég vil bara benda á að hér er allt of heitt og hitinn þessa stundina er 20°C :/ Afríkubúarnir kætast en þegar ég sé snjóinn og kuldan heima þá verð ég nú bara að segja að ég öfunda ykkur nú dálítið af kuldanum í augnablikinu, en það breytist örugglega þegar það fer að kólna hérna í vetur. Take care:)

þriðjudagur, 4. október 2005

Haustmenning í Sør-Tronderlag

Nú er að byrja mikil menningar- og listahátíð hér í Þrándheimi á morgun og verður mikið um dýrðir annað kvöld þegar hátíðin verður sett. Hátíð þessi kallast UKA (vika) og stóð upphaflega yfir í eina viku en er nú á dögum 3 til 4 vikur. Eini íslenski viðburðurinn sem ég sá í dagskránni var "hljómsveitin" Bang Gang. Maður verður nú eiginlega að skella sér og sjá Barða framkvæma einhver undur.

Við Heiko tókum forskot á menningarsæluna í kvöld og héldum í Borgarleikhúsið hér í Þrándheimi og sáum leikritið Kristin Lavrandsdottir. Það var ágætur lærdómur í norskunni að fara á þetta leikrit og bara merkilegt hvað maður skildi mikið. Söguþráðurinn var byggður á frægri miðaldaskáldsögu um kvennskörunginn Kristinu og sorglega og dramatíska ævi hennar. Semsé mikil tragedía:( Ágætis tilbreyting frá bókunum og sjónvarpinu að sjá eitthvað lifandi á sviðinu. Ég stefni svo að því að fara í óperuna hérna þegar hún byrjar síðar í haust:)

Við Heiko stóðumst ekki mátið og fengum okkur en øl í hlénu

Þrátt fyrir ágætis veður og nokkuð hátt hitastig undanfarnar vikur þá er haustið samt handan við hornið hér eins og annarsstaðar á norðurhvelinu. Ég var með myndavélina á mér á leiðinni úr skólanum seinnipartinn í dag og smellti nokkrum græn-gul-rauðum myndum af trjánum hér á kampusnum


Nokkuð sáttur eftir langan og strangan skóladag og mikil heilabrot:)

sunnudagur, 2. október 2005

Mín eigin Enigma

Ég fékk kassa sendan með póstinum í gær og var kassinn merktur DnB NOR Bank ASA. Ég átti svo sem von á að fá send gögn með leiðbeiningum um notkun á heimabankanum mínum hérna í Norge en þetta var eitthvað meira og merkilegra. Þegar kassinn hafði verið opnaður kom í ljós lítill svartur plasthlutur sem minnti helst á nýtíma bíl"lykil", þ.e. plastkassi sem sendir boð til bílsins um að hann eigi að opna hurðirnar. En nei, við nánari skoðun sást að þetta var einhvernskonar PIN code tölva, dulkóðunarbúnaður sem gefur manni leyninúmerið í heimabankann í hvert skipti sem maður opnar hann. Já Nojararnir eru greinilega ekki eins auðtrúa og bláeygðir og við Íslendingar þegar kemur að að treysta rafrænum flutningum á peningum.

Ég á semsé orðið mína eigin dulkóðunarvél, sem hefur innbyggt sitt eigið dulkóðunarfylki og sér mér fyrir lausnarvigrum til að opna heimabankann:) Þetta vakti að sjálfsögðu mikinn áhuga hjá mér, enda hafði ég lært að dulkóða hjá Níelsi í Menntaskólanum hér forðum daga.

Það er gaman að bera stærð og virkni þessarar dulkóðunarvélar saman við hina frægu þýsku dulkóðunarvél Enigmu sem notuð var í síðari heimsstyrjöldinni. Rafeindatækni nútímans leysir hér af hólmi tannhjólaverk fyrri tíma og gefur mun öflugri lausn sem nánast ómögulegt er að brjóta á bak aftur af hökkurum:) Svo hefði nú verið erfitt að koma Enigmu fyrir í rassvasanum...

Mér brá nú bara þegar ég var að horfa á fréttir Stöðvar 2 í gærkveldi og sá eitthvað kunnulegt andlit, en það var eitthvað sem var ekki á sýnum stað. Logi Bergmann var að lesa fréttir á Stöð 2? Eitthvað passar ekki hérna? Ég hef greinilega verið að missa af einhverju risa Séð & heyrt skúbbi, sápuópera Loga og Svanhildar heldur greinilega áfram? Svo sá ég að Spaugstofan var að gera grín af þessu síðar um kvöldið;) Alltaf aksjón á Íslandi.

fimmtudagur, 29. september 2005

RBK tapaði örugglega fyrir Lyon

Við Deeppal skelltum okkur á UEFA CHAMPIONS LEAGUE í kvöld. Rosenborg Ballklub atti kappi við margfallt franskt meistaralið Olympique Lyon. Andrúmsloftið var rafmagnað og stemningin frábær og leikurinn alger thriller:) Rosenborg átti nokkrar góðar sóknir en Lyon stjórnaði leiknum frá A-Ö og var brasilíski galdramaðurinn Juninho hreint út sagt brilliant. Varnarmaðurinn Cris skoraði sigurmark Lyon nokkrum sekúndum fyrir hlé:/ Te og pylsa í hálfleik virtist ekki færa okkur meiri lukku en svo að Rosenborgarar voru heppnir að sleppa með 0-1 tap. En þetta var frábær upplifun og myndirnar hér segja meira en mörg orð:

Rétt fyrir leik. Trefillinn á sínum stað

Deeppal var að fara á sinn fyrsta "alvöru" fótboltaleik:)

Juninho stillir miðið fyrir eina af sínum eitruðu spyrnum


Rosenborg bullurnar. Styðja sitt lið í gegnum súrt og sætt


Houllier sjálfur. Halli ég tók þessa fyrir þig, ég veit að þú ert svo mikill aðdáandi;)

sunnudagur, 25. september 2005

Hverskonar leiðtogi?

Ég tók þetta leiðtogapróf sem ég rakst á á bloggsíðu Gauja. Þeir reiknuðu mig út sem JFK, ekki slæmt það en ég vona nú að örlög mín og ævi verði aðeins lengri og gæfuríkari. Ég sá að Gauji var reiknaður út sem Hitler, maður þarf því greinilegar að passa sig honum í framtíðinni:)

Klukk

Jæja skyldan kallar. Ég var víst klukkaður og það þýðir bara það að ég verð að segja 5 lítt þekktar staðreyndir um sjálfan mig. Ég velti nú dálítið fyrir mér "lítt þekktar" staðreyndir? Það fer nú bara eftir því hver á í hlut. En jæja mér er ekki til z-unnar boðið lengur:
  1. Þegar ég fæddist þá átti ég 2 ömmur, 2 afa, 4 langömmur, 2 langafa og 1 langalangafa
  2. Ég hata sveppi (en þeir eru þó ágætir á pizzum)
  3. Ég er með tölvuleikja-áráttu. Á enn í dag erfitt með að slíta mig frá tölvuleikjum ef ég byrja að spila þá. Besta ráðið er því að hafa þá ekki til staðar.
  4. Ég byrjaði starfsferil minn 3 ára (+/- 1 ár?) gamall í saltfiskverkun ömmu og afa á Ólafsfirði:) Sagan segir að ég hafi verið mjög kröfuharður starfsmaður og hafi viljað fá útborgað í beinhörðum peningum á klukkutíma fresti á meðan ég var í vinnunni (snemma beygjist krókurinn). Ekki fylgdi þó sögunni að mín helsta iðja í vinnunni var að bera sand úr sandkassanum inn á vinnslugólfið:/
  5. Ég elska ýsu í raspi (að hætti mömmu). Ég þarf bara að fara að læra að malla hana sjálfur:/

Jæja Ilmur, þá er það komið. Mér sýnist nú flestir virkir bloggarar sem ég þekki vera búnir að taka þátt í þessum leik þannig að ég segi bara stop hér. Enda viljum við nú ekki fara að búa til óendanlega lykkju? Vona að þið þekkið mig miklu betur nú en áður:)

föstudagur, 23. september 2005

Álbræðsla??? Hvað er nú það?

Ég sá í dag frétt á www.mbl.is um mótmæli "umhverfisverndarsinna" á fyrirhuguðum stækkunum álverana í Straumsvík og á Grundartanga. Ég var nú ekki mikið að kippa mér upp við þessa frétt en ákvað að lesa hana nánar og sjá hvað þarna færi fram.
Og lesturinn var svo sannarlega athyglisverður svo að vægt sé til orða tekið. Þar mátti m.a. finna eftirfarandi:
  • "...neikvæðum og heilsuspillandi áhrifum sem álbræðsla og tengd vinnsla hefur..."
  • "Þessi alþjóðlega ráðstefna er að hluta til fjármögnuð með skattpeningum okkar – en Reykjavíkurborg, Iðnaðarráðuneytið, Iðntæknistofnun og Landsvirkjun eru meðal fjárstuðningsaðila og þátttakenda - þar sem Ísland er enn boðið til sölu sem ódýrt málmbræðsluland og „óæskileg sjónarmið“ ekki velkomin"
  • "...Við sættum okkur ekki við að Faxaflóasvæðið verði eitt mengaðasta svæði Norður-Evrópu, en það mun verða staðreyndin ef af þessum áformum verður."
  • "Einnig viljum við sýna samstöðu því fólki sem orðið hefur fyrir barðinu á siðlausum og ómannúðlegum vinnubrögðum Alcan um víða veröld; allt frá verkamönnum í Straumsvík sem samband hafa haft við okkur og lýst óviðunandi vinnuumhverfi og brotum á réttindum starfsmanna; ..."

Ég hef sjálfur starfað hjá Alcan í Straumsvík og er að sérhæfa mig í verkfræði léttmálma þessa stundina og þessvegna verð ég bara leiðrétta jafn augljósar staðreyndavillur og komu fram hér að ofan.

Á Íslandi fer aðeins fram rafgreining á bauxíti og við það verður til fljótandi ál. Rafgreining er í eðli sínu mjög mengandi ferill og gefur frá sér brennisteins- og flúorgas sem er mjög óæskilegt umhverfinu. Í Íslenskum álverum náum við að hreina um 99,9% af flúornum úr gasinu sem fer út um strompana. Ekki eru neinar reglur um brennisteinsmengun og því er hann ekki hreinsaður. Hins vegar er brennisteinsgas þess eðlis gætt að það dreifist mjög hratt með vindum og því er lítil staðbundin mengun að völdum þess. Ekki er hægt að hreinsa brennisteinsgasið nema með vothreinsistöðvum sem setja brenninsteinninn þá út í sjóinn og það hlýtur að vera mjög óæskilegt fyrir okkur Íslendinga að setja mengunarefni í sjóinn.

Álbræðsla er eitthvað sportorð sem sumir nota í viðtölum og blaðagreinum til að undirstrika eitthvað neikvætt. Að mér vitandi er engin álbræðsla starfandi á Íslandi og ekki stendur til að byggja neina. Álbræðsla er verksmiðja sem tekur álklumpa, t.d. gamlar bjórdósir og umbúðir, og bræðir það upp og steypir nýjar vörur. Þessi aðgerð gefur ekki frá sér nein spilliefni og er því mjög umhverfisvæn og því mætti segja að Álbræðsla sé starfsemi sem allir umhverfissinnar ættu að fagna.

Skattpeningunum okkar finnst mér dálítið fyndið í þessu samhengi. Þetta ágæta fólk hefur örugglega ekki hugmynd um hversu miklum skattpeningum eitt stykki álver skilar inn í þjóðarbúið. Sú upphæð hleypur á mörgum milljörðum á ári:)

Eitt mengaðasta svæði Evrópu. Hvaða rannsóknir sýna það? Ætli það sé þá ekki bílaumferðinni í Reykjavík að kenna frekar en iðnaðinum? Samskonar svæði og þetta er víða að finna hérna í Noregi og það er ekki að sjá að það sé nein mengun hérna. Í bænum Mosjoen sem er norður af Þrándheimi er meira að segja Söderbergálver inn í miðjum bænum (við getum nú þakkað fyrir að hafa ekki slík álver á Íslandi).

Svo get ég nú ekki annað en tekið upp hanskann fyrir minn fyrrum vinnuveitanda Alcan. Það sem ég þekki til hjá Alcan eru mikill metnaður í öryggis- og vinnuverndarmálum og fyrirmyndar framkoma við starfsfólk. Þetta sést best á því að starfsaldur í Straumsvík er með því hæsta sem gerist á Íslandi. Hversvegna ætti fólk að vinna svona lengi hjá þessu fyrirtæki ef það væri brotið á réttindum þess og vinnuaðstaðan væri óviðunandi?

Þegar ég kíkti inn á heimasíðu þessara "umhverfisverndarsinna" sá ég að þetta er einhver félagsskapur sem hefur augljóslega litla þekkingu á þeim málefnum sem mótmælt er. Mér finnst þetta mjög sorglegt að hópur sem þessi kemst upp með að nota hið almenn orð "umhverfisverndarsinnar" um gjörðir sínar. Ég skola mjólkurfernurnar heima og set þær í endurvinnslu. Ég hef aldrei átt bíl. Ég flokka ruslið sem ég sendi frá mér. Mér þykir mjög vænt um umhverfi mitt eins og líklega flestu skynsömu fólki og tel mig því til umhverfissinna. Fólk sem er á móti virkjunum og álverum getur notað miklu betri rök heldur en þessi sem komu fram í þessari grein, rök sem byggjast á réttum staðreyndum og skynsemi. Það er að sjálfsögðu gott að fólk hafi skoðanir á þessum málum, hvort sem þær byggjast á eigin hagsmunum eða tilfinningum.

Þar sem ég hef mun meiri áhyggjur af loftmengun jarðar, heldur en staðbundnum "náttúruspjöllum" á Íslandi, þá held að það sé mun umhverfisvænna að framleiða hinn græna málm(sem álið er eftir að það er búið að rafgreina það úr Bauxíti) með hreinni orku á Íslandi heldur en með olíu- eða kolaorkuverum í USA eða Kína. Auk þess er þetta auðveldasta leiðin fyrir okkur til að nýta náttúrauðlindir okkar á skynsaman hátt og afla þar með fjár til hagsbóta fyrir land og þjóð:)

The end.

fimmtudagur, 22. september 2005

Þekking, tími og peningar???

Nú er ég loksins búinn að ná þessu...

Þekktar kenningar segja eftirfarandi: " Verkfræðingar og raunvísindamenn geta aldrei fengið jafn vel borgað eins og framkvæmdastjórar, sölustjórar, endurskoðendur, lögfræðingar og sérstaklega forystumenn í hugvísindum og stjórnmálum.
Nú hefur verið fundin leið til að styðja þessar kenningar með stærðfræðilegum hætti sem byggir á eftirfarandi tveimur frumforsendum:
  • Forsenda 1: Þekking er afl - (e. Knowledge is Power)
  • Forsenda 2: Tíminn er peningar - (e. Time is Money)

Verkfræðingar vita að: afl = vinna / tíma - (e. Power = Work / Time)

Því fæst: þekking = afl

sem jafngildir: þekking = vinna / tíma

og tími = peningar,

leiðir til: þekking = vinna / peningar

Ef leyst er út úr jöfnunni fyrir peninga, þá fáum við:

peningar = vinna / þekking

Útfrá þessu sést að þegar þekkingin stefnir á núll, þá nálgast peningar óendanlegt, óháð því hversu mikil vinna er unnin:)

og hana nú...

þriðjudagur, 20. september 2005

Í nám(um) í Noregi

Hér ber að líta mynd frá ferð erlendu M.Sc. nemanna í koparnámu- bæinn Röros sem er staðsettur í um 500 m hæð í fjöllunum hér suður af Trondheim. Eins og sjá má þá var ég eini hvíti maðurinn í ferðinni fyrir utan leiðsögukonuna og bílstjórann:/ En það er bara hið besta mál. Náman sem við skoðuðum er um 300 ára gömul og er að flatarmáli ca. 21 fótboltavöllur, þ.a. það var eins gott að villast ekki þarna inni í þessu völundarhúsi. Á einum staðnum var stór salur með sviði og sætum og þar tóku 3 strákar frá Ghana lagið með tilheyrandi hrópum og köllum og miklum rythma, minnti bara á African Sanctus tónleikana hjá Háskólakórnum síðasta vetur:)
(sjá fleiri myndir frá Röros á myndasíðunni)

Glænýja sjónvarpið mitt er bilað og ég veit ekkert hvað er að gerast með það. Held að það sé eitthvað fúllt út í mig yfir því að ég nenni aldrei að horfa á það og sé í staðin alltaf að horfa á aðalkeppinaut þess, tölvuna;) Ég hafði samband við Best-Buy og þeir ætla að koma í vikunni og sækja það og láta mig fá nýtt tæki í staðin, no problemo.

Svo var ég að taka að mér að skrifa pistil í tímarit SÍNE (samband íslenskra námsmanna erlendis) um dvöl mína hérna í Noregi. Ritstjórinn er sama kona og ég fór í viðtal til þegar ég var að sækja um námsstyrkinn. Hún hafði svo samband við mig og bað mig um þetta og ég held að Trygve (my Course Coordinator) deildarformaðurinn okkar muni líka skrifa eitthvað í blaðið í tengslum við þennan pistil og segja sitt álit á þessu samstarfi skólans við íslenskan iðnað...

Svo er ég að fara í enn eitt matarboðið á föstudaginn til Alberts. Þar sem hann er Singaphur kínverji þá ætlar hann að elda eitthvað genuine kínverskt og svo verður eitthvað gott að drekka með. Alltaf gaman að smakka svona alvöru framandi mat og góð tilbreyting frá frostnu og fljótlegu tilbúnu réttunum sem ég borða alltof mikið af:/

föstudagur, 16. september 2005

I'm a legal alien

But not an Englishman in New York. Eftir 24 og hálft ár með sömu kennitöluna þá hef ég ákveðið að fá mér aðra, gott að eiga eina svona til vara. Ég fékk sem sé póst frá norsku þjóðskránni í dag um að ég væri formlega löglegur íbúi Noregs og var því úthlutað Födelsnummer 030481 23359. Glæsilegt ekki satt? Svo er ég kominn með norskt GSM númer hvorki meira né minna (0047) 938 13 834. Það er því ekki hægt að segja annað en að ég sé búinn að koma mér vel fyrir.

Gleðifréttirnar í dag eru þær að miðar á Rosenborg - Lyon 28. sept eru komnir í hús:) Við Deeppal keyptum tvo miða á svarta markaðnum bara til að tryggja að við kæmumst á einhvern leik í vetur. Verðið verður ekki gefið upp hér en það er þó mun lægra á þennan leik en á Real Madrid leikinn í nóvember. Við höfum heyrt tölur sem eru vel á þriðja tug þúsunda, of mikið fyrir fátæka námsmenn.

Gangið hægt um gleðinnar dyr um helgina:)

miðvikudagur, 14. september 2005

Enn meira fótboltafár eftir sigur Rosenborg

Já það var um fátt annað talað í dag í Þrændarlögum en 3-1 sigur Rosenborg gegn Olympiacos í Aþenu í gærkveldi. Menn horfðu á leikinn í öllum sjónvarpstækjum borgarinnar í gær og úrslitin eru svo sannarlega óvænt því að því er ég best veit þá er þetta fyrsti útisigur Rosenborg í meistaradeild Evrópu. Þetta hleypir mikilli spennu í riðilinn okkar og því enn meiri ástæða til að redda sér miðum á leikina þrjá hér í vetur sem ætti að vera góður möguleiki.

Við höfum sem betur fer ekki fengið að finna fyrir þessu óveðri sem hefur gengið yfir Bergen undanfarna daga og kostað mannslíf í aurskriðum. Samt sem áður hefur ekki verið þurr dagur hér í Þrándheimi í ca. tvær vikur og veðrið hefur verið frekar leiðinlegt og óvengulega slæmt á þessum tíma að því er Nojararnir segja. En þetta er í lagi á meðan það byrjar ekki að snjóa.

Ég mun fara í dagsferð til námubæjarins Röros á laugardaginn með masters-nemunum hér við NTNU. Áætlunin er að skoða gamlar námur og gömul hús í þessum merka bæ sem er á lista UNESCO yfir ómetanleg menningarverðmæti. Verður gaman að sjá hvað þar er að finna:)

þriðjudagur, 13. september 2005

Bloggidiblogg - Mikið að gera

Þá er best að halda áfram þar sem frá var horfið við fréttafluttnig frá Noregi. Ég hef verið vægast sagt mjög upptekinn í verkefnavinnu í skólanum undanfarna daga og var að skila af mér lausnum í dag þ.a. nú er smá stund milli stríða. Auk þess verður þessi vika frekar róleg þar sem Hr. Sörlie er ekki með fyrirlestra í Carbon tech.

Hér er það helst að frétta að ný ríkisstjórn er að taka við völdum eftir kosningarnar í gær og Stoltenberg nokkur tekur við af Bundevik. Þetta er svona álíka breyting og að Imba Sól tæki við af Dabba digra á Íslandi, s.s sami pakkinn í mismunandi sauðagærum. Norðmennirnir voru nú ekki að kippa sér mikið upp við þessar kosningar og ég var að segja mörgum þeirra fréttir af niðurstöðunum í dag eftir að hafa hlustað á GUFUNA í morgun á netinu. Fyndið að við Íslendingar vitum oft meira um innanríkismál í örðum löndum heldur en fólkið sem þar býr og hlýtur það að segja eitthvað um fréttafýsni okkar.

Ég er kominn með sjónvarp og næ með því 18 stöðvum, norskum, sænskum og enskum. Ég er að reyna sannfæra sjálfan mig um að sjónvarpið sé besta leiðin til að læra norskuna, samviskan segir að ég noti þetta sem afsökun til að horfa á sjónvarpið:/

Svo fann ég ágæta kínverska síðu þar sem ég get horft á alla helstu fótboltaleiki í Evrópu í beinni útsendingu um netið. Ágætt að þurfa ekki að fara niður í bæ á einhverja pöbba til að fylgjast með boltanum.

Ég fékk loksins langþráðan pakka frá mömmu á föstudaginn var. Í pakkanum var að finna háskólabókasafnið mitt sem ég get ekki lifað án og ég hafði miklar áhyggjur að myndi glatast á leiðinni yfir hafið. Merkilegt hvað öll vitneskja manns og kunnátta byggist upp á því að vita nákvæmlega á hvaða blaðsíðu einhver jafna er í einhverri ákveðinni bók:) Svo var ýmislegt góðgæti sem fylgdi með frá mömmu, slikkerí (mæra upp á Húsvísku), harðfiskur og vatnssuðuvélin sem ég nota til að laga te og instant kaffi.
Ég var ekkert smá glaður að fá þennan pakka og má líkja eftirvæntingunni við að sækja hann á pósthúsið við gömlu góðu jólapakkaspennuna.

Ég ætla nú að fara að malla eitthvað í mallann. Góðar stundir.

miðvikudagur, 7. september 2005

Bubbi kóngur bara hættur

Það eru naumast stórtíðindin sem berast manni frá Íslandi í dag. Landsfaðarinn bara hættur og farinn að vinna við að telja peninga í ríkisfjárhirslunni.
Ég held að það sé nú ekki hægt annað en að hrósa Dabba kallinum fyrir góðan árangur og trygga sjórn og á hann stóran þátt í því stórgóða þjóðfélagi sem við lifum í. Annað sætið á lista Sameinuðu þjóðanna yfir lífskjör (Noregur nr.1).

Ég held að það hafi nú verið kominn tími á Davíð en hann getur vel við unað og vonandi nær hann að stjórna Seðlabankanum nógu vel til að verðbólgan verði áfram lág og að grundvöllurinn fyrir áframhaldandi velsæld, þ.e. STÖÐUGLEIKINN, verði áfram til staðar.

Þetta er samt mjög merkileg saga með þá Davíð og Geir og myndin hér að neðan sínir að þetta er ekki í fyrsta skipti sem þeir senda valdasprotann sín á milli(Davíð tók við af Geir Haarde sem Inspector Scholae í MR árið 1970).

Vonbrigði ársins - Uppselt á UEFA Champions League

Í gær var mikið um að vera hér í Þrándheimi, allavega voru símafyrirtækin að græða vel á mill 16 og 17. Þannig var að kl. 16 var opnað fyrir símasölu á þeim miðum sem seldir verða á almennum markaði á leikina þrjá í Meistaradeild Evrópu í vetur. Ég bauð tveimur félögum mínum í heimsókn til að við gætum pantað miða á leikina og setið saman Þetta væri nú kannski ekki í frásögu færandi nema vegna þess að af einhverjum ástæðum náðum við aldrei sambandi við miðasöluna, álagið á kerfið var of mikið og einhver ömurleg tölvurödd sagði okkur alltaf að reyna aftur síðar.

Við höfðum nú ekki miklar áhyggjur af þessu og héldum að aðrir hefðu átt við sama vandamál að stríða og að það væri nú nokkuð öruggt að það væru einhverjir miðar eftir á völl sem tekur yfir 21 þúsund áhorfendur í sæti. En nei, morguninn eftir þegar við reyndum aftur var okkur vinsamlegast tilkynnt að allir miðarnir væru búnir og ekkert eftir fyrir okkur :-( :+( :o( :t( :s(

Það verður því ekki mikið um Raúl, Ronaldo, Carlos, Beckham og Zidane hjá mér í vetur, en ég hef þó ekki gefið upp alla vona, við lærum það í verkfræðinni að það er ekkert til sem heitir: "ekki hægt". Ég ætla því að nýta alla mína kunnáttu og galdra til að ná í miða og ég á vona á því að það takist. Ég get allavega alltaf reddað mér miðum á leikina gegn Lyon og Olympiakos en ég finn einhverja töfralausn til að redda REAL MADRID leiknum. Við sjáum til.